Sýni

Sýni Sýni - heildarlausnir í gæðamálum. Ráðgjöf - Námskeið - Prófunarstofa

Ónákvæm tímasetning á flutningi seiða í sjó kostar.SmoltVision, þjónusta Sýni og PHARMAQ Analytiq AS, gefur eldisfyrirtæ...
30/06/2026

Ónákvæm tímasetning á flutningi seiða í sjó kostar.

SmoltVision, þjónusta Sýni og PHARMAQ Analytiq AS, gefur eldisfyrirtækjum nákvæm svör um sjóþroska seiða og dregur þannig úr áhættu.

Fiskifréttir fjölluðu í síðustu viku um vöxt stórseiðaframleiðslu og hvernig SmoltVision greining getur gert gæfumuninn. 🐟

Eftir því sem notkun stórra gönguseiða eykst í íslensku laxeldi verður rétt tímasetning flutnings í sjó sífellt mikilvægari. Elise Hjelle, sérfræðingur í smoltun hjá Pharmaq Analytiq, sem hefur hafið samstarf við Sýni ehf., varar við því að röng tímasetning geti aukið af...

Í síðustu viku kvaddi starfsfólk Sýnis Snorri Þórisson eftir tæplega 32 ára starf hjá fyrirtækinu, þar af 28 sem framkvæ...
01/06/2026

Í síðustu viku kvaddi starfsfólk Sýnis Snorri Þórisson eftir tæplega 32 ára starf hjá fyrirtækinu, þar af 28 sem framkvæmdastjóri.

Framlag Snorra til Sýnis verður aldrei fullþakkað. Á löngum og farsælum ferli sínum hefur hann staðið í stafni fyrirtækisins og stýrt því í gegnum ólík tímabil, bæði góð og krefjandi. Hann hefur átt stóran þátt í uppbyggingu, vexti og velgengni fyrirtækisins og ávallt lagt sitt af mörkum af festu, heilindum og fagmennsku.

Snorri er ráðagóður, skýr, sanngjarn og staðfastur í sínum gildum. Það sem hann hefur byggt upp mun áfram nýtast fyrirtækinu vel og þau gildi sem hann hefur staðið fyrir verða áfram mikilvægur hluti af menningu Sýnis.

Við þökkum Snorra kærlega fyrir öll hans ár hjá Sýni, þau spor sem hann hefur markað, þekkinguna, fagmennskuna og vináttuna. Við eigum eftir að sakna alls þess sem fylgdi Snorra í daglegu starfi – visku hans, sterkra skoðana, hundatalsins og ekki síst þess hvernig hann dró iðulega inniskóna.

Við óskum Snorra innilega til hamingju með þessi tímamót og vonum að árin fram undan verði bæði gefandi og skemmtileg. Njóttu þess sem nú tekur við.

Í síðustu viku kvöddum við með hlýhug afar góðan starfsmann, matvælafræðing og ráðgjafa sem lét nýlega af störfum eftir ...
29/05/2026

Í síðustu viku kvöddum við með hlýhug afar góðan starfsmann, matvælafræðing og ráðgjafa sem lét nýlega af störfum eftir 15 ára farsælt starf hjá Sýni.

Ólöf Guðrún Hafsteinsdóttir hefur fyrir margra hluta sakir verið einstakur starfsmaður. Hún hefur ávallt sinnt viðskiptavinum sínum af alúð og ekki að ástæðulausu verið í miklu uppáhaldi hjá mörgum þeirra. Hún býr yfir mikilli þekkingu á sínu sviði, hefur unnið störf sín af einlægum áhuga og lagt sig fram um að láta gott af sér leiða og hafa jákvæð áhrif.

Ólöf hefur alla tíð elskað fag sitt og hefur oft sagt: „Þetta er ekki bara vinnan mín, þetta er áhugamál mitt.“ Það lýsir henni vel.

Hún er lífleg og jákvæð, með einstaklega hlýja nærveru og hefur góðan húmor fyrir sjálfri sér og í gegnum tíðina hafa samstarfsfélagar hennar notið þess að hlusta á sögur hennar og heyra smitandi hlátur hennar.

Við þökkum Ólöfu kærlega fyrir öll hennar ár hjá Sýni, fyrir samstarfið, gleðina og fagmennsku hennar, og óskum henni alls hins besta og vonum að hún njóti þess nýja kafla sem nú tekur við.

HACCP 4 er námskeið fyrir þau sem vilja fara dýpra í stjórnun HACCP kerfis, efla hættugreiningu, sannprófun og innleiðin...
16/04/2026

HACCP 4 er námskeið fyrir þau sem vilja fara dýpra í stjórnun HACCP kerfis, efla hættugreiningu, sannprófun og innleiðingu í eigin starfsemi.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hagnýta vinnu, raunveruleg verkefni og aukna færni sem nýtist hjá þínu fyrirtækinu.

Skráning og nánari upplýsingar á vefnum okkar 👇

06/05/2026 - 20/05/2026 @ All Day - Námskeið fyrir alla þá sem meðhöndla matvæli á einn eða annan hátt. Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji grundvallaratriði HACCP gæðakerfisins og geti innleitt það í sínum fyrirtækjum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu. Þátttakend...

Address

Víkurhvarf 3
Kópavogur
203

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sýni posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Sýni:

Shortcuts

Share

Category