12/04/2022
✨Alveg frá því ég var lítil hef ég haft áhyggjur af því að fólk muni gleyma mér. ✨
Ég hef reynt að stjórna milljón aðstæðum til að komast hjá því að finnast ég vera gleymd. Meira að segja núna, þegar ég er að ferðast, voru fyrstu dagarnir ólgusjór og tilfinningarússibani af gömlu krumpi innra með mér að það myndu allir bara gleyma mér af því að ég er ekki beint fyrir framan þau. Í menntaskóla aðlagaði mér að öllum hópum, ég hef eytt endalausum peningum í að vera samþykkt og meira að segja hrakið vini í burtu með þessum ótta.
Með þessari ranghugsun hef ég oftar en ekki gleymt sjálfri mér. Gleymt að hlusta á mig og hvað ég vil gera, hvað ég er að hugsa og hvert ég vil stefna. Ég dett í það að hlusta á aðra framyfir mig, virða þarfir þeirra í stað minna og missa tenginguna mína við mig.
- Mundu elsku gull að þú ert með öll svörin innra með þér. Þú ert þinn besti vinur og mesti gagnrýnandi. Það mikilvægasta sem þú getur gert er að muna eftir þér og hlúa að þér með öllu þvi frábæra og magnaða sem þú hefur! ❤️
✌️Og ef einhver gleymir mér, þá er það algjörlega þeirra missir. ✌️