25/08/2026
Það eru engar skyndilausnir til þess að losa líkamann við langvarandi streitu og álag. Líkaminn fer í ástand þar sem hann er að verja þig og passa upp á þig. Þegar álag er langvarandi þá getur líkaminn fest sig í þessu ástandi og kann ekki að losa sig úr þvi. Það ferli getur tekið tíma, þ.e.a.s að líkaminn læri hægt og rólega að öllu sé óhætt og hann getið gefið eftir og slakað. Til þess að líkaminn fari að gefa eftir þá þarf að róa taugakerfið á markvissan máta. það er hægt gert á ýmsa vegu. Fyrst og fremst þarftu að tengjast líkamanum þinum aftur. Læra að hlusta þegar hann er að gefa þér merki í stað þess að hunsa og halda áfram.
Líkaminn þarf hlustun, athygli, milda hreyfingu, teygjur, slökun. Það er ýmsar aðferðir til þess að tengjast líkamanum og til þess að sefa og róla taugakerfið og veita líkamanum það öryggi sem hann þarf til þess að fara úr baráttu ástandi. Líkamleg og andleg einkenni langvarandi álags getað verið: Streita, spenna, stífir kjálkar, verkir,stirðleiki,óróleiki, eirðarleysi, minnisleyis, depurð, einbeitingaskortur, svefntruflanir,kvíði, stuttur þráðurinn, félagsfælni svo eitthvað sé nefnt. Kannski kannast þú við þetta ástand og langar að reyna að bæta líðan þína. Við hjá Yogahúsinu bjóðum upp á ýmsa tíma sem allir miða að því að sefa og styrkja taugakerfið og liðka líkamann. Vertu velkomin til okkar og ef þú ert ekki viss hvað hentar þér skaltu ekki hika við að senda línu á [email protected] og við leiðbeinum þér. Eins bendum við á námskeiðið Líkaminn gleymir engu sem hefst 3 sept