Thera Studio

Website

Thera Studio Thera Studio | Hóptímar • Sjúkraþjálfun • Fræðsla
Heilsusamfélag fyrir konur á öllum aldri.
Mömmu-/ og meðgönguþjálfun
Bæjarlind 12, 201 Kópavogur

Nóvember Pop-Up hjá Thera Studio Bókaðu þitt pláss 😍Tími fyrir þig eða með vinkonum
08/11/2026

Nóvember Pop-Up hjá Thera Studio

Bókaðu þitt pláss 😍
Tími fyrir þig eða með vinkonum

29/10/2026

Neðri bumba, mommy pooch eða mömmubumba..
við fáum oft spurningar um þetta. Hvað er hægt að gera?

Neðri kviður sem stendur út getur átt sér margar skýringar. Eitt sem getur verið gagnlegt að skoða er samspil öndunar, rifjastöðu og kviðveggjar. Þind, kviðveggur og grindarbotn vinna saman við að stýra þrýstingi í búknum.

Hvar er gott að byrja? Við byrjum á að finna samspilið og byggjum stjórnina upp skref fyrir skref:

✨ 360° öndun
✨ Björn í hund með útöndun
✨ Hreyfanleiki í brjósthrygg
✨ Rif yfir mjaðmagrind með öndun
✨ Sama staða með fótahreyfingu
✨ Sama staða með pressu með lóð

Fyrst æfum við stöðuna með öndun. Síðan bætum við við hreyfingu og loks álagi. Þannig æfum við samspil öndunar og kviðveggjar þegar áskorunin eykst.

Markmiðið er ekki að halda kviðnum inni allan tímann, heldur að æfa hvernig hann vinnur með öndun og hreyfingu.

Vistaðu myndbandið og prófaðu æfingarnar í rólegheitum.

360° öndun
Andaðu rólega inn og finndu hvernig rifin víkka til hliðanna og aftur í bakið. Andaðu mjúklega frá þér og leyfðu líkamanum að slaka á.

Björn í hund með útöndun
Blástu frá þér þegar þú lyftir hnjánum og ýtir þér upp í hundinn. Æfðu samspil öndunar og kviðveggjar á hreyfingu.

Hreyfanleiki í brjósthrygg
Snúðu brjóstbakinu mjúklega og leyfðu rifjunum að fylgja hreyfingunni. Andaðu rólega í gegnum æfinguna.

Rif yfir mjaðmagrind með öndun
Finndu stöðuna og andaðu rólega. Taktu eftir hvernig rifin hreyfast með önduninni og hvernig kviðveggurinn vinnur með.

Rif yfir mjaðmagrind með fótahreyfingu
Haltu stöðunni á meðan þú lækkar annan fótinn. Blástu frá þér á leiðinni niður og andaðu inn þegar fóturinn kemur aftur upp.

Rif yfir mjaðmagrind með pressu
Haltu búknum stöðugum og önduninni mjúkri á meðan þú pressar lóðinu upp. Æfðu samspil öndunar og kviðveggjar við aukið álag.

Hvaða tími er fyrir þig? 🤎Við vitum að það getur stundum verið erfitt að finna hreyfingu sem hentar.Sumar vilja lyfta þu...
19/10/2026

Hvaða tími er fyrir þig? 🤎

Við vitum að það getur stundum verið erfitt að finna hreyfingu sem hentar.
Sumar vilja lyfta þungu, sumir vinna í takt við tónlist, aðrar elska að finna púlsinn hækka, á meðan einhverjar vilja hægja á og tengjast líkamanum betur 🫶

Finndu þinn tíma !

👊Power 💪🏼Strength🧑‍🩰Sculpt 🧘‍♀️Somatic Yoga

Slow & Flow er innifalið í öllum áskriftum 💫

Og mundu að með Thera Aðild hefur þú möguleika á að flakka á milli POWER, STRENGTH og SCULPT eftir því hvað hentar þér hverju sinni. 🤎

Skráningar eru opnar á therastudio.is

📍 Bæjarlind 12, Kópavogi

Ertu komin yfir fertugt? 🤎Í dag, 18. október, er Alþjóðadagur breytingaskeiðsins og við viljum nýta tækifærið til að min...
18/10/2026

Ertu komin yfir fertugt? 🤎

Í dag, 18. október, er Alþjóðadagur breytingaskeiðsins og við viljum nýta tækifærið til að minna á mikilvægi styrktarþjálfunar fyrir heilsu kvenna.

Með hækkandi aldri og þeim hormónabreytingum sem fylgja breytingaskeiðinu geta orðið breytingar á vöðvamassa, beinþéttni, líkamsamsetningu og almennri líðan. Vöðva- og liðverkir geta einnig gert vart við sig.

En það er margt sem við getum gert til að styðja við heilsuna til framtíðar.

Regluleg hreyfing, og sérstaklega styrktarþjálfun, er ein mikilvægasta fjárfestingin sem við getum gert í eigin heilsu. Hún hjálpar okkur að viðhalda styrk, hreyfigetu og sjálfstæði, styður við beinheilsu og getur dregið úr stoðkerfisverkjum.

Og það þarf ekki að fara úr engu í allt. Mikilvægast er að finna hreyfingu sem hentar, byggja sig upp á eigin forsendum og skapa venjur sem endast. 🫶

Hjá Thera Studio leggjum við áherslu á þjálfun fyrir konur á öllum æviskeiðum.

Við erum sjúkraþjálfarar og trúum því að fagleg, markviss og fjölbreytt þjálfun eigi að vera aðgengileg konum, óháð aldri eða fyrri þjálfunarreynslu.

Í Thera Aðild getur þú valið á milli þriggja mismunandi styrktarþjálfunar POWER, STRENGTH og SCULPT, með möguleika á að flakka á milli tíma eftir því hvað hentar þér. Tímarnir eru á morgnanna, hádeginu, seinnipart & kvöldin. Að auki er innifalið Slow&flow á fimmtudagskvöldum. Frábærir endurheimtatímar en slökun og liðkun er mikilvægt samhliða þjálfun.

Hvort sem þú ert að byrja að styrkja þig, koma þér aftur af stað eða vilt halda áfram að byggja upp styrk til framtíðar, þá ertu velkomin til okkar.

Fjárfestu í styrknum þínum, fyrir þig og heilsuna til framtíðar.

Kynntu þér tímana okkar og Thera Aðild á www.therastudio.is, link í bio.

Þjálfun fyrir konur hjá Thera StudioÞú getur byrjað strax í dag !POWERÞriðjudaga og fimmtudaga kl. 11:50(Byrjaðu strax í...
13/10/2026

Þjálfun fyrir konur hjá Thera Studio
Þú getur byrjað strax í dag !

POWER
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11:50
(Byrjaðu strax í dag!)

HOT STRENGTH
Mánudaga og miðvikudaga kl. 08:30
(Byrjaðu strax í dag!)
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 06:15
Hefst 20. október

HOT SCULPT · BARRE & PILATES
Mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30
(Byrjaði strax í dag!)
Mánudaga og miðvikudaga kl. 20:00
Hefst 2. nóvember

Allir tímarnir eru hluti af Thera Aðild. Þú velur þér aðaltíma þar sem þú telur þig mæta oftast og átt alltaf öruggt pláss í honum. Svo geturðu líka flakkað á milli allra tíma innan aðildarinnar.

Slow & Flow á fimmtudögum kl. 20:20 er einnig innifalinn.

Með thera aðild færðu:
Sveigjanleika, fjölbreytni & markvissan styrk

Thera Studio
Sjúkraþjálfun · Hópþjálfun · Kvenheilsa

Takk fyrir dásamlega kvöldstund saman á bleiku barre  góðgerðarkvöldi🩷Það var yndislegt að fylla stúdíóið af geggjaðari ...
10/10/2026

Takk fyrir dásamlega kvöldstund saman á bleiku barre góðgerðarkvöldi🩷

Það var yndislegt að fylla stúdíóið af geggjaðari orku, hlátri og samverustundum 🎀

Sérstakar þakkir til samstarfsaðilla sem gerðu kvöldið enn skemmtilegra:
OMAX Heildverslun
Beautyklúbburinn - Snyrtivörur
ÓJK-ÍSAM
JOE & THE JUICE - ÍSLAND 🇮🇸

Takk fyrir ykkur og takk fyrir að styrkja bleiku slaufuna 🎀

Viðburðinn var skipulagður af nemendum í viðburðarstjórn við HÍ Thelma Rögnvaldsdóttir Valdís Unnur Elísa Sigurgísladóttir

THERA STUDIO × BLEIKA SLAUFAN 🎀Fyrra bleika góðgerðarkvöldið okkar fylltist og nú opnum við skráningu á næsta góðgerðark...
08/10/2026

THERA STUDIO × BLEIKA SLAUFAN 🎀

Fyrra bleika góðgerðarkvöldið okkar fylltist og nú opnum við skráningu á næsta góðgerðarkvöld 💗

Miðvikudaginn 21. október kl. 20:00 bjóðum við ykkur í kraftmikinn Hot Sculpt-tíma með Heru Rut, sjúkraþjálfara og hóptímaþjálfara.

Hot Sculpt fer fram í 34°C heitum sal og sameinar létta mótstöðu, markvissar hreyfingar og innblástur úr Pilates og Barre, allt í takt við tónlist sem gefur kraft og hvetur okkur áfram.

Frábærir samstarfsaðilar okkar sjá til þess að allar fari heim með veglegan gjafapoka og eftir tímann býður YuYu Matcha upp á bleikt matcha.

Verð: 5.900 kr.
Allur ágóði rennur til Bleiku slaufunnar.

Komdu, hlúðu að þinni heilsu og styrktu um leið mikilvægt málefni með okkur.

Takmarkaður fjöldi kemst að.
Skráning er hafin á Abler 🎀
Link í BIO

Thera Aðild3 leiðir að styrk - sveigjanleiki þegar hentar.Staður þar sem þú getur byggt upp styrk, fundið meiri orku og ...
01/10/2026

Thera Aðild

3 leiðir að styrk - sveigjanleiki þegar hentar.

Staður þar sem þú getur byggt upp styrk, fundið meiri orku og æft á þann hátt sem hentar þér, í fallegu og hlýlegu umhverfi með konum sem vilja það sama og þú.

Með Thera Aðild getur þú valið úr fjölbreyttum tímum, meðal annars:

POWER
HOT STRENGTH
HOT SCULPT

Hvort sem þú vilt koma tvisvar í viku eða hafa ótakmarkaðan aðgang, þá er til aðild sem passar inn í þitt líf.

Æfing sem þú hlakkar til að mæta í.
Samfélag sem þú vilt tilheyra.

Skoðaðu Thera Aðild og finndu þína leið í hlekknum í bio

Address

Bæjarlind 12
Kópavogur
201

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Thera Studio posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share