Heilshugar lífsstíll

Heilshugar lífsstíll Heilshugar lífsstíll
🥦 Plöntumiðað mataræði - WFPB
🤸‍♀️ Fullt af hreyfingu
👭💏👫 Fjölskyldulífið
🏡 Heimilið

28/07/2026
22/07/2026

Litaleikurinnn er sniðug leið til dreifa huga krakkanna í gönguferðinni 🏵🌸🍂🌿🪻

Takk fyrir að fylgjast með ❤️

21/07/2026

Lambhagi í Skaftafelli er svo mikil perla og hrikalega skemmtilegt að brasa þar með krökkunum! Mæli með ❤️

10/07/2026

::UPPSKRIFT::
Kínóasalat
Sjóðið kínóa
Skerið niður grænmeti, algengt er að hafa t.d. gulrætur, papríku, rauðkál, kóríander, vorlauk og edamame baunir. Hér notum við líka soðnar kjúklingabaunir. Hellið hnetusósu yfir og hrærið saman.

Hnetusósa:
4-6 msk hnetusmjör
2 msk hosin sósa
2 msk hrísgrjónaedik
1 tsk engifer krydd
1 dl vatn (bætið við eftir þörfum)
1 msk hvítlauks mauk eða 1-2 hvitlauksrif
Hrært saman í blandara.
Salt og chili eftir smekk

Við tókum smá útiveru um kvöldmatarleytið í gærkvöldi til að prufukeyra tvær uppskriftir af þurrmat. Það er nefnilega ek...
09/07/2026

Við tókum smá útiveru um kvöldmatarleytið í gærkvöldi til að prufukeyra tvær uppskriftir af þurrmat. Það er nefnilega ekki það sama að borða þurrmat heima í stofu og úti í náttúrunni eftir góðan göngutúr.

Við gengum inn meðfram Þverá sem liggur þvert á Laxárdal í Nesjum hér í Hornafirði. Eftir um 1,5 km göngu var kominn tími til að slaka á og njóta.

Báðar uppskriftirnar voru virkilega góðar og að mínu mati betri en margur þurrmatur sem ég hef smakkað. Held að ég sé komin með tvær fínar uppskriftir til að taka með í Hornstrandaferðina sem styttist óðum í!

🥣 Miðjarðarhafskúskús

80 g kúskús
20–25 g þurrkað soyakurl
10 g sólþurrkaðir tómatar, þurrir og án olíu
10 g þurrkaðar súpujurtir
2 msk næringarger
1 tsk oregano
½ tsk basil
½ tsk hvítlauksduft
½ tsk laukduft
Salt og pipar eftir smekk

Saxið sólþurrkuðu tómatana og súpujurtirnar mjög smátt, t.d. í matvinnsluvél, svo allt mýkist hraðar þegar vatni er hellt yfir. Blandið öllu saman og pakkið í léttar og þéttar umbúðir.

🥜 Satay-kúskús

80 g heilkorna kúskús
20–25 g þurrkað soyakurl
2 msk hnetusmjörsduft, t.d. PB2
10 g þurrkaðar súpujurtir
1 msk næringarger
½ poki instant misósúpa, ca. 5 g
½ tsk hvítlauksduft
½ tsk engiferduft
Salt og chili eftir smekk

Saxið súpujurtirnar mjög smátt ef þið viljið að þær mýkist hraðar. Blandið öllu saman og pakkið í léttar og þéttar umbúðir.

➡️ Fyrir báðar uppskriftir: Hellið 200–250 ml af sjóðandi vatni yfir, lokið ílátinu og látið standa í 15–20 mínútur.

100% plöntumiðað, létt í bakpokanum og þarf bara sjóðandi vatn.

08/07/2026

Er að prófa mig áfram með heimatilbúinn og hollan þurrmat fyrir fjallgönguna. Styttist í Hornstrandir og fleiri ævintýri! 🤩

Skrifaðu UPPSKRIFT í athugasemdir ef þú vilt fá uppskriftirnar að báðum réttunum.

07/07/2026

Við fórum í skemmtilega ævintýraferð og lundaskoðun með Öræfaferðum út í Ingólfshöfða á dögunum. Mæli svo hiklaust með!

Takk Einar fyrir að bjóða okkur uppá þessa frábæru ferð!
Instagram:
Facebook: ÖRÆFAFERÐIR - From Coast To Mountains


//gjöf

Address

Höfn

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilshugar lífsstíll posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share