29/08/2026
RÍKIÐ LEGGUR KOMUGJÖLD Á SJÚKRAÞJÁLFUN
Frá og með 1. september 2026 munu komugjöld verða lögð á þjónustu sjúkraþjálfara sem starfa skv. samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Sjúkraþjálfurum er gert að innheimta þessi komugjöld við hverja komu viðskiptavina sinna. Þetta er gert samkvæmt reglugerðarbreytingu frá Heilbrigðisráðherra. Þessi komugjöld falla utan greiðsluþátttökukerfis heilbrigðisþjónustunnar og eru alltaf sama upphæð óháð tímafjölda eða lengd meðferðar.
Þessi hækkun rennur ekki til sjúkraþjálfara heldur hins opinbera og er þannig verið að draga úr kostnaðarþátttöku hins opinbera varðandi sjúkraþjálfun.
Við höfum fengið mjög litlar upplýsingar um útfærslu á þessari framkvæmd og bendum þeim sem óska eftir frekari upplýsingum að hafa samband við Sjúkratryggingar Íslands.