HSN - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

HSN - Heilbrigðisstofnun Norðurlands HSN - Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Heilbrigðisstofnun Norðurlands tók til starfa þann 1.

október 2014 við sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi annarra en Sjúkrahússins á Akureyri og nokkurra hjúkrunar- og dvalarheimila.

Þær heilbrigðisstofnanir sem mynduðu Heilbrigðisstofnun Norðurlands voru eftirfarandi stofnanir:

Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Heilsugæslan á Akureyri, Heilsugæslan á Dalvík, Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð, Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki og Heilbrigðiss

tofnunin Blönduósi. Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands nær því frá Blönduós í vestri til Þórshafnar í austri. Á upptökusvæðinu búa um 35.000 manns og starfsmannafjöldi er um 500 talsins. Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu auk öldrunarþjónustu í formi hjúkrunar- og dvalarrýma.

Yfir 90% ánægja með þjónustu HSN  Í þjónustukönnun HSN 2025 fær starfsfólk sérstaklega háar einkunnir fyrir viðmót og fa...
04/08/2026

Yfir 90% ánægja með þjónustu HSN

Í þjónustukönnun HSN 2025 fær starfsfólk sérstaklega háar einkunnir fyrir viðmót og fagmennsku. Viðmót starfsfólks mælist 4,7 af 5 í einkunn og eykst á milli ára. Þetta hvetur okkur sannarlega til dáða!

Sjá Ársskýrslu HSN 2025 ⬇
https://island.is/s/hsn/arsskyrslur

Heimahjúkrun í tölum Starfsfólk heimahjúkrunar fór í 70.194 heimsóknir árið 2025 Það er mikilvægt að geta boðið upp á að...
28/07/2026

Heimahjúkrun í tölum

Starfsfólk heimahjúkrunar fór í 70.194 heimsóknir árið 2025

Það er mikilvægt að geta boðið upp á aðstoð og hjúkrun heima fyrir, að fólk geti fengið þjónustu, öryggi og stuðning þar sem fólki líður best.

Sjá Ársskýrslu HSN 2025 ⬇
https://island.is/s/hsn/arsskyrslur

Sjúkraflutningar – þegar mest liggur við Á síðasta ári voru framkvæmdar 5.018 sjúkraferðir á starfssvæði HSN. Sjúkraflut...
23/07/2026

Sjúkraflutningar – þegar mest liggur við

Á síðasta ári voru framkvæmdar 5.018 sjúkraferðir á starfssvæði HSN. Sjúkraflutningafólkið okkar þarf oft að keyra langar leiðir við allskonar aðstæður, allan ársins hring.

Sjá Ársskýrslu HSN 2025 ⬇
https://island.is/s/hsn/arsskyrslur

HSN Dalvík/Fjallabyggð auglýsir spennandi störf:-Sjúkraliði-Aðhlynning og býtibúr-Hjúkrunarfræðingar-Eldhús á Hornbrekku...
21/07/2026

HSN Dalvík/Fjallabyggð auglýsir spennandi störf:

-Sjúkraliði
-Aðhlynning og býtibúr
-Hjúkrunarfræðingar
-Eldhús á Hornbrekku.

Nánari upplýsingar um störfin er að finna inn á www.starfatorg.is en umsóknarfrestur er til 10. ágúst nk.

Á Starfatorginu er að finna upplýsingar um laus störf hjá ríkinu.

HSN er einn stærsti vinnustaðurinn á Norðurlandi en yfir 1.000 manns voru á launaskrá HSN árið 2025 ✨1.038 starfsmenn ✨7...
20/07/2026

HSN er einn stærsti vinnustaðurinn á Norðurlandi
en yfir 1.000 manns voru á launaskrá HSN árið 2025

✨1.038 starfsmenn

✨747 að meðaltali við störf

✨502 stöðugildi

Starfsfólk staðsett víðsvegar um Norðurlandið, frá Blönduósi til Þórshafnar.

Sjá ársskýrslu HSN ⬇
https://island.is/s/hsn/arsskyrslur

Í vor héldum við í fyrsta sinn Vísinda- og fræðsludag HSN og óhætt er að segja að dagurinn hafi tekist einstaklega vel. ...
16/07/2026

Í vor héldum við í fyrsta sinn Vísinda- og fræðsludag HSN og óhætt er að segja að dagurinn hafi tekist einstaklega vel. 💙

Á deginum fengum við tækifæri til að varpa ljósi á hluta af þeirri fjölbreyttu og mikilvægu vinnu sem fram fer innan HSN á hverjum degi. Starfsfólk kynnti rannsóknir, þróunarverkefni og nýjar lausnir sem endurspegla vel þá þekkingu, fagmennsku og metnað sem býr innan okkar raða.

Við erum afar stolt af okkar öfluga starfsfólki og þakklát öllum sem lögðu sitt af mörkum til að gera daginn að því sem hann varð. Frábærar viðtökur hafa styrkt okkur í þeirri trú að svona vettvangur eigi fullt erindi til framtíðar og stefnum við á að halda Vísinda- og fræðsludag HSN með reglubundnum hætti.

Hér má sjá stutt myndband frá deginum. ✨

Vísinda- og fræðsludagur HSN er opinn, faglegur vettvangur fyrir st...

Bangsaspítali verður á HSN á Blönduósi á Húnavöku.Föstudaginn 17. júlí frá kl. 12-14. Öll bangsadýr og dúkkur eru hjarta...
15/07/2026

Bangsaspítali verður á HSN á Blönduósi á Húnavöku.
Föstudaginn 17. júlí frá kl. 12-14.

Öll bangsadýr og dúkkur eru hjartanlega velkomin ásamt eigendum sínum.

„Markmiðið er að fólk geti búið heima eins lengi og mögulegt er.“Nýtt endurhæfingarteymi heimahjúkrunar HSN á Akureyri v...
13/07/2026

„Markmiðið er að fólk geti búið heima eins lengi og mögulegt er.“

Nýtt endurhæfingarteymi heimahjúkrunar HSN á Akureyri vinnur með einstaklingum sem þurfa tímabundinn stuðning eftir veikindi, aðgerð eða breytingar á heilsufari. Markmiðið er að hjálpa fólki að endurheimta færni, efla sjálfstraust og geta sinnt daglegu lífi á eigin forsendum.

Frá því þjónustan hófst í janúar hafa 60 einstaklingar lokið endurhæfingu og viðbrögðin verið afar jákvæð💙.

Nánar um starfsemi endurhæfingarteymisins í frétt á vef HSN. Sjá hlekk í fyrstu ummælum ⬇

Geðheilsuteymi barna hjá HSN hefur fengið afhenta rausnarlega gjöf frá Lionsklúbbnum Ylfu sem mun nýtast börnum og fjöls...
08/07/2026

Geðheilsuteymi barna hjá HSN hefur fengið afhenta rausnarlega gjöf frá Lionsklúbbnum Ylfu sem mun nýtast börnum og fjölskyldum þeirra í meðferð og stuðningi. Um er að ræða skynörvunarvörur og fiktileikföng sem henta sérstaklega vel þeim sem hafa taugaþroskafrávik á borð við ADHD og einhverfu, og geta einnig hjálpað við að efla einbeitingu og að draga úr streitu og kvíða.

🙏Við færum Lionsklúbbnum Ylfu innilegar þakkir fyrir hlýhuginn og stuðninginn sem mun hafa raunveruleg áhrif á líðan og velferð barna og fjölskyldna á Norðurlandi og Austurlandi.

Nánar um gjöfina og starfsemi Geðheilsuteymis barna á vef HSN. Sjá hlekk í fyrstu ummælum ⬇

Address

Skrifstofa HSN, Auðbrekka 4
Húsavík
640

Telephone

+3544324800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HSN - Heilbrigðisstofnun Norðurlands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to HSN - Heilbrigðisstofnun Norðurlands:

Shortcuts

Share

Category