16/07/2026
🍉 Að borða mat um munn er eitt það flóknasta sem við gerum. Öll skynfæri eru virkjuð og fjöldi vöðva og tauga taka þátt í því að athöfnin gangi snurðulaust fyrir sig.
🍉 Þegar föst fæða er kynnt fyrir barni verður að hafa í huga að barnið er að sjá matinn í fyrsta skipti. Það er því eðlilegt að þau fari varlega í að smakka og borða það sem þau þekkja ekki, rétt eins og við sem eldri erum gerum, við förum varlega í það að láta nýjan og framandi mat inn fyrir okkar varir. Viðbrögð barns þegar það sér nýjan mat getur verið vegna hræðslu. Þess vegna verðum við að vera viss um að barnið þoli ásýnd matsins, sem í boði er, og að vera í nálægð við hann.
🍉 Þegar það er ljóst að barn þolir matinn, er það næsta að meðhöndla hann - með áhöldum til að byrja með. Að snerta matinn með fingrum og höndum er annað þrep og það að þola lykt og geta lyktað af mat telst líka til þreps sem þarf að stíga. Ofurnæm börn þurfa oft ekki annað en að finna (matar)lykt til að þau kúgist eða jafnvel kasti upp. Þess vegna þurfum við líka að huga að því, hvort lyktin af matnum sé sterk ef barnið fæst ekki til að borða hann.
🍉 Síðustu þrepin snúa að því að smakka matinn og að endingu borða hann. Að smakka mat er ekki það sama og borða hann. Það er hægt að byrja að smakka með því að setja smá bragð af matnum á varir, sem barnið svo sleikir, á tungu, biti upp í munn og út aftur. Maturinn þarf ekki að fara niður í maga þegar barnið er að smakka. Maturinn fer hins vegar niður þegar barnið borðar matinn, sem búið er að smakka.
🍉 Þessi þrepaskipting er hugmyndafræði S-O-S-aðferðarinnar (Sequential-Oral-Sensory) og gott að hafa í huga ef barn er að fá eitthvað í fyrsta skipti eða fæst ekki til að borða ákveðinn mat með sérstakri áferð, lykt, bragði eða annað.
🍉 Gefum barninu tíma og höldum áfram að bjóða því allan mat :)
🍉✨ Sonja