Vellíðanarsetrið

Vellíðanarsetrið Vellíðanarsetrið er staðsett á Urriðaholtsstræti 18. Markþjálfun, ráðgjöf, námskeið og

Skráning hafin á sumarnámskeið Gleðiskruddunnar. ✨Tryggðu þínu barni pláss á glediskruddan.is⚡️Jákvæð sálfræði⚡️Sjálfsþe...
07/04/2022

Skráning hafin á sumarnámskeið Gleðiskruddunnar. ✨

Tryggðu þínu barni pláss á glediskruddan.is

⚡️Jákvæð sálfræði
⚡️Sjálfsþekking
⚡️Vellíðan
⚡️Gleði og gaman
⚡️Leikir
⚡️Útivera

Gleðiskruddunámskeið í febrúar✨Gleðiskruddan býður upp á námskeið fyrir börn á aldrinum 7-9 ára og 10-12 ára sem byggja ...
03/02/2022

Gleðiskruddunámskeið í febrúar✨

Gleðiskruddan býður upp á námskeið fyrir börn á aldrinum 7-9 ára og 10-12 ára sem byggja á jákvæðri sálfræði. Lögð er áhersla á að efla sjálfsþekkingu ásamt því að kenna aðferðir sem auka vellíðan. ✨

Helstu áherslur eru að efla:
🧠Sjálfsþekkingu
🧠Bjartsýni og von
🧠Styrkleika
🧠Trú á eigin getu
🧠Gróskuhugarfar
🧠Núvitund

Skráning á https://glediskruddan.is/namskeid-fyrir-born/

Dagsetningar í boði:
5.-6. febrúar: helgarnámskeið
*7-9 ára*
*10-12 ára*

Námskeiðið fer fram í Vellíðanarsetrinu, Urriðaholtsstræti 18.

Kundalini Activation✨Marta Dröfn er að byrja með nýja tíma á mánudögum!Mælt er með því að þú mætir í þægilegum fatnaði. ...
03/01/2022

Kundalini Activation✨
Marta Dröfn er að byrja með nýja tíma á mánudögum!
Mælt er með því að þú mætir í þægilegum fatnaði. Dýnur, teppi og púðar eru á staðnum. Þú liggur einfaldlega á jógamottu og
eða teppi á gólfinu í u.þ.b. klukkustund, færð snertingu yfir ákveðna punkta líkamans, s.s. enni, bringubein, lófum og iljum og lífsorkan leitar þangað sem hennar er þörf. Stundum finnst þátttakendum eins og þeir séu límdir við gólfið, þeir ná dýpri slökun en nokkru sinni fyrr (eins og í djúpu hugleiðsluástandi) á meðan aðrir upplifa líkamleg viðbrögð, t.d. ósjálfráðar hreyfingar, skjálfta, danshreyfingar eða hláturskast. Allt er þetta eðlilegt þegar lífsorkan þín fer af stað.

Upplifunin er einstaklingsbundin og 90% þátttakenda finna svörun í fyrsta tíma. Fyrir einstaka aðila tekur nokkra tíma að ná fyrstu viðbrögðum. Tilfinningarleg hreinsun getur átt sér stað í tímunum, svo sem gömul sorg eða reiði, en öll viðbrögð þín, bæði andleg og líkamleg, eru rétt fyrir þig á hverjum tíma. Margir einstaklingar finna fyrir breytingum næstu daga eftir Kundalini activation tíma, svo sem betri svefn, meira jafnvægi, jákvæðara lundarfari, ánægjulegri samskiptum og almennt meiri vellíðan í lífinu.
Verð: 5000 kr fyrir tímann.

Tími: Mánudagar kl. 19:00-20:30

Skráning: [email protected]

*Námskeið 2022*Gleðiskruddan býður upp á námskeið fyrir börn á aldrinum 7-9 ára og 10-12 ára sem byggja á jákvæðri sálfr...
30/12/2021

*Námskeið 2022*

Gleðiskruddan býður upp á námskeið fyrir börn á aldrinum 7-9 ára og 10-12 ára sem byggja á jákvæðri sálfræði. Lögð er áhersla á að efla sjálfsþekkingu ásamt því að kenna aðferðir sem auka vellíðan. ✨

Helstu áherslur eru að efla:
🧠Sjálfsþekkingu
🧠Bjartsýni og von
🧠Styrkleika
🧠Trú á eigin getu
🧠Gróskuhugarfar
🧠Núvitund

Skráning á https://glediskruddan.is/namskeid-fyrir-born/

Dagsetningar í boði:
27.janúar: 8 vikna námskeið
5.-6. febrúar: helgarnámskeið
*7-9 ára*
*10-12 ára*

23/10/2021

♡Jóga til þín♡

*Jóga til þín* er hugsað sem falleg gjöf frá þér til þín.

Ég, Hildur Rut, stend að baki *Jóga til þín* en ég hef stundað jóga í rúmlega 10 ár. Hot yoga framan af með mestan áhuga á kröftugu jóga. En nú með aukinni áherslu á slökun og hugrækt.

☆ 200 klst Anusara jógakennaranám frá
Shree Yoga jan 2020
☆ Breath Coach frá Yoga Teachers College í Barcelona des 2020

*Jóga til þín* varð til þegar ég fór að hlusta á mína innri rödd og draum um að áhugamál og ástríða mættu gjarnan taka meira pláss í mínu lífi.

Mig langar að gefa áfram þessa gjöf sem jóga hefur verið fyrir mig. Markmiðið mitt er að gefa ykkur góða upplifun og leggja áherslu á að aðlaga æfingarnar að hverjum og einum.
Ennfremur er það mín ósk að öllum liði vel og upplifi sig sem hluta af góðum hóp 🙏🏻

Ég kenni blöndu af hatha og vinyasa, stundum með smá power jóga ívafi.
Tímarnir eru fjölbreyttir en þú munt samt finna sameiginlegan tengipunkt með þeim öllum.
Allir tímar enda svo á endurnærandi slökun.

Frá því í mars hef ég haft aðstöðu í Vellíðanarsetrið í Urriðaholti og býð upp á námskeið og opna tíma.

Ég býð einnig upp á einkatíma. Bæði fyrir byrjendur sem vilja fara betur í grunnstöðurnar og fá meiri aðlögun í stöðunum, gaman fyrir t.d. mæðgur sem vilja eiga fallega mæðgnastund eða jafnvel litla hópa sem vilja njóta saman.
Tímar eru þá sniðnir eftir þörfum og áhuga hvers og eins ♡

Hægt er að hafa samband við mig í gegnum Facebook, [email protected] eða á Instagram . Allar fyrirspurnir velkomnar.

Hlakka til að sjá ykkur á dýnunni!
- Hildur Rut -

Address

Urriðaholtsstræti 18
Garðabær
210

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vellíðanarsetrið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share