05/09/2023
DAM hópmeðferð fyrir unglinga og fjölskyldur þeirra er að fara af stað nú í september hjá okkur á SÓL. Meðferðin er ætluð unglingum á aldrinum 13-18 ára sem eru með sterkar og sveiflukenndar tilfinningar. Oft eru unglingarnir að takast á við eitt eða fleiri af eftirfarandi einkennum:
• Miklar tilfinninga sveiflur
o Reiðivandi, mikill kvíði, tómleiki, depurð, vanlíðan
• Sjálfskaðandi hegðun og aðra skaðlega áhættuhegðun, skólaforðun
• Sjálfsvígshugsanir eða lífsleiðahugsanir
• Samskiptavanda innan fjölskyldu, við jafnaldra og í öðrum félagslegum samskiptum
Meðferðin snýr að því að kenna bæði unglingum og foreldrum færni í að takast á við vandann.
Meðferðin er á þriðjudögum frá kl. 14.15 - 16.15 og er alls 20 vikur. Unglingur mætir ásamt foreldri eða foreldrum í meðferðina.
Nánari upplýsingar má fá hjá SÓL með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 5321500
Sól er sálfræði- og læknisþjónusta fyrir börn, fjölskyldur og ungmenni. Þverfagleg nálgun er á vanda. Unnið er með gagnreynda meðferð.