Slitgigtarskólinn

Slitgigtarskólinn Ertu með verk í hné eða mjöðm?
Þá er Slitgigtarskólinn eitthvað fyrir þig. Sérhæft námskeið til að auka færni og draga úr verkjum í hnjám og mjöðmum.

Slitgigtarskólinn er námskeið til að draga úr verkjum og bæta færni þeirra sem eru með verki í hnjám og mjöðmum. Námskeið sem þetta hefur verið haldið í Svíþjóð og Danmörku í nokkur ár með góðum árangri.
Þeir sjúkraþjálfarar sem sjá um námskeiðið hafa allir öðlast réttindi frá danska slitgigtarskólanum (GLA:D). Námskeiðið byggist upp á tveimur fræðslutímum og 6 vikna þjálfun. Í fræðslutímunum er

fjallað um slitgigt, eðli verkja og þjálfun. Þjálfunin byggir á sérhæfðum æfingum til að auka styrk, draga úr verkjum og bæta færni. Námskeiðið fer fram í húsnæði Sjúkraþjálfarans, Strandgötu 75, Hafnarfirði.

19/01/2016
Áhugaverð umfjöllun um Vefjagigt í vefsjónvarpi Hringbrautar.
09/11/2015

Áhugaverð umfjöllun um Vefjagigt í vefsjónvarpi Hringbrautar.

09/11/2015

Heilsutíminn er heilsuþáttur á Hringbraut og heilsusíður Fréttatímans.
Fjallar um heilsu á víðtækan máta og fær ráðgjöf frá fagfólki

Umfjöllun um Slitgigtarskólann í Fréttatímanum. „Fjöldamargar rannsóknir hafa sýnt að markviss þjálfun og þekking hjálpa...
04/11/2015

Umfjöllun um Slitgigtarskólann í Fréttatímanum.

„Fjöldamargar rannsóknir hafa sýnt að markviss þjálfun og þekking hjálpar en bið og aðgerðarleysi eykur gjarnan vandann,“ segir Jón Þór.

Á námskeiðinu er farið yfir hvað má gera og hvernig til að bæta líðan og lífsgæði. Æft er í litlum hópum, 8-12 manns í einu, þar sem farið er yfir sérhæfðar æfingar sem beinast að mjöðmum og hnjám.

http://www.frettatiminn.is/aukin-lifsgaedi-med-thekkingu-og-rettri-thjalfun/

Slitgigtarskólinn er nýjung á Íslandi sem byggir á fyrirmynd frá Norðurlöndum sem gefið hefur mjög góða raun. Um er að ræða vandað 8 vikna námskeið fyrir fólk með slitgigt í hnjám eða mjöðmum. Markmiðið er að draga úr einkennum slitgigtar og auka lífsgæði með fræðslu og markvissri þjálfun. Námskeiði…

23/09/2015

Þekkir þú einhvern með verk í hné eða mjöðm?
Næsta námskeið Slitgigtarskólans hefst þriðjudaginn 29.september 2015.
Skráning fer fram í Sjúkraþjálfaranum ehf sími 555 4449

Address

Sjúkraþjálfarinn Ehf
Hafnarfjörður
220

Telephone

555 4449

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Slitgigtarskólinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category