02/05/2023
ok ég er tilbúin að skríða rólega af bleika skýinu sem hefur fleytt mér um í heilt ár.
Ég veit að sumarið er ekki besti tíminn fyrir námskeið en vonandi næ ég bara samt að halda nokkur í Festa sjúkraþjálfun í sumar -(Það má líka ræða tímasetningar sem henta vinnandi og grillandi fólki betur á sumrin, til dæmis morgun- eða hádegistíma)
Það er pláss fyrir 12 manns á þessu "námskeiði" sem er samt ekki beint námskeið heldur bara 5 lokaðir jógatímar.
Svo er ég líka byrjuð að taka niður hópabókanir fyrir sumarið; við erum að tala um vinahittinga, gæsanir og steggjanir, vinnustaðakósí o.s.frv.
ok frábært. Sjáumst í jóga!!
Íris