04/08/2026
Við bjóðum Daníel Bjarka Stefánsson velkominn til starfa 💙
Daníel hefur störf hjá okkur á morgun 5.ágúst í Orkuhúsinu - Urðarhvarfi 👏🏻 Hann útskrifaðist með meistaragráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 2025 🎓 Hann hefur áhuga á bæklunarsjúkraþjálfun, endurhæfingu eftir aðgerðir og áverka, íþróttasjúkraþjálfun sem og þjálfun barna og eldra fólks 🏋️♀️🏋️
Daníel Bjarki starfar einnig á bæklunardeild Landspítalans og hefur sinnt sjúkraþjálfun hjá meistaraflokkum í bæði knattspyrnu og körfubolta 🏥⚽🏀
Meistararitgerð hans ber heitið „Reynsla af hjálpartækjum hjá börnum og ungmennum með cerebral palsy (CP) með grófhreyfifærni í GMFCS-flokkum III–V: Eigindleg rannsókn.“ 📚
Velkominn í hópinn 💙