Matur og Munnur

  • Home
  • Matur og Munnur

Matur og Munnur Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Matur og Munnur, Speech Pathologist, Furuvellir 13, .

Tunga, varir, kjálki, loftvegur og taugakerfi. Allt spilar þetta stór hlutverk í athöfninni að tyggja mat. Þegar barn ty...
24/03/2026

Tunga, varir, kjálki, loftvegur og taugakerfi. Allt spilar þetta stór hlutverk í athöfninni að tyggja mat. Þegar barn tyggur harðari og seigari áferðir, t.d. grænmeti eða kjöt,

🍉 er tungan á stöðugri hreyfingu í munninum til að
staðsetja bitann og að lokum þrýstist hún upp í góminn
til að kyngja honum*
🍉 halda varir matnum inni í munninum
🍉 hreyfist kjálkinn fram og til hliðanna (hringhreyfing)
🍉 eykst munnvatnsframleiðsla
🍉 stjórnar heilinn samhæfingu þess að tyggja og kyngja

Að tyggja hjálpar til við heilbrigðan vöxt og þroska kjálkans. Því mýkri sem fæðan er, þarf minna að tyggja hana sem þar með minnkar örvun fyrir tunguna og kerfið sem sér um að tyggja.

Kjálkinn segir til um hversu mikið pláss er fyrir tennur, fyrir tunguna uppi í gómnum og hversu opinn loftvegurinn er, sérstaklega í svefni. Ef tungan hvílir ekki uppi í gómnum, er hætta á að það dragi úr vexti kjálka og gómur verður hár og hvelfdur.

*Að því gefnu að hreyfifærni tungunnar sé óheft

✨Gott að muna:
Matur, sem þarf að tyggja, mótar andlitið.

🍉✨Sonja

Hefur þú heyrt: ,,það er smá tunguhaft en það hefur engin áhrif”?Brjósta- og/eða pelagjöf gengur ekki sem skildi, barnið...
08/03/2026

Hefur þú heyrt: ,,það er smá tunguhaft en það hefur engin áhrif”?

Brjósta- og/eða pelagjöf gengur ekki sem skildi, barnið leggst oft en stutta stund á brjóstið í einu en það er alltaf einhver barningur. Barnið nær ekki nógu djúpu gripi á geirvörtuna þannig að móðir er aum og sár eftir gjafir. Mjólkurflæðið er svo mikið að barninu svelgist á, það slítur sig frá en vill samt meira, nær grunnu gripi og sagan endurtekur sig.

Þegar skoðað er fyrir stífu tungubandi (eða tunguhafti þegar öll þessi einkenni og jafnvel fleiri eru til staðar) þarf að skoða vel upp í munn barnsins og þreifa á bandinu.

Það að losa um stíft tunguband, þ.e. klippa á tunguhaft, er bara einn partur af stærra púsli og stundum þarf ekki að klippa á bandið ef aðrir partar púslsins eru settir á undan, m.a. tungu,,æfingar” og líkamsmeðferð. Þetta spilar allt saman.

En tunguhaft er alltaf tunguhaft þegar tungubandið er það stíft að það skerðir hreyfifærni tungunnar í þeim hlutverkum sem hún þarf að sinna.

Það er ekki til neitt sem heitir ,,smá” tunguhaft!

Sonja 🍉✨

Þessi tími!! Finnst svo stutt síðan þessi dagur var síðast, samt er liðið heilt ár!Það er margt skemmtilegt framundan og...
01/01/2026

Þessi tími!! Finnst svo stutt síðan þessi dagur var síðast, samt er liðið heilt ár!

Það er margt skemmtilegt framundan og bara núna í janúar er ráðstefna, sem ég er mjög spennt fyrir. Ég er reyndar spennt fyrir öllum verkefnum mínum og þau voru sannarlega fjölbreytt á liðnu ári 😃

Mér þykir alltaf gaman að heyra frá ykkur og tala nú ekki um ef ég fæ að hitta ykkur í eigin persónu 🧡

Megi nýja árið færa ykkur gæfu og gleði, heilbrigði og hamingju 🎉

Hlakka til að deila með ykkur meiri fræðslu 2026 🥰

Rétt öndun er mikilvæg þegar kemur að svefngæðum og almennri heilsu. Hvernig sefur þú? Hvernig sefur barnið þitt? Mæl me...
30/12/2025

Rétt öndun er mikilvæg þegar kemur að svefngæðum og almennri heilsu. Hvernig sefur þú? Hvernig sefur barnið þitt?

Mæl með að gefa öndun og munni gaum þegar kíkt er inn til barnsins fyrir nóttina 🧡

Öryggi felst líka í matartíma án pressu þar sem fókus á að vera á barn en ekki á það sem það borðar - eða borðar ekki!Ka...
05/10/2025

Öryggi felst líka í matartíma án pressu þar sem fókus á að vera á barn en ekki á það sem það borðar - eða borðar ekki!

Kannastu við að hafa heyrt þessari mýtu fleygt? Það væri gaman að heyra hvernig þú brást við 😊

Margar áhugaverðar greinar í nýjasta Talfræðingi, tímariti talmeinafræðinga, þ.á.m. reynslusögur af árangursríkri íhlutu...
24/09/2025

Margar áhugaverðar greinar í nýjasta Talfræðingi, tímariti talmeinafræðinga, þ.á.m. reynslusögur af árangursríkri íhlutun á stífu tungubandi (bls. 48). Mæli eindregið með lestri:

https://www.talmein.is/wp-content/uploads/2025/06/Talfraedingurinn-27.argangur-2025.pdf

🍉 Með losun á stífu tungubandi (tunguhafti) er ekki þar með sagt að allur vandi verði úr sögunni. Losun er ‘bara’ einn p...
09/04/2025

🍉 Með losun á stífu tungubandi (tunguhafti) er ekki þar með sagt að allur vandi verði úr sögunni. Losun er ‘bara’ einn partur af ferlinu.

🍉 Til að ávinningur af losun verði sem mestur og bestur er mikilvægt að undirbúa barn OG foreldra og fylgja henni líka eftir. Sár í munni eru mjög fljót að gróa og er hætt við að sárið grói saman (tígullinn fellur saman) þegar hreyfingum tungunnar er ekki haldið við.

🍉 Breytingar til batnaðar geta komið fram strax eftir íhlutun en í mörgum tilfellum þarf að gefa framförum tíma. Þá er vert að muna að stífa tungubandið er búið að vera síðan í móðurkviði og með aukinni hreyfigetu þarf barnið að læra inn á þessar nýjur hreyfingar.

🍉 Stíft tunguband getur haft áhrif á allan líkamann og því einnig mikilvægt að veita öðrum líkamshlutum líka athygli og meðhöndla þá í hvers konar líkamsmeðferð eftir þörfum.

🍉 Íhlutun á (stífu) tungubandi ætti ekki að fara fram nema að undangengnu mati brjóstagjafaráðgjafa eða talmeinafræðings á færni tungunnar og leiðsögn varðandi ‘æfingar’ á munnsvæðinu.


🌛 Svefnrofsöndun er ekki eðlilegt ástand.🌛 Einkenni geta komið í ljós á unga aldri, sem versna með aldrinum ef ekkert er...
07/03/2025

🌛 Svefnrofsöndun er ekki eðlilegt ástand.

🌛 Einkenni geta komið í ljós á unga aldri, sem versna með aldrinum ef ekkert er að gert.

🌛 Marsmánuður er tileinkaður svefni og svefngæðum.

🌛 Verum vakandi yfir góðum svefni 😀

Fullt af tækifærum til málörvunar í umhverfinu 😊
04/03/2025

Fullt af tækifærum til málörvunar í umhverfinu 😊

⭐ 2024 var magnað ár, sem fór hjá á ofurhraða! ⭐🎉 Ég g*t áfram sinnt ástríðu minni, að hjálpa til við að bæta lífsgæði u...
03/01/2025

⭐ 2024 var magnað ár, sem fór hjá á ofurhraða! ⭐

🎉 Ég g*t áfram sinnt ástríðu minni, að hjálpa til við að bæta lífsgæði ungbarna og foreldra, barna og fullorðinna. Ég er ævinlega þakklát foreldrum sem leita til mín og fagaðilum sem vísa til mín og þar með því trausti þið sýnið mér.

🎉 Ég var misdugleg við að setja inn (nýtt) efni á samfélagsmiðlana en tók nokkrar skorpur. Samskipti og spurningar frá ykkur halda mér vissulega við efnið og veita mér innblástur.

🎉 Ég hélt nokkra fyrirlestra fyrir fagaðila á árinu og sótti eina ráðstefnu erlendis í tengslum við tunguhöft og stækkaði enn tengslanetið mitt.

🎉 Í persónulega lífinu stóðu ferðalag um Albaníu og flutningar upp úr á árinu ásamt útskrift sonarins frá MA og 30 ára stúdentsafmæli 😊

⭐ 2025 verður líka magnað ár! ⭐

🎉 Ég stefni áfram að því að hitta fjölskyldur og einstaklinga en ætla einnig að bjóða upp á (mynd)símaráðgjöf til foreldra og fagaðila ásamt fleiri nýjungum en meira um það síðar.

🎉 Samfélagsmiðlasíðurnar munu áfram rúlla þar sem ég mun deila fróðleik um fæðuinntöku, veikleika á munnsvæði, svefn og önnur ástríðuviðfangsefni. Heimasíðan mín maturogmunnur.is er líka opin en þar er m.a. hægt að bóka tíma/skrá sig á biðlista. Einnig er hægt að óska eftir aðgangi í Tungu- og varahaft: Stuðningshóp á Facebook en hann er hugsaður fyrir foreldra og fullorðna einstaklinga til að deila reynslu og fá ráð. Eitt af markmiðum 2025 er að vera virkari þar inni.

🎉 Ég stefni líka á að fjölga fyrirlestrum og fræðslu til foreldra og fagaðila á árinu ásamt því að að sækja mér sjálfri meiri þekkingu á ráðstefnum og fyrirlestrum erlendis því ég ætla aldrei að hætta að læra…

🎉 Inn á milli þessara verkefna hefst svo undirbúningur á nýju húsnæði okkar hjóna þannig að það er til margs að hlakka til á þessu nýja ári 😊

⭐ Takk fyrir samfylgdina ⭐

Gleðilega hátíð og takk fyrir samfylgdina á liðnu ári 🎄Er ævinlega þakklát fyrir ykkar þátt í þessum miðli og hlakka til...
24/12/2024

Gleðilega hátíð og takk fyrir samfylgdina á liðnu ári 🎄
Er ævinlega þakklát fyrir ykkar þátt í þessum miðli og hlakka til áframhaldandi samtals 🧡🎉

Address

Furuvellir 13

600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Matur og Munnur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Matur og Munnur:

  • Want your practice to be the top-listed Clinic?

Share