Improvement heilunarsetur

Improvement heilunarsetur Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Improvement heilunarsetur, Alternative & holistic health service, Grafarvogur, Reykjavík.

Tökum vel á móti þér í KAP fimmtudaginn 10.september kl 19:30-21:00 💜Verðum í nærandi umhverfi Samkennd HeilsuseturTungu...
05/09/2026

Tökum vel á móti þér í KAP fimmtudaginn 10.september kl 19:30-21:00 💜
Verðum í nærandi umhverfi Samkennd Heilsusetur
Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík, 2.hæð
Hámark 12 manns. Orkuskipti 7000kr
Skráning á [email protected] eða skilaboðum 💌

KAP stendur fyrir Kundalini Activation Process, að virkja líforkuna okkar.
Þú liggur á dýnu, það er spiluð taktföst tónlist á meðan leiðbeinandinn fer a milli aðila að hjálpa kundalini orkunni að flæða þangað sem hennar er þörf. Leiðbeinandinn vinnur með orkulíkamann sem er umhverfis okkur ásamt léttri snertingu á líkamann til að opna fyrir flæði og heilun.

Þú getur búist við djúpri slökun, tilfinningalosun, séð sýnir og liti, heimsótt minningar, upplifað hita/kulda, fundið fyrir náladofa eða straumum, fundið þörf fyrir að hreyfa þig, hristast o.fl.

Ávinningurinn er betri svefngæði, ró í taugakerfið, finna fyrir lífskraftinum okkar og losa okkur við það sem ekki þjónar okkur lengur ✨️

Hlökkum til að taka á móti þér 💜
Kærleikskveðja
Maríanna & Óskar

💜 GJAFALEIKUR 💜Okkur langar að fagna samfélaginu sem er að myndast í kringum Improvement heilunarsetur og gefa tveimur h...
19/08/2026

💜 GJAFALEIKUR 💜
Okkur langar að fagna samfélaginu sem er að myndast í kringum Improvement heilunarsetur og gefa tveimur heppnum fylgjendum meðferð að eigin vali úr þjónustuúrvali okkar.*
• Neuro Flow Therapy
• Flowmassage
• Heildræn heilsumarkþjálfun
• Heilun
• Tarot lestur
• Kombó tími
• KAP

Til að taka þátt:
🤍 Fylgdu Improvement heilunarsetri á Instagram og/eða Facebook.
🤍 Líkaðu við þessa færslu.
🤍 Skrifaðu FLÆÐI í athugasemd (til að bjóða flæði af vellíðan inn í líf þitt!)

Þú mátt gjarnan merkja manneskju sem þú vilt bjóða með í samfélagið okkar og deila áfram að vild!

Gjafaleiknum lýkur miðvikudaginn 26.ágúst kl. 23:59 og dregið verður úr gildum þátttakendum fimmtudaginn 27.ágúst.

Við hlökkum til að gleðja tvær manneskjur úr samfélaginu okkar. 🤍

Maríanna & Óskar

---------
* Vinningshafar fá meðferð að eigin vali úr þjónustuúrvali Improvement Heilunarseturs sem eru í boði þegar vinningurinn er nýttur og hvað hentar viðkomandi. Vinningurinn gildir í þrjá mánuði, fæst ekki greiddur út í peningum. Þátttakendur þurfa að vera 18 ára eða eldri. Haft verður samband við vinningshafa frá opinberum reikningi Improvement heilunarseturs. Við biðjum aldrei um greiðslu- eða kortaupplýsingar vegna vinninga.

Óskar býr yfir 16 ára reynslu af einstaklingsmiðaðri meðferðarvinnu, yfir 20.000 meðferðarstundum og hefur unnið með þús...
16/08/2026

Óskar býr yfir 16 ára reynslu af einstaklingsmiðaðri meðferðarvinnu, yfir 20.000 meðferðarstundum og hefur unnið með þúsundum skjólstæðinga. Hann er höfundur nuddaðferðarinnar Flowmassage, sem hefur þróast í Neuro Flow Therapy – heildræna líkamsmeðferð sem byggir á djúpri líkamsvitund, næmni og markvissri vinnu með líkama og taugakerfi.

Leið Óskars inn í meðferðarstarfið hófst eftir alvarleg meiðsli árið 2009. Árin á undan hafði hann átt farsælan feril í aflraunum og verið sterkasti maður Íslands fjögur ár í röð, frá 2005–2008. Þegar engar skýrar lausnir fundust við meiðslunum og hann hafði ekki tök á að sækja reglulega meðferð hóf hann að vinna sjálfur með líkama sinn. Sú leit varð upphafið að djúpu bata- og þroskaferli og Flowmassage-aðferðinni, sem hann hefur þróað áfram með námi, sjálfsvinnu og áralangri reynslu.

Með auknum skilningi á samspili líkamans, hugsana, tilfinninga og taugakerfisins þróaðist Flowmassage yfir í Neuro Flow Therapy. Í stað þess að vinna eingöngu með vöðva og mjúkvefi leggur Óskar áherslu á að styðja við flæði, hreyfanleika og jafnvægi taugakerfisins. Þegar klemman losnar og flæði kemst á taugina, minnkar heildrænn þrýstingur í taugakerfinu sem skapar jafnvægi og vellíðan.

Í gegnum eigið bataferli öðlaðist Óskar nýjan skilning á styrk: Styrkur er ekki kraftur heldur getan til að jafnvægisstilla kraft. Vendipunkturinn varð þegar hann áttaði sig á áhrifum hugsana og tilfinninga á líðan og skildi að líkamlegur, huglægur og tilfinningalegur styrkur eru samverkandi þættir.

Til Óskars leitar meðal annars fólk sem glímir við taugaverki, langvinna verki, skerta hreyfigetu eða skerta starfsfærni.

Skjólstæðingar Óskars finna ekki aðeins fyrir styrk hans heldur einnig einstakri næmni og nærveru. Hann hlustar af athygli, leggur sig allan fram við að skilja aðstæður hvers einstaklings og skapar öruggt og traustvekjandi rými. Meðferðir hans eru hjartfólgnar og byggja á einlægum vilja til að hjálpa fólki að sækja sér bata, öðlast dýpri skilning á eigin heilsu og styrkja tengslin við sjálft sig.

Nánari upplýsingar og tímabókanir [email protected] 💌

Tökum vel á móti þér í KAP í haust 💜Verðum í nærandi umhverfi Samkennd HeilsuseturTunguhálsi 19, 110 Reykjavík, 2.hæðHám...
10/08/2026

Tökum vel á móti þér í KAP í haust 💜
Verðum í nærandi umhverfi Samkennd Heilsusetur
Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík, 2.hæð
Hámark 12 manns. Orkuskipti 7000kr
Skráning á [email protected] eða skilaboðum 💌

KAP stendur fyrir Kundalini Activation Process, að virkja líforkuna okkar.
Þú liggur á dýnu, það er spiluð taktföst tónlist á meðan leiðbeinandinn fer a milli aðila að hjálpa kundalini orkunni að flæða þangað sem hennar er þörf. Leiðbeinandinn vinnur með orkulíkamann sem er umhverfis okkur ásamt léttri snertingu á líkamann til að opna fyrir flæði og heilun.

Þú getur búist við djúpri slökun, tilfinningalosun, séð sýnir og liti, heimsótt minningar, upplifað hita/kulda, fundið fyrir náladofa eða straumum, fundið þörf fyrir að hreyfa þig, hristast o.fl.

Ávinningurinn er betri svefngæði, ró í taugakerfið, finna fyrir lífskraftinum okkar og losa okkur við það sem ekki þjónar okkur lengur ✨️

Hlökkum til að taka á móti þér 💜
Kærleikskveðja
Maríanna & Óskar

Íbúar á Austurlandi taka alltaf jafn vel á móti Óskari í sínum reglulegu vitjunum þangað - miklar þakkir fyrir kærleiksr...
06/08/2026

Íbúar á Austurlandi taka alltaf jafn vel á móti Óskari í sínum reglulegu vitjunum þangað - miklar þakkir fyrir kærleiksríkar móttökur 💜

Nú þegar er fullbókað hjá honum í september en hvetjum ykkur að hafa samband við hann svo að þið getið verið á biðlista ef einhver tími losnar og/eða til að fá upplýsingar um næstu ferðir hans á Austurlandið ✨️

Nánari upplýsingar veitir Óskar [email protected]

Kombó tímar eru vinsælir tímar hjá Improvement heilunarsetri 🪻✨️ Orkukombó (markþjálfun & Engla Reiki heilun)✨️ Tarotkom...
15/07/2026

Kombó tímar eru vinsælir tímar hjá Improvement heilunarsetri 🪻

✨️ Orkukombó (markþjálfun & Engla Reiki heilun)
✨️ Tarotkombó (tarot lestur & Engla Reiki heilun)
✨️ Cacaokombó (Cacao & markþjálfun)
✨️ Kombótími (þar sem við mætum þér með því sem þú þarft þann daginn)

Tímarnir eru 90 mín og orkuskipti 25.000kr ..einnig velkomið að setja saman þinn eigin kombótíma 💜

Býð upp á að koma í Grafarvoginn eða mæla okkur mót rafrænt 😇

💌 Fyrirspurnir og bókanir hjá Maríönnu [email protected]

📸

Improvement heilunarsetur býður upp á fjölbreyttar meðferðir fyrir heildræna vellíðan í öruggu og hlýlegu rými fyrir hug...
12/07/2026

Improvement heilunarsetur býður upp á fjölbreyttar meðferðir fyrir heildræna vellíðan í öruggu og hlýlegu rými fyrir huga, líkama og sál.

Virðing, fagmennska og kærleikur eru sálin í Improvement heilunarsetri og endurspeglast í einstakri þjónustu og starfsfólki okkar.

Verið hjartanlega velkomin 💜

📸

Takk Gummó fyrir að forgangsraða heilsunni þinni og miðla þinni reynslu - gangi þér áfram vel 💯
01/07/2026

Takk Gummó fyrir að forgangsraða heilsunni þinni og miðla þinni reynslu - gangi þér áfram vel 💯

✨️ Rými dagsins ✨️
27/06/2026

✨️ Rými dagsins ✨️

Improvement heilunarsetur kynnir til leiks Óskar, reyndan meðferðaraðila sem hefur sérhæft sig í taugaklemmulosun, aukni...
22/06/2026

Improvement heilunarsetur kynnir til leiks Óskar, reyndan meðferðaraðila sem hefur sérhæft sig í taugaklemmulosun, aukningu á hreyfigetu og meiðslameðferðum.

💌 [email protected]

Address

Grafarvogur
Reykjavík
112

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Improvement heilunarsetur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Improvement heilunarsetur:

Shortcuts

Share