19/08/2026
Í dag, 19. ágúst, fagnar Blindrafélagið 87 ára afmæli og við á Hljóðbókasafni Íslands óskum þeim innilega til hamingju.
Blindrafélagið var stofnað árið 1939 af blindu og sjónskertu fólki sem vildi standa saman og vinna að bættum réttindum og lífskjörum. Síðan þá hefur margt breyst en hlutverk félagsins er enn það sama: að standa með blindu og sjónskertu fólki og styðja það til sjálfstæðis.
Á þessum 87 árum hefur félagið verið mikilvæg rödd í hagsmunabaráttu blindra og sjónskertra og átt þátt í fjölmörgum framförum á sviði aðgengis, þjónustu og annarra réttindamála. Jafnframt hefur það verið vettvangur fyrir öflugt félagsstarf, stuðning og samveru. Húrra fyrir Blindrafélaginu.