Jógahornið

Jógahornið Jógahornið er staðsett á Unubakka 4 Þorlákshöfn,þar er vettvangur fyrir jógaiðkun ofl. tengt heilsu.

Dásamleg stund í Jógahorninu 🩷💫 - Íslandsdætur 🫶
23/07/2026

Dásamleg stund í Jógahorninu 🩷💫 - Íslandsdætur 🫶

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu fimmtudaginn 23.júlí og föstudaginn 24.júlí ❤️ ég mæli með að fara til hennar og pr...
21/07/2026

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu fimmtudaginn 23.júlí og föstudaginn 24.júlí ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir neðan.

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu föstudaginn 17.júlí ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir...
15/07/2026

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu föstudaginn 17.júlí ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir neðan.

Gleðilegt Fullt Tungl!Tunglið er fullt þann 29.júní kl 23:56 að íslenskum tíma.Tungl Gyðjunnar Snotru er tungl léttleika...
29/06/2026

Gleðilegt Fullt Tungl!

Tunglið er fullt þann 29.júní kl 23:56 að íslenskum tíma.

Tungl Gyðjunnar Snotru er tungl léttleika, mildi og fegurðar.
Á þessu fulla tungli er upplagt að dvelja í kyrrð og sátt með Móðir Náttúru. Njóta mildi umhverfis okkar og vera góð við okkur sjálf.

Gyðjan Snotra er gyðja visku, fegurðar og mildi. Hún hvetur þig til að vera góð við sjálfa þig í sumri og sól. Njóta fegurðar þinnar og umhverfis þíns. Upplagt er að njóta gönguferða og stunda í náttúrunni. Jafnvel heimsækja heitar lindir eða uppsprettur, og njóta þess að eiga kyrrláta stund með sjálfri sér.

Fulla tunglið færir sérstaka sumarblessun, því ennþá ríkja töfrar Sumarsólstöðva, og því upplagt að njóta friðar og mildi sumars á þessu fulla tungli.

Njóttu þess að eiga gönguferðir í algjörri þögn. Njóttu þess að hlusta og dvelja með athygli þína við Móður Jörð. Hlusta á skilaboð hennar í sumrinu og leyfa þér að gefa eftir inn í andartakið. Því þó að Móðir Jörð sé í fullum blóma og sýní orku vaxtar og blómgunar - að þá er hún í allri sinni mildi og blessun að færa þér tækifæri til friðs og kyrrðar.

Njótum þess í dag að anda djúpt og gefa eftir.

Njótið sumarsins og bjartrar sumarnæturinnar kæru vinir!

Megi allir draumar okkar rætast!

//

Happy Full Moon!

The Moon is full on June 29 at 23:56 GMT / June 30 01:56 CET.

The Moon of Goddess Snotra is filled with gentleness & beauty. On this full moon we enjoy dwelling in peace & contentment with Mother Nature. Enjoy the softness of your environment & be good to yourself. Goddess Snotra is the Goddess of wisdom, beauty & gentleness. She encourages us to be kind towards oneself in summertime. To enjoy the beauty of nature & all that surrounds you. Now is the perfect season for walks in nature & to enjoy sacred times with Mother Earth. Even visit hot springs or sacred waters in your area, & enjoy quiet times with yourself.

The Full Moon brings special summer blessings as we are still close to the high energies of Summer Solstice, so enjoy the powerful moonlight on this Full Moon. Give yourself the gift of quiet walks in nature - in total silence - & listen to Mother Earth around you. Bring your attention to the sacredness of nature - & be willing to hear what she whispers to you in summer.

Even though Mother Earth is full of fiery energies of summertime - She is also offering us her quiet, soft embrace. Encouraging us to dwell with Her - & give in to beauty.

Have you taken a deep breath today?

Enjoy the summer dear friends!

May all our dreams come true! 🩷

( Unnur Arndísardóttir)

Góðan daginn 🩷 hugleiðing dagsins 🩷🙏
26/06/2026

Góðan daginn 🩷 hugleiðing dagsins 🩷🙏

Vorhátíð 💛Gyðjuathöfn til fögnuðar voriJógahornið - Laugardag 11.apríl 2026Laugardaginn 11.apríl fögnum við Gyðjunni Fre...
07/04/2026

Vorhátíð 💛

Gyðjuathöfn til fögnuðar vori

Jógahornið - Laugardag 11.apríl 2026

Laugardaginn 11.apríl fögnum við Gyðjunni Freyju og komu vorsins með Gyðjuhátíð, í Jógahorninu í Þorlákshöfn.

Við komum saman til fögnuðar vorsins og vorgyðjunnar - en einnig til að fagna systralaginu og töfrum Íslandsdætra.

Vorið læðist að í mildi sinni og fegurð, og færir okkur tækifæri til að skoða hvaða fræ það eru sem við viljum næra og gefa líf inn í sumar og bjartari daga.

Náttúran í vorinu sínir okkur hugrekki sitt og kraft, þegar Móðir Jörð fæðir á ný vorið og fegurðina. Það eru töfrandi tímar framundan og við tökum fagnandi á móti bjartari dögum.

Freyja - Ástargyðjan sem kveikir ástríðuna í maganum og kærleikann í hjartanu. Freyja birtist í náttúrunni á þessum árstíma sem brumið á trjánum, sem mjúkur vordagur þar sem blærin kyssir kinn, og sem fallegt vorblóm sem gleður hjartað. Hún minnir okkur á vonina og trúnna á að jafnvel eftir langan, dimman veturinn kemur ljúft sumarið að lokum.

Freyja kennir okkur að elska, okkur sjálfar og aðra. Hún færir blessun vorsins, og minnir okkur á að tileinka okkur eiginleika náttúrunnar að vori og leyfa okkur að blómstra eftir langan veturinn. Hún blessar líkama okkar með mýktinni og sjálfskærleikanum.

Í þessari Freyjuathöfn tileinkaðri Gyðjunni Freyju útbúum við ástargaldur og kærleiksaltari tileinkað Móður Jörð, við fáum hreinsun og blessun sem veitir okkur styrk í að trúa og treysta enn betur á kærleikann og ljósið sem býr innra með okkur öllum. Við hugleiðum og óskum okkur, og þannig göngum hugrakkari til móts við sumarið.

Allar konur hjartanlega velkomnar.

Hvar: Jógahornið, Unubakka 4, Þorlákshöfn.
Hvenær: Laugardaginn 11.apríl kl 13:00
Hvað kostar: 7.000 kr

Skráning og nánari upplýsingar hjá Unni Arndísar í síma 696-5867 eða á [email protected]

Nánari upplýsingar má finna hér:

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu dagana 9.apríl, 10.apríl og 12.apríl ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 s...
06/04/2026

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu dagana 9.apríl, 10.apríl og 12.apríl ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir neðan.

Gleðilega páska 💛🐣
02/04/2026

Gleðilega páska 💛🐣

Góðan daginn 💞 smá pistill í morgunsárið 💞 mig langar svo að mæla með þessari bók “ Hugsanir hafa vængi “ ég byrjaði að ...
25/02/2026

Góðan daginn 💞 smá pistill í morgunsárið 💞 mig langar svo að mæla með þessari bók “ Hugsanir hafa vængi “ ég byrjaði að hlusta á hljóðbókina sem er ekki síðri en að lesa en hef hlustað á hana nokkrum sinnum af og til og ákvað svo að kaupa mér bókina 👌höfundur er Konráð Adolphson stofnandi Dale Carnegie á Íslandi en ég var einmitt á DC námskeiði hjá honum fyrir 30 árum 💞það er magnað hvað hugurinn hefur mikið áhrif á líf okkar og framkvæmdir hvernig við tölum, viðhorf okkar, ákvarðanir og tilfinningar. Hegðun okkar og samskipti byggjast á hugsunum okkar en við höfum val , hvort þær eru neikvæðar eða jákvæðar. Við þurfum líka að skilja þennan gífurlega kraft að baki hugsuninni sem tengist árangri okkar í lífinu ❤️🙏 ég er alltaf með mína bók sjáanlega og gríp oft í hana á morgnana og tek einn og einn kafla 👌 við þurfum að vinna með hugann rækta hann eins og líkamann og allt helst þetta í hendur að halda jafnvægi bæði andlega og líkamlega og að vera meðvitaður með sínar hugsanir og hvað það er sem skiptir okkur máli í lífinu ❤️ við byrjum alltaf á okkur sjálfum að hlúa vel að okkur bæði andlega og líkamlega svo við getum hlúað að öðrum . Njôtið hvers dags, þökkum fyrir hvern dag og góða heilsu ❤️🙏 eigið góðan dag ❤️

Address

Unubakki 4
Þorlákshöfn
815

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jógahornið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share