Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS Frá árinu 1954 hefur Heilbrigðisstofnun Suðurnesja veitt íbúum Suðurnesja heilbrigðisþjónu

Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er rekin heilsugæsluþjónusta, sjúkradeild, hjúkrunardeild, ljósmæðravakt og Slysa- og bráðamóttaka.

Mikilvægur áfangi í þjónustu við aldraða á Suðurnesjum.Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Kei...
23/06/2026

Mikilvægur áfangi í þjónustu við aldraða á Suðurnesjum.

Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028.

„Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fagnar mjög þessum áfanga í þjónustu við aldraða á Suðurnesjum. Aðstaðan á Keilisbraut býður upp á marga möguleika til að mynda fallega umgjörð fyrir íbúa heimilisins og móta þar fyrirmyndar samfélag. Með opnun nýja hjúkrunarheimilisins á Keilisbraut skapast einstakt tækifæri til að efla sjúkrahússtarfsemi HSS enn frekar og mun það hafa víðtæk áhrif á heilbrigðisþjónustu til framtíðar,“ segir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri HSS.

Nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir 90 íbúa mun opna við Keilisbraut í Reykjanesbæ. Ráðist verður í gagngerar breytingar og endurbætur á húsnæði við Keilisbraut 753 og 754 og eru aðgerðir vegna uppbyggingarinnar þegar hafnar. Áætlað er að nýja hjúkrunarheimilið verði tekið í notkun vorið 2028.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) mun annast rekstur hjúkrunarheimilisins en ríkið leigir húsið með leigusamningi til 25 ára af Icelandic Home ehf. Heimilið verður ríflega 6.500 fermetrar og öll herbergin einbýli með baðherbergjum.

„Stundum gerast góðir hlutir hratt og óhætt að segja það um uppbyggingu hjúkrunarrýma um þessar mundir. Þetta er óendanlega mikilvægt, auðvitað fyrst og fremst gagnvart öldruðu fólki í brýnni þörf fyrir slíka búsetu en einnig fyrir heilbrigðiskerfið í heild, ekki síst Landspítala og bráðamóttökuna þar - og raunar samfélagið allt. Það er grundvallaratriði í heilbrigðismálum að fólk fái þá þjónustu sem það þarfnast á réttum stað og réttum tíma. Svo sannarlega er það mikil áskorun en við höfum ríka ástæðu til að gleðjast yfir þeirri kraftmiklu uppbyggingu hjúkrunarheimila sem við sjáum nú víðsvegar um landið,“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

„Við höfum sett málefni eldra fólks í forgang og látum verkin tala. Stjórnvöld eru í stórsókn í uppbyggingu hjúkrunarheimila vítt og breitt um landið og nýja hjúkrunarheimilið við Keilisbraut verður mikilvægt framfaraskref fyrir eldra fólk á Suðurnesjum og fjölskyldur þeirra. Með þessu fjölgar hjúkrunarrýmum verulega á svæðinu og fleiri fá þá þjónustu og það öryggi sem þeir eiga skilið,“ segir Inga Sæland sem fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Hjúkrunarheimilið við Keilisbraut er hluti af framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir árin 2026-2030 en þar er gert ráð fyrir að ríflega 1.500 hjúkrunarrými verði tekin í notkun á tímabili áætlunarinnar. Í dag eru alls 160 hjúkrunarrými í Reykjanesbæ en með nýja hjúkrunarheimilinu verða þau orðin 250.

🎉 Tilnefning til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026 🎉Verkefni sykursýkismóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja um i...
20/05/2026

🎉 Tilnefning til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026 🎉

Verkefni sykursýkismóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja um innleiðingu gervigreindar til skimunar á augnsjúkdómi í sykursýki hefur verið tilnefnt til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026 í flokknum „Ráðuneyti / A-hluta stofnun / Opinbert hlutafélag“.

Augnskimunin nýtir gervigreind til að bæta aðgengi að mikilvægri heilbrigðisþjónustu og hefur gert skimun bæði hraðari, hagkvæmari og aðgengilegri fyrir skjólstæðinga sykursýkismóttökunnar.

Tilnefningin er mikil viðurkenning á þeirri vinnu sem hefur verið lögð í verkefnið og sýnir hvernig nýsköpun og tæknilausnir geta umbreytt opinberri þjónustu til hagsbóta fyrir samfélagið.

Við erum afar stolt af þessum áfanga og þökkum öllum sem komu að verkefninu fyrir metnað, frumkvæði og frábært samstarf. 👏

Sjá nánar á hss.is

🎗️ Frábær viðurkenning á mikilvægu samstarfi á Suðurnesjum!Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Samtök atvinnurekenda á Reykja...
10/05/2026

🎗️ Frábær viðurkenning á mikilvægu samstarfi á Suðurnesjum!

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) og Félag kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum hlutu Samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélags árið 2025 fyrir öflugt samstarf sem hefur aukið verulega þátttöku kvenna í brjóstaskimun á Suðurnesjum.

Samstillt átak, aukin vitund og sterkt samfélag geta skipt sköpum. 💗

Skimun skiptir máli og bjargar mannslífum. Með aukinni þátttöku aukast líkur á snemmbærri greiningu og betri horfum.

Sjá nánar á heimasíðu HSS hss.is

HSS tekur þátt í hópslysaæfingu🚑 Hópslysaæfing – Laugardaginn 2. maí 2026Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum standa fyrir umfa...
28/04/2026

HSS tekur þátt í hópslysaæfingu

🚑 Hópslysaæfing – Laugardaginn 2. maí 2026

Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum standa fyrir umfangsmikilli hópslysaæfingu í Reykjanesbæ næstkomandi laugardag. Af því tilefni gætu íbúar orðið varir við aukna umferð viðbragðsaðila á svæðinu, auk tímabundinna lokana við Gróf, Ægisgötu og Keflavíkurhöfn.

Æfingin hefst kl. 11:00 og lýkur um 14:00.

Til þess að æfingin endurspegli raunverulegar aðstæður sem best verður hluti hennar framkvæmdur í og við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS). Af þeim sökum má búast við fjölda viðbragðsðila á HSS og á nærliggjandi svæðum, á meðan æfingunni stendur.

Við biðjumst velvirðingar á því ónæði sem kann að skapast og þökkum íbúum fyrir skilninginn.

Alþjóðleg vika tileinkuð bólusetningum.Bólusetningar virka fyrir allar kynslóðir.
28/04/2026

Alþjóðleg vika tileinkuð bólusetningum.

Bólusetningar virka fyrir allar kynslóðir.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) tileinkar bólusetningum eina viku á ári, dagana 24.–30. apríl. Í Evrópu standa bæði WHO Europe og Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) að gerð efnis og miðlun upplýsinga í tengslum við evrópsku bólusetningavikuna.

Á heimasíðu HSS eru að finna upplýsingar um einkenni og meðferð við inflúensu.Þar kemur einnig fram munur á inflúensu og...
08/04/2026

Á heimasíðu HSS eru að finna upplýsingar um einkenni og meðferð við inflúensu.
Þar kemur einnig fram munur á inflúensu og kvefipest.
Endilega kynnið ykkur það á hss.is

vinsamlega deilið

Ársfundur HSS - uppbyggjandi og faglegt samtal við samfélagið.Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) var haldin...
01/04/2026

Ársfundur HSS - uppbyggjandi og faglegt samtal við samfélagið.

Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) var haldinn föstudaginn 27. mars í Samkomuhúsinu í Sandgerði.

Ársfundurinn er árlegt tækifæri íbúa, samstarfsaðila og starfsfólks til að líta til baka, meta árangur og horfa fram á veginn. Fundurinn var vel sóttur.

Heilbrigðisráðherra ávarpaði fundinn og kjarnaði vel þau verkefni sem liggja fyrir og þann árangur sem hefur náðst á HSS á undanförnu ári. Ráðherra lagði sérstaka áherslu á þau verkefni sem fram undan eru í þjónustu við aldraða, aukna húsnæðisþörf og uppbyggingu húsnæðis HSS.

Forstjóri, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, gerði grein fyrir starfsemi ársins 2025, árangri og áskorunum.

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrar, Kjartan Kjartansson, kynnti drög að ársreikningi og rekstrarniðurstöðu ársins.

Skólaheilsugæsla og rannsókn HSS voru heiðruð á fundinum fyrir umbætur á árinu sem aukið hafa þjónustu við samfélagið á Suðurnesjum.

Stofnunin þakkar það traust sem íbúar Suðurnesja hafa sýnt og komið hefur fram í niðurstöðum kannana. Með sameiginlegu átaki, mennsku og myndugleik að leiðarljósi munum við halda áfram að efla þjónustuna til hagsbóta fyrir skjólstæðinga, aðstandendur og samfélagið í heild.

Opnunartími yfir páska 🐣Læknavakt Heilsugæslu HSS er opin frá kl. 10:00–15:00 yfir páskahátíðina og laugardaginn 4. aprí...
01/04/2026

Opnunartími yfir páska 🐣

Læknavakt Heilsugæslu HSS er opin frá kl. 10:00–15:00 yfir páskahátíðina og laugardaginn 4. apríl.
Tímapantanir eru samdægurs frá kl. 10:00.

Við minnum á að slysa- og bráðamóttakan er opin allan sólarhringinn fyrir slys og bráð veikindi.

StreptókokkarHálsbólga er oftast af völdum veira. Aðeins 1 af hverjum 10 fullorðnum og 3 af hverjum 10 börnum eru með st...
01/04/2026

Streptókokkar

Hálsbólga er oftast af völdum veira. Aðeins 1 af hverjum 10 fullorðnum og 3 af hverjum 10 börnum eru með streptókokkahálsbólgu.

Streptókokkahálsbólga er bakteríusýking í koki sem orsakast af Streptococcus pyogenes. Hún er algengasta bakteríusýkingin sem veldur hálsbólgu, sérstaklega hjá börnum og unglingum.

👉 Sjá nánar á heimasíðu HSS: hss.is

Appelsínugul veðurviðvörunÞar sem búist er við slæmu veðri og færð í fyrramálið gæti þjónusta heilsugæslu HSS og heimahj...
25/03/2026

Appelsínugul veðurviðvörun

Þar sem búist er við slæmu veðri og færð í fyrramálið gæti þjónusta heilsugæslu HSS og heimahjúkrunar raskast fyrir hádegi fimmtudaginn 26. mars.

Þeir sem eiga bókaðan tíma hjá heilsugæslulækni í fyrramálið mega eiga von á símtali frá lækninum.

Bráðamóttakan er opin allan sólarhringinn fyrir slys og bráðatilfelli.

Vinsamlega deilið
hss.is

Address

Skólavegi 6
Keflavík
230

Telephone

+3544220500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Heilbrigðisstofnun Suðurnesja - HSS:

Shortcuts

Share

Category