09/08/2026
Búinn að hugsa málið: Sameining ekki sundrung🇮🇸
Ísland er
Land of the Free
Land of the Brave
Þetta er land tækifæranna
Þú getur verið sá sem þú vilt
Getur gert allt sem þú vilt
Það er ekkert limit,
nema það sem þú setur sjálfum þér.
Landið er mitt, valdið er mitt.
Landið er þitt, valdið er þitt.
Þú ert leikstjórinn í þínu lífi, ég er leikstjórinn í mínu lífi. Sköpum fallegan heim saman. Fallegt land saman.
Unity ekki division.
Sameining ekki sundrung.
ESB??👀
nei🗣️takk kærlega samt fyrir að spurja, við erum alveg í toppmálum, allir eru að gera róttæka hugafarsbreytingu:
Fatta&vakna hvað við erum heppin&blessuð að búa hér og fæðast hér, þakklátur er ég forfeðrum mínum sem byggðu þetta allt upp saman, úr moldar og torfbæjum, harðbýlt og kalt, blíða&harða paradísareyjan er bara rétt að byrja.
Taka fulla ábyrgð á sjálfum sér,
það er enginn að fara bjarga mér nema ég sjálfur,
ESB er ekki að fara bjarga þér,
Þú ert hetjan í þínu lífi, eða skúrkurinn
en Ég elska þig samt þótt þú viljir gera já til að sjá
En ég er sjálfur að læra segja nei 😇🛑
Við megum vera ósammála án þess að hata hvort annað,
en hér er endalaust af orku, og ég hleð mig upp í náttúrunni, ég er náttúran, ég er lífið og ég er vegurinn.
“Gott karma (ú) að fæðast hér á Íslandi,
Á fjöllunum ég viðra mig,
virðir mig ég virði þig
ég er alltaf harkandi
elska vera lifandi
Guðmundur er mættur, á taktinum svo æstur,
úr þjáningu við stækkum og ég ætla verða stærstur.” -gemil
Fallegt land fallegt fólk
Guð blessi Ísland, Guð blessi allt og alla❤️🥰
Ef ég breyti skoðun minni og vill ESB þá ætti ég alveg að geta flutt til Svíþjóðar, Danmörku eða Spán.
Sama hvernig þetta fer, veit ég að þetta fer allt vel🌞😊