20/08/2026
Það er ánægjulegt að segja frá því að Heilsuvernd Hjúkrunarheimili á Akureyri verður rekstraraðili 140 nýrra hjúkrunarrýma í Þursaholti samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Þetta eru mikil tímamót og nú fer í hönd samstarf við Framkvæmdasýsluna og Reiti um hönnun og uppbyggingu húsnæðisins.
Framundan er því mikil uppbygging þjónustu fyrir aldraða á Akureyri. Við hlökkum mjög til þessa verkefnis sem mun bæta verulega aðstöðu okkar og möguleika til þjónustu við okkar besta fólk.