Sóltún Sólvangi

Sóltún Sólvangi Sólvangur er rótgróið hjúkrunarheimili í hjarta Hafnarfjarðar. Þessari síðu er ætlað að veita fólki innsýn í daglegt líf íbúa og starfsfólks á Sólvangi.

Sólvangur var vígður 25. október 1953 sem elli- og hjúkrunarheimili. Fæðingardeild tók til starfa 1954 og starfaði til 1976. Síðan þá hefur Sólvangur verið rekið sem hjúkrunarheimili en margt breyst í áranna rás.

08/08/2026
Ungir hönnuðir Hugljóma, sem er nýtt og skemmitlegt samskiptaspil, komu og kynntu spilið á Sólvangi fyrr í sumar. „Huglj...
06/08/2026

Ungir hönnuðir Hugljóma, sem er nýtt og skemmitlegt samskiptaspil, komu og kynntu spilið á Sólvangi fyrr í sumar. „Hugljómi er samskiptaspil fyrir eldra fólk og þá sem eru farnir að gleyma. Spilið er hannað til þess að vekja minningar, skapa samtöl og styrkja tengsl milli kynslóða.“ Við þökkum þeim kærlega fyrir skemmtilega heimsókn💛

Benni prestur kom líka og spilaði á harmonikku og voru því spil og dragspil í boði þennan dag!

Garðarnir á Sólvangi í Hafnarfirði og Sóltúni í Reykjavík eru í sparifötunum þessa dagana🌸🌿☀️
09/07/2026

Garðarnir á Sólvangi í Hafnarfirði og Sóltúni í Reykjavík eru í sparifötunum þessa dagana🌸🌿☀️

Hreyfigleði er gott orð til að lýsa Steinunni Leifsdóttur, íþróttafræðingi á Heilsusetrinu. Steinunn sér um leikfimiþjál...
29/06/2026

Hreyfigleði er gott orð til að lýsa Steinunni Leifsdóttur, íþróttafræðingi á Heilsusetrinu. Steinunn sér um leikfimiþjálfun dvalargesta á Heilsusetrinu og er hún einstaklega hvetjandi, glöð og nær að gera erfiða hluti skemmtilega. Svona konu þarf auðvitað að semja kvæði um og það gerði einn dvalargestur einmitt um daginn. Kvæðið hangir nú uppi í Steinunnarstofu sem er leikfimisalurinn okkar sem er auðvitað nefndur eftir okkar konu😊💪

Hún Steinunn er forkunnarfögur
og fagnar við bresti og brak
en væl og vorkunnarsögur
virðir hún ekki eitt tak

HH, dvalargestur Sóltúns Heilsuseturs 2026

18/06/2026

Við leitum að hæfum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra til að styrkja okkar faglega teymi á hjúkrunarheimilinu Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði. Starfið felur í sér ábyrgð á stjórnun hjúkrunar ásamt ábyrgð á þjónustugæðum og öryggi á...

Sköpunarkrafturinn hættir ekki að heimsækja hugann þó að kroppurinn skelli sér í endurhæfingu og það veit Herdís Egilsdó...
15/06/2026

Sköpunarkrafturinn hættir ekki að heimsækja hugann þó að kroppurinn skelli sér í endurhæfingu og það veit Herdís Egilsdóttir, rithöfundur, kennari í Ísaksskóla og listakona, sem nú dvelur á Heilsusetrinu. Hún kom vel undirbúin í dvölina með efni og tól til listsköpunar og er gluggakistan orðin full af verkum i vinnslu sem munu á endanum mynda annars vegar heila tónlistarstofu fulla af fólki með mismunandi hljóðfæri og hins vegar sveitabæinn Ísbrú og ábúendur. Herdís getur núna hreyft aðra öxlina sem hafði lengið plagað hana eftir að starfsfólk Heilsusetursins náðu að losa hana og mun það eflaust hjálpa við listköpunina. Það er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með heimi Herdísar vaxa og dafna með hverjum deginum!

Árlega er send út þjónustukönnun til íbúa og aðstandenda og erum við stolt af niðurstöðum þjónustukönnunar Sóltúns 2026,...
05/06/2026

Árlega er send út þjónustukönnun til íbúa og aðstandenda og erum við stolt af niðurstöðum þjónustukönnunar Sóltúns 2026, þar sem heildaránægja mælist há á Sóltúnsheimilunum, sem er í samræmi við niðurstöður síðasta árs.

Íbúar og aðstandendur upplifa einnig umhyggju og öryggi og 97% íbúa og 89 % aðstandenda eru á heildina litið ánægð með sitt hjúkrunarheimili.

Helstu niðurstöður eru hér fyrir neðan en ítarlegri umfjöllum er að finna í fréttahluta vefsíðu Sóltúns, www.soltun.is

• 97% íbúa og 94% aðstandenda telja íbúann öruggan á hjúkrunarheimilinu.
• 77% íbúa segja félagsstarf, tómstundir og viðburði góða en 74% aðstandenda
• 92% aðstandenda og 97% íbúa eru ánægðir með hjúkrunarþjónustuna
• 76% aðstandenda og 69% íbúa eru ánægð með matinn
• 97% aðstandenda og íbúa eru sammála því að starfsfólk sýni íbúanum umhyggju.

Address

Sólvangsvegur 2
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sóltún Sólvangi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Sóltún Sólvangi:

Shortcuts

Share