20/08/2026
Pilates 50 plús 🌸
Yoga Líf býður upp á námskeið í pilates fyrir 50 plús sem ætlað er byrjendum og aðeins lengra komnum. Tveir hópar eru í boði annars vegar á mánudögum og miðvikudögum klukkan 10.40 og hins vegar þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 11.00.
Pilates er frábært æfingakerfi sem inniheldir mjúkar styrkjandi æfingar með áherslu á að styrkja djúpa vöðvakerfið, kvið, bak og rassvöðva. Áhersla er á að styrkja vöðva sem vilja veikjast og lengja vöðva sem vilja styttast en þannig getum við viðhaldið betri líkamsstöðu þar sem álag á liði, liðbönd og sinar er sem minnst.
Pilates æfingar eru mjúkar en áhrifaríkar styrktaræfingar gerðar í takt við öndunina. Regluleg ástundun gefur aukinn styrk, liðleika, betri líkamsstöðu og hreyfistjórn. Í tímunum er einnig unnið með jafnvægið sem mikilvægt er að viðhalda eins og kostur er út ævina. Hver tími endar svo á góðum teygjum, hugleiðslu og slökun.
Kennarar námskeiðs eru Vilborg Anna Hjaltalín sjúkraþjálfari, pilates og yogakennari og Magdalena Bartczak dansari og pilates kennari.
Skráning fer fram í gegnum messenger á fésbókinni eða með því að senda tölvupóst í [email protected]
Einnig er hægt að hringja í síma 789 4540 til að fá nánari upplýsingar.