17/02/2022
Að leyfa sér að tjá ást til maka síns og líka taka erfiðu samtölin.
Í samtölum mínum við pör verð ég oft vör við að fólk heldur aftur að sér í samskiptum við makann sinn. Fólk þorir stundum ekki að sýna ást og nánd að hættu við að upplifa höfnun eða vandræðaleg augnablik, fólk þorir oft ekki heldur að eiga erfið samtöl sem geta tekið á báða einstaklinganna. Stundum eigum við erfitt með að berskjalda okkur gangavart makanum og tjá okkur á þann hátt sem gerir okkur nánari, það getur komið í veg fyrir að við fáum það mesta út úr sambandinu og þann stuðning sem við þurfum hjá maka okkar. Við erum öll ólík, erum alin upp á mismundandi hátt og því getur ólík upplifun okkar á samskiptum og/eða skortur á samskiptum staðið í vegi fyrir á að við getum náð hámarksgleði og hamingju með makanum okkar! Því er fólk oft í fullri vinnu við að velta því fyrir sér hvað makinn er að hugsa og jafnvel í hálfu starfshlutfalli við að senda hugsanir til makans, með von um að þær hugsanir skili sér. Í mínu starfi sem meðferðaraðili sé ég mörg dæmi þess að fólk leyfir sér ekki að ræða tilfinningar og eru því stundum að burðast með hluti úr sambandinu, sem eru kannski ekkert stórmál í upphafi en verða það á endanum, því þau eru ekki rædd. Því verður oft um einhverskonar snjóboltaáhrif að ræða og parið upplifir vandamálin sem óyfirstíganleg og íhugar jafnvel skilnað.
Störf okkar sem vinna með pörum fela oft í sér einhvers konar túlkaþjónustu – þ.e. við hjálpum fólki að skilja hvort annað, með því að aðstoða þau við að tjá sig og umfram allt átta sig betur á tilfinningum sínum og viðbrögðum sínum í samskiptum við makann. Oft þarf ekki mikið til að sambandið batni og hamingja einstaklinganna aukist. Þar að auki þarf ekki að vera einhver stórvægilegur vandi til staðar til að pör leiti sér aðstoðar, fólki hættir nefnilega til að líta svo á að það sé að nálgast endastöð í sambandinu ef þau telja þörf fyrir parameðferð. Það er þá hægt að líkja því við að fólk fer ekki til tannlæknis fyrr en allar tennurnar eru dottnar úr. Hvenær förum við til tannlæknis? Þegar við fáum tannpínu eða jafnvel áður en við fáum tannpínu, til að viðhalda góðri tannheilsu. Það er eins með parasambandið, oft þarf smá aðstoð frá fagaðila til að takast á við vandamálin, og jafnvel koma í veg fyrir þau. Að leita sér aðstoðar í sambandinu er styrkur, ekki veikleiki og getur haft fyrirbyggjandi áhrif, leitt til meiri hamingju og gleði. Aukin þekking og innsýn á tilfinningum þínum og maka þíns eykur oftast nánd og samstöðu í sambandinu.
Guðrún Kristín Blöndal, veiti para- og fjölskyldumeðferð hjá Sálfræðiþjónustu Norðurlands, hægt er að panta tíma í síma 865-6675 eða [email protected]
Hjóna- og parameðferð hjá STRANDGÖTU - sálfræði-& fjölskyldumeðferð.