Útfararstofa Hafnarfjarðar

Útfararstofa Hafnarfjarðar Útfararstofa Hafnarfjarðar hefur annast útfararþjónustu fyrir Hafnarfjörð og nágrenni síðan 1997. Sími: 565-5892 og 896-8242.

Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og erum til staðar fyrir aðstandendur á erfiðum tímum. Þjónustusími 565-5892 er opinn allan sólarhringinn. Skrifstofa Útfararstofu Hafnarfjarðar er til húsa á Fjarðargötu 13-15, 220, Hafnarfirði. Þar er einnig góð aðstaða sem prestar/athafnarstjórar og aðstandendur geta rætt saman í næði. Skrifstofan er opin frá 8.00 til 17.00 virka daga, en þjónusta er a

llan sólarhringinn og um helgar. Vegna eðlis starfseminnar eru aðstandendur hvattir til að hringja og bóka viðtalstíma. Samstarfsaðili Útfararstofu Íslands er Útfararstofa Íslands, Auðbrekku 1, Kópavogi, S. 581 3300.

04/07/2026

Sérhver manneskja skilur eftir sig einstaka sögu. Þess vegna leggjum við áherslu á að hver útför sé persónuleg og í samræmi við óskir hins látna og fjölskyldunnar. Sólarhringsþjónusta í síma 565-5892.

28/06/2026

Við erum hér til að styðja aðstandendur með hlýju og fagmennsku þegar mest á reynir. Sólarhringsþjónusta í síma 565-5892.

13/02/2025

Með persónulegri nálgun og virðingu vinnum við náið með aðstandendum að því að skapa kveðjuathafnir sem endurspegla það einstaka og dýrmæta í lífi þess einstaklings sem fallinn er frá. Starfsfólk Útfararstofu Hafnarfjarðar hefur viðamila reynslu af skipulagningu útfara með aðstandendum á erfiðum tímum.

Útfararstofa Hafnarfjarðar hefur annast útfararþjónustu fyrir Hafnarfjörð og nágrenni síðan 1997. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og erum til staðar fyrir aðstandendur á erfiðum tímum. Þjónustusími 565-5892 er opinn allan sólarhringinn.

25/09/2024

Val á útfararþjónustu.

Margir þættir geta ráðið vali nánustu aðstandenda á útfararþjónustu. Oft eru það meðmæli frá öðrum aðstandendum sem hafa haft góða reynslu af tiltekinni útfararstofu og stundum myndast hefð í fjölskyldum að leita til sömu útfararþjónustu. Tillögur frá fulltrúa trúar- eða lífsskoðunarfélags geta skipt miklu máli ásamt öðrum tillögum frá vinum og vandamönnum.

Útfararkostnaður skiptir flesta miklu máli og því er eðlilegt og sjálfsagt að bera saman tilboð frá tveimur eða fleiri útfararstofum. Hafa ber í huga að útfarir geta verið mismunandi kostnaðarsamar, til dæmis hvað varðar val á kistu, tónlistarflutningi eða umgjörð athafnar. Útfararstofa Hafnarfjarðar reynir að mæta þörfum allra aðstandenda þegar kemur að kostnaði við útfarir.

Mikilvægt er að nánustu aðstandendur myndi traust samband við útfararstjóra hjá útfararstofunni og upplifi alúð, traust og persónulega þjónustu á tíma sem yfirleitt er bæði erfiður og viðkvæmur.

Aðstandendur eiga alltaf að hafa valkost um að ákveða hvað þeir vilja sjá um sjálfir og hvaða þætti þeir kjósa að fá aðstoð við. Mörgum finnst það gott að hafa verkefni og hlutverk meðan aðrir hafa þörf fyrir meiri þjónustu og handleiðslu. Við leggjum áherslu á að koma til móts við þarfir aðstandenda á þeirra forsendum.

Útfararstofa Hafnarfjarðar hefur annast útfararþjónustu fyrir Hafnarfjörð og nágrenni síðan 1997. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og erum til staðar fyrir aðstandendur á erfiðum tímum. Þjónustusími 565-5892 er opinn allan sólarhringinn.

27/08/2024

Starfsfólk Útfararstofu Hafnarfjarðar og Útfararstofu Íslands.

Við leggjum áherslu á að veita útfararþjónustu af fagmennsku, virðingu og umhyggju. Starfsfólk okkar býr yfir áratuga reynslu og sérþekkingu á útfararþjónustu. Við erum ávallt reiðubúin til að svara öllum spurningum og leiðbeina aðstandendum við öll skref við skipulagningu útfarar.

Þjónustusími Útfararstofu Hafnarfjarðar er opinn allan sólarhringinn í síma 565-5892.

Með kærri kveðju,

Starfsfólk Útfararstofu Hafnarfjarðar og Útfararstofu Íslands

Útfararstofa Hafnarfjarðar hefur annast útfararþjónustu fyrir Hafnarfjörð og nágrenni síðan 1997. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og erum til staðar fyrir aðstandendur á erfiðum tímum. Þjónustusími 565-5892 er opinn allan sólarhringinn.

Útfararþjónusta á ÍslandiÚtfararþjónusta á Íslandi getur verið mismunandi en þó eru nokkrir grunnþættir sem allar útfara...
31/07/2024

Útfararþjónusta á Íslandi

Útfararþjónusta á Íslandi getur verið mismunandi en þó eru nokkrir grunnþættir sem allar útfararstofur annast. Þessir þættir eru flutningur frá dánarstað, aðstoð við að velja og útvega legstað, snyrting og annar undirbúningur fyrir kistulagningu ásamt umsjón með útför og greftrun.

Útfararstofa Hafnarfjarðar og Útfararstofa Íslands bjóða upp á víðtæka þjónustu við aðstandendur. Þjónusta getur hafist við andlát en aðstandendur geta kallað okkur til allan sólarhringinn. Við getum annast og/eða veitt stuðning við allt ferlið sem aðstandendur þurfa óhjákvæmilega að ganga í gegnum við andlát eða tekið að okkkur þá þætti sem henta hverju sinni.

Við erum aðstandendum innan handar við hin ýmsu mál sem kunna að koma upp, leiðbeinum varðandi skráningar, varðandi umsóknir um útfararstyrki ásamt fleiru. Við leggjum áherslu á að veita alla þá aðstoð sem aðstandendur hafa þörf á hverju sinni en þarfir og óskir aðstandenda geta verið afar mismunandi.

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustusíma 565 5892 (Útfararstofa Hafnarfjarðar) og í síma 581 3300 (Útfararstofa Íslands).

Address

Fjarðargata 13-15
Hafnarfjörður

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Útfararstofa Hafnarfjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share