Gunnhildur Sveinsdóttir sálfræðingur

Gunnhildur Sveinsdóttir sálfræðingur Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Gunnhildur Sveinsdóttir sálfræðingur, Psychologist, Austurmörk 18, Hveragerdi.

Ég hef starfað sem sálfræðingur frá árinu 2012. Ég er með starfsstöð í Hveragerði og sinni meðferð við áfallastreituröskun, kvíðaröskunum, þunglyndi, kulnun, fullkomnunaráráttu og lágu sjálfsmati auk almennrar ráðgjafar.

Um sálfræðinga :)
27/03/2026

Um sálfræðinga :)

Sálfræðiþing er haldið í dag 27. mars.
Pétur Maack Þorsteinsson formaður SÍ er með grein í tilefni dagsins. Sjá fyrstu ummæli.

26/01/2026

Það er mikilvægt að minna sig á þetta

23/01/2026

Þetta

Þetta er mikilvægt, mjög mikilvægt!
22/01/2026

Þetta er mikilvægt, mjög mikilvægt!

Dimmustu mánuðir ársins eru erfiðir fyrir marga. Eftir jólin finna sumir fyrir auknum kvíða og/eða depurð. Myrkrið getur...
20/01/2026

Dimmustu mánuðir ársins eru erfiðir fyrir marga.

Eftir jólin finna sumir fyrir auknum kvíða og/eða depurð. Myrkrið getur tekið á og dregið fólk niður. Á Íslandi er svooo laaangt í vorið og sumarið í janúar! Þá getur verið sérlega mikilvægt að hlúa vel að sál og líkama. En hvað þýðir það að hlúa vel að sér? Oft fáum við flóð af skilaboðum um ,,uppskriftina” að bættri líðan. Þessar skilaboð dynja á okkur úr ýmsum áttum og fólki getur jafnvel farið að líða eins og það sé ekki að gera neitt rétt af það nær ekki að fylgja réttu uppskriftinni að bættri líðan. Úr einni áttinni koma skilaboð um að hægja á, hlífa sér meira, stunda meiri hugleiðslu og sjálfsmildi. Úr annari átt koma svo skilaboð um að alls ekki megi hægja á heldur einmitt auka hreyfingu og virkni, fara meira í ræktina, hitta fleira fólk og ,,feisa” vandamálin. Úr þriðju áttinni koma svo skilaboð að það þurfi að taka ærlega til í matarræðinu, þá verði allt betra. Ýmist þarf að borða mikið af ávöxtum og kornmeti og ekkert kjöt eða alls ekki ávexti og helst bara kjöt og smjér. Aðrir reyna að selja manni lyf eða vítamín og bætiefni og enn aðrir ferðir út í sólina. Hvað er eiginlega rétt að gera?!

Mikilvægt er að hafa í huga að það er ekki til nein ein formúla sem gildir fyrir alla. Það þarf alltaf að meta það út frá hverjum og einum hvað réttast er að prófa að gera. Þegar fólk mætir til sálfræðings er byrjað á því að taka sögu og kortleggja stöðuna hjá hverjum og einum. Síðan eru oftast sett markmið og svo prófar fólk sig áfram með breytingar út frá því sem kemur út úr kortlagningu. Vissulega getur það verið þannig að mælt er með því að auka virkni og til dæmis hreyfa sig meira og hitta fleira fólk en í raun er það þannig að aðrir þurfa helst að gera þveröfugt við það. Minnka pressu á sjálfan sig varðandi til dæmis líkamsrækt, vinnu og mannamót. Nauðsynlegt getur verið að læra að hlusta betur á líkama sinn og læra hvenær rétt er að hvíla sig og hvenær að keyra áfram. Sumir þurfa að læra að setja sér skýr og góð markmið á meðan aðrir gætu þurft að læra að vera meira í núinu og njóta augnabliksins í stað þess að vera alltaf að stefna að markmiðum sem jafnvel aldrei nást. Enn aðrir gætu þurft að vinna úr gömlum áföllum eða læra að vinda ofan af vítahring hamlandi kvíða. Það gæti verið gæfuspor fyrir suma að hefja viðeigandi lyfjameðferð á meðan aðrir þyrftu helst að minnka lyfjainntöku. Og svo framvegis. Sem sagt það er ekki til nein ein uppskrift að betri líðan sem virkar fyrir alla. Við erum (sem betur fer) öll ólík og þörfnumst ólíkra aðgerða til að bæta heilsu og líðan.

Address

Austurmörk 18
Hveragerdi

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gunnhildur Sveinsdóttir sálfræðingur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category