Lækur Athvarf Hafnarfirði

Lækur Athvarf Hafnarfirði Lækur er athvarf fyrir einstaklinga sem vilja rjúfa félagslega einangrun. Hér eru allir velkomnir 18. ára og eldri. Hlökkum til að sjá þig!

Hér er alltaf heitt á könnunni og hádegismatur á billegu verði. Margt í boði yfir daginn sjá stundatöflu hér efst á síðunni. Athvarfið Lækur er fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið með starfsemi Lækjar er að draga úr félagslegi eingangur auka lífsgæði og efla félags og líkamlegan vellíðan.



Í Læk er boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

s.s snyrtivörugerð, leikfimi, listsköpun og handverk. Á staðnum er tölvuaðstaða þvotta og baðaðstaða. Lögð er áhersla á heimilislegt og rólegt umhverfi í góðum félagsskap. Þannig á að vera gott að koma og slaka á eða taka þátt í dagskránni. Í boði er morgunverður, hádegisverður og kaffi gegn vægu gjaldi. Hvorki þarf tilvísun né lækna eða annarra til að mæta á staðinn. Hér eru allir á jafningagrundvelli og almenn virðing fyrir náunganum í hávegum höfð.

🎬 BÍÓKVÖLD Á LÆK – I SWEARHvað gerist þegar eitthvað sem þú ræður alls ekki við verður að einhverju sem heimurinn dæmir ...
13/08/2026

🎬 BÍÓKVÖLD Á LÆK – I SWEAR

Hvað gerist þegar eitthvað sem þú ræður alls ekki við verður að einhverju sem heimurinn dæmir þig fyrir?

Í myndinni I SWEAR kynnumst við John Davidson, sem glímir við Tourette-heilkenni og þann mikla misskilning sem fylgdi því á sínum yngri árum. Myndin er bæði fyndin, hjartnæm og mannleg og fjallar um miklu meira en bara Tourette – hún fjallar um vináttu, samkennd, seiglu og mikilvægi þess að fá að vera maður sjálfur. ❤️

Komdu í notalegt bíókvöld á Læk, fáðu þér popp og góða félagsskapinn og njóttu þessarar áhugaverðu myndar með okkur! 🍿🎬

📅 Fimmtudaginn 20. ágúst
🚪 Húsið opnar kl. 18:45
🎥 Myndin byrjar kl. 19:00
📍 Lækur
🍿 Allir velkomnir!

Hausttiltekt Lækjar var tekin í dag, endilega komdu við og athugaður hvort þú eigir eitthvað í óskilamununum :) Og ef þú...
12/08/2026

Hausttiltekt Lækjar var tekin í dag, endilega komdu við og athugaður hvort þú eigir eitthvað í óskilamununum :)

Og ef þú hefur ekki orðið var við það þá er sólmyrkvi í dag⤵

🌞🌑 SÓLMYRKVI Í DAG! 🌑🌞

Við erum búin að baka nýbakaðar sítrónusmákökur 🍋🍪, koma okkur vel fyrir og erum klár í að fylgjast með þegar tunglið læðist fyrir sólina.

📍 Hér í Hafnarfirði hefst deildarmyrkvinn um kl. 16:47.
🌑 Almyrkvinn hefst um kl. 17:48 og stendur í rúma mínútu áður en sólin fer aftur að gægjast fram. ✨
☀️ Myrkvinn heldur svo áfram sem deildarmyrkvi til um kl. 18:47.

Munið bara eftir viðeigandi sólmyrkvagleraugum – sólin er ekkert að grínast! 😎🕶️

Huggulegur dagur í rigningunni ☕️🌼🌦️Salatbarinn sló í gegn í hádeginu, við létum smá bleytu ekki stoppa okkur og skelltu...
06/08/2026

Huggulegur dagur í rigningunni ☕️🌼🌦️

Salatbarinn sló í gegn í hádeginu, við létum smá bleytu ekki stoppa okkur og skelltum okkur í góðan göngutúr 🚶‍♀️🚶Fyrir kaffi spiluðum við Pictionary og höfðum það notalegt á meðan við hlustuðum á nokkrar vel valdar plötur 🎵

Á morgun verður svo alvöru föstudags fjör; Tai Chi, kjúklingaleggir með frönskum og hrásalati í hádeginu, ganga, spurningaspil og íslenskar pönnukökur með kaffinu 🥰 Sjáumst!

Góðan og blessaðan daginn 👋🏻 Við bjóðum upp á hakk & spagettí, hvítlauksbrauð og salat í þessum skrifuðu orðum 🍝🥖🧄🥗 Á ba...
05/08/2026

Góðan og blessaðan daginn 👋🏻 Við bjóðum upp á hakk & spagettí, hvítlauksbrauð og salat í þessum skrifuðu orðum 🍝🥖🧄🥗 Á baksturs námskeiðinu á eftir munum við svo baka einfaldar og góðar beyglur (með aðeins 3 innihaldsefnum!) 🥯

Matseðill næstu viku er kominn! Verslunarmannahelgin er mætt og vikurnar hafa svo sannarlega flogið fram hjá! ☀️Í dag by...
31/07/2026

Matseðill næstu viku er kominn!

Verslunarmannahelgin er mætt og vikurnar hafa svo sannarlega flogið fram hjá! ☀️

Í dag byrjum við á Tai Chi með Kris, njótum borgara og franska í hádeginu, tökum góðan göngutúr eftir hádegi og endum svo daginn á ljúffengum föstudagspönnukökum. 🥞

Verið velkomin á Læk og eigið yndislegan dag með okkur! 💙

Á Læk er gott að vera 🌞✨🌱
31/07/2026

Á Læk er gott að vera 🌞✨🌱

Þriðjudagurinn er mættur með pompi og prakt! Húsið iðar af lífi, hlátri og góðri stemmningu. Í pottinum kraumar ylmandi ...
28/07/2026

Þriðjudagurinn er mættur með pompi og prakt! Húsið iðar af lífi, hlátri og góðri stemmningu. Í pottinum kraumar ylmandi heit hátíðar-aspassúpa sem fær félagsskap af nýbökuðum brauðbollum, það verður ekki mikið betra!

Bessi okkar er loksins kominn aftur úr sumarfríi, vel endurnærður og tilbúinn að draga okkur út í hressilega göngu. Að göngu lokinni verður svo notaleg föndurstund þar sem sköpunargleðin fær að njóta sín.

Við hlökkum mikið til að sjá ykkur 💛🐕🐾

Gleðilegan föstudag 🌞 Dagskráin í dag er aldeilis ekki af verri endanum! Tai chi með Kris er á sínum stað, í hádeginu ve...
24/07/2026

Gleðilegan föstudag 🌞

Dagskráin í dag er aldeilis ekki af verri endanum! Tai chi með Kris er á sínum stað, í hádeginu verður tortillapizzapartý og svo spilum við tónlistarspilið Hitster á meðan við keppumst við að sporðrenna íslenskum pönnukökum með kaffinu 🥞☕️ Gerist það nokkuð betra?

Sagði einhver salat?... nú þá förum við bara í garðinn! Á Læk ræktum við okkar eigið grænmeti... graslauk, steinselju, k...
01/07/2026

Sagði einhver salat?... nú þá förum við bara í garðinn! Á Læk ræktum við okkar eigið grænmeti... graslauk, steinselju, klettasalat, tómata og ég veit ekki hvað og hvað 😎 Í hádeginu verðu sem sagt kjúklingasalat með allskonar, bökunarnámskeið eftir hádegi og að sjálfsögðu göngutúrinn á sínum stað.

Lækur... og kroppurinn blómstrar! 😎🎵☀🌻🥰

Við höfum ákveðið að fresta árlegu grillveislunni vegna veðurs, ný dagsetning kemur fljótlega!
15/06/2026

Við höfum ákveðið að fresta árlegu grillveislunni vegna veðurs, ný dagsetning kemur fljótlega!

Address

Staðarberg 6
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 10:00 - 16:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lækur Athvarf Hafnarfirði posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share