Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri 🚑 SAk er annað tveggja sérgreina-sjúkrahúsa landsins og gegnir lykilhlutverki í almannavörnum. Hefur þú áhuga á starfi hjá SAk?

Fylgdu endilega Facebook síðunni okkar "Störf á Sjúkrahúsinu á Akureyri: https://www.facebook.com/StorfaSAk



Fyrirvari um birtingu efnis á síðunni:

Það er velkomið að setja inn athugasemdir og umsagnir á síðu Sjúkrahússins á Akureyri svo fremi sem efnið tengist starfsemi sjúkrahússins og er málefnanlega fram sett. Séu einstaklingar nafngreindir eða efni umsagnar auðrekjanlegt til einstaklinga

annarra en höfundar er það fjarlægt. Hér eru ekki veitt svör við persónulegum heilsufarsvandamálum og síðan er ekki vettvangur til að koma á framfæri kvörtunum vegna tiltekinna starfsmanna eða einstakra atvika. Í slíkum tilvikum bendum við gestum á að nota formlegar leiðir sem finna má á vefsíðu SAk http://www.sak.is/is/sjuklingar-adstandendur/rettindi-thin-sem-sjuklings

Ummæli eða athugasemdir sem fela í sér meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi ummæli um einstaklinga eða hópa, ásakanir um refsiverða háttsemi eða hvatningu til að fremja afbrot verða fjarlægð. Hver sá sem skrifar ummæli eða athugasemd á síðu sjúkrahússins gerir það á eigin ábyrgð. Myndir á síðunni úr starfi Sjúkrahússins á Akureyri er ekki heimilt að birta í fjölmiðlum eða með öðrum sambærilegum hætti nema með leyfi SAk.

Á lungnamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri stendur nú yfir metnaðarfullt tilraunaverkefni um fjarvöktun einstaklinga með l...
08/07/2026

Á lungnamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri stendur nú yfir metnaðarfullt tilraunaverkefni um fjarvöktun einstaklinga með langvinna lungnasjúkdóma sem hjúkrunarfræðingar sinna. Verkefnið hófst í febrúar og stendur yfir í eitt ár. Markmið þess er að nýta stafrænar heilbrigðislausnir til að efla þjónustu, auka öryggi sjúklinga og styðja við sjálfstæði þeirra í daglegu lífi. 👇

Á lungnamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri stendur nú yfir metnaðarfullt tilraunaverkefni um fjarvöktun einstaklinga með langvinna lungnasjúkdóma sem hjúkrunarfræðingar sinna.

Ásgeir Örn Jónsson, sérfræðingur í bráðalækningum, hefur verið ráðinn forstöðulæknir bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akur...
08/07/2026

Ásgeir Örn Jónsson, sérfræðingur í bráðalækningum, hefur verið ráðinn forstöðulæknir bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Ásgeir Örn Jónsson, sérfræðingur í bráðalækningum, hefur verið ráðinn forstöðulæknir bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Ásgeir lauk læknanámi frá Háskólanum í Debrecen í Ungverjalandi. Hann hefur víðtæka starfsreynslu og hefur starfað á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Kirkjubæjarklaustri, Akranesi, Höfn og Akureyri. Auk þess hefur hann starfað á Landspítala og við Skånes universitetssjukhus í Lundi í Svíþjóð.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri til að leiða starfsemi bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Ég hlakka til að takast á við þetta spennandi og krefjandi hlutverk og starfa með því öfluga teymi sem sinnir bráðaþjónustunni. Bráðalækningar byggja á góðri samvinnu, fagmennsku og stöðugri þróun, og markmið mitt er að leggja mitt af mörkum til að efla þjónustuna enn frekar, skapa gott starfsumhverfi og tryggja að sjúklingar fái örugga og góða umönnun,“ segir Ásgeir.

Við bjóðum Ásgeir hjartanlega velkominn til starfa á Sjúkrahúsinu á Akureyri og óskum honum velfarnaðar í nýju hlutverki.

Akureyrarklíníkin í samvinnu við Landspítala er einn af þátttakendum í nýju alþjóðlegu rannsóknaverkefni um ME sjúkdómin...
03/07/2026

Akureyrarklíníkin í samvinnu við Landspítala er einn af þátttakendum í nýju alþjóðlegu rannsóknaverkefni um ME sjúkdóminn sem hlotið hefur styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe. Verkefnið markar mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindarannsóknir á ME og sameinar vísindafólk, heilbrigðisstarfsfólk og fulltrúa sjúklinga frá meira en tuttugu rannsóknastofnunum í Evrópu og Kanada.

Sjá nánar í meðfylgjandi frétt 👇

Akureyrarklíníkin í samvinnu við Landspítala er einn af þátttakendum í nýju alþjóðlegu rannsóknaverkefni um ME sjúkdóminn sem hlotið hefur styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe. Verkefnið markar mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindaran...

Akureyrarklíníkin í samvinnu við Landspítala er einn af þátttakendum í nýju alþjóðlegu rannsóknaverkefni um ME sjúkdómin...
03/07/2026

Akureyrarklíníkin í samvinnu við Landspítala er einn af þátttakendum í nýju alþjóðlegu rannsóknaverkefni um ME sjúkdóminn sem hlotið hefur styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe. Verkefnið markar mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindarannsóknir á ME og sameinar vísindafólk, heilbrigðisstarfsfólk og fulltrúa sjúklinga frá meira en tuttugu rannsóknastofnunum í Evrópu og Kanada.

Sjá nánar í meðfylgjandi frétt

Akureyrarklíníkin í samvinnu við Landspítala er einn af þátttakendum í nýju alþjóðlegu rannsóknaverkefni um ME sjúkdóminn sem hlotið hefur styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon Europe. Verkefnið markar mikilvæg tímamót í evrópsku samstarfi um lífvísindaran...

Dr. Björn Gunnarsson, klínískur gæðastjóri á SAk og sérfræðingur í barnalækningum, barnagjörgæslulækningum og svæfinga- ...
01/07/2026

Dr. Björn Gunnarsson, klínískur gæðastjóri á SAk og sérfræðingur í barnalækningum, barnagjörgæslulækningum og svæfinga- og gjörgæslulækningum er aðalhöfundur nýrrar yfirlitsgreinar sem birtist í júníhefti Læknablaðsins. Meðhöfundar greinarinnar eru Bergþór Steinn Jónsson, sérfræðingur í bráðalækningum og bráðalækningum barna á SAk og dr. Theódór Skúli Sigurðsson sérfræðingur sérfræðingur í barnasvæfinga- og gjörgæslulækningum á LSH.

Lesa nánar hér 👇

Dr. Björn Gunnarsson, klínískur gæðastjóri á SAk og sérfræðingur í barnalækningum, barnagjörgæslulækningum og svæfinga- og gjörgæslulækningum er aðalhöfundur nýrrar yfirlitsgreinar sem birtist í júníhefti Læknablaðsins. Meðhöfundar greinarinnar eru Bergþór Steinn Jóns...

🧡 Sólveig Hulda, móðir, eiginkona, amma, vinkona og samstarfskona, lést skyndilega 22. febrúar 2026. Aðeins þremur mánuð...
22/06/2026

🧡 Sólveig Hulda, móðir, eiginkona, amma, vinkona og samstarfskona, lést skyndilega 22. febrúar 2026. Aðeins þremur mánuðum síðar fæddist barnabarn hennar og nafna, Sólveig Hulda Egilsdóttir, þann 15. maí 2026 en hún kvaddi eftir aðeins einn dag í þessum heimi 🧡

Til að heiðra minningu þeirra hafa aðstandendur stofnað hlaupahóp og söfnun styrkja til að safna fyrir Hollvinasamtök SAk í Reykjavíkurmaraþoninu. Sólveig Hulda eldri starfaði á Sjúkrahúsinu á Akureyri og bar hag spítalans og fólksins þar fyrir brjósti. Aðstandendur segja: „Hún studdi Hollvinasamtökin af heilum hug og því finnst okkur sérstaklega viðeigandi að láta söfnunina renna til þeirra. Með þessari söfnun viljum við láta eitthvað fallegt leiða af okkur í þessari ólýsanlegu sorg. Við viljum heiðra minningu tveggja dýrmætra Sólveigar sem skildu eftir sig meira ljós, meiri ást og meiri áhrif en orð fá lýst. Takk fyrir að hlaupa með okkur, styrkja málefnið eða minnast þeirra með okkur. Hver stuðningur skiptir máli og hjálpar okkur að halda minningu þeirra á lofti.“

Til þess að sameina hlaupara enn frekar á þessum stóra degi, hvort sem fólk ætlar að hlaupa, standa á hliðarlínunni og hvetja eða einfaldlega sýna stuðning, hafa aðstandendur Sólveigar látið útbúa bol sem hægt er að kaupa frá Craft. Ef þú hefur áhuga á að eignast bol þá getur þú pantað hann á hlekk sem fylgir hér með í ummælum.

Stjórn Hollvina SAk hvetja alla sem tök hafa á til þess að hlaupa í þeirra nafni og taka þátt í söfnuninni „Við í stjórn Hollvina SAk munum ekki láta okkar eftir liggja, við ætlum að vera með stuðningsstöð og hvetja hlaupara til dáða. Á sama tíma viljum við senda okkar kærleika til allra þeirra sem eiga um sárt að binda við þennan ólýsanlega og óskiljanlega missi.“ segir Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður stjórnar Hollvinasamtaka SAk.

Hlaupa fyrir Hollvinasamtök SAk

Það var svo sannarlega glatt á hjalla á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gær þegar skrifað var undir samning vegna fyrsta áfang...
19/06/2026

Það var svo sannarlega glatt á hjalla á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gær þegar skrifað var undir samning vegna fyrsta áfanga nýbyggingar við SAk og fyrsta skóflustungan tekin 👏

Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri hafa gefið gjörgæslu- og lyflækningadeild sjúkrahússins tíu nýjar BiPAP-öndunarvélar ...
16/06/2026

Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri hafa gefið gjörgæslu- og lyflækningadeild sjúkrahússins tíu nýjar BiPAP-öndunarvélar sem munu efla verulega getu SAk til að veita sjúklingum með öndunarfærabilun nauðsynlegan öndunarstuðning.

Að sögn Brynju Drafnar Tryggvadóttur, deildarstjóra gjörgæsludeildar, er með vélunum hægt að bjóða upp á fjölþætta meðferð fyrir fólk með ýmiss konar öndunarfærabilanir:

„Þetta eru öndunarvélar sem veita ytri öndunarstuðning og bjóða upp á fjölþætta meðferð, allt frá háflæði súrefnismeðferð yfir í öndunarstuðning með þrýstingi sem hjálpar fólki að draga andann. Vélarnar hafa einnig þann valmöguleika að nýtast sem varaöndunarvélar fyrir alvarlega veika sjúklinga sem eru sofandi í öndunarvél. Það tryggir að við eigum ávallt nægilega margar vélar til að veita nauðsynlegan stuðning,“ segir Brynja og bætir við "„Það er ómetanlegt fyrir okkur sem stofnun að fá gjafir og styrki líkt og Hollvinir veita okkur, enda skiptir það miklu máli að finna stuðning samfélagsins við starfsemi SAk. En fyrst og fremst er þetta auðvitað ómetanlegt fyrir sjúklingana okkar, því með þessum búnaði getum við veitt þeim bestu mögulegu þjónustu.“

Lesa má nánar um þessa góðu gjöf hér: https://island.is/s/sak/frett/hollvinir-sak-gefa-sjukrahusinu-a-akureyri-tiu-nyjar-bipap-oendunarvelar

Árlegt styrktar og árgjald Hollvina er 6.000 kr, hægt er að skrá sig hér: https://www.hollvinir.is/services

Töluvert fleiri börn hafa komið í heiminn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri í ár, en á sama tíma í fyrra. Fréttas...
11/06/2026

Töluvert fleiri börn hafa komið í heiminn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri í ár, en á sama tíma í fyrra. Fréttastofa RÚV kíkti í heimsókn til okkar 🍼

Töluvert fleiri börn hafa komið í heiminn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri í ár, en á sama tíma í fyrra. Fréttastofa hitti barn númer 210 og nýbakaða foreldrana.

Útskrift Sjúkraflutningaskólans 2026 fór fram á Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli þann 29. maí sl. Útskrifaðir voru...
09/06/2026

Útskrift Sjúkraflutningaskólans 2026 fór fram á Flugsafni Íslands á Akureyrarflugvelli þann 29. maí sl.

Útskrifaðir voru 265 nemendur eftir síðasta skólaár.

✅92 grunnréttindi sem sjúkraflutningamenn (EMT)
✅32 útskrifuðust með framhaldsmenntun (AEMT)
✅141 kláruðu vettvangsliðanám (EMR)

Ávarp fluttu Ingimar Eydal skólastjóri, Hermann Marinó Maggýjarson umsjónarmaður AEMT og bráðatæknir, Dagmar Lillja Hreiðarsdóttir nýútskrifaður grunnnemi EMT og Henrike Stuhff nýútskrifaður framhaldsnemi AEMT.

Vel var mætt og stemming góð!

Address

Eyrarlandsvegur
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjúkrahúsið á Akureyri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category