Heilsuvin í Mosfellsbæ

Heilsuvin í Mosfellsbæ Heilsuvin er klasi fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem vilja efla starfsemi á sviði heilsutengdrar þjónustu í Mosfellsbæ.

Sjálfshjálp í september 💛
01/09/2026

Sjálfshjálp í september 💛

  💛🩷💙❤️
28/08/2026

💛🩷💙❤️

Tindahlaup Mosfellsbæjar laugardaginn 29. ágúst - enn hægt að skrá sig 😁
27/08/2026

Tindahlaup Mosfellsbæjar laugardaginn 29. ágúst - enn hægt að skrá sig 😁

Kæru hlauparar,

PÓSTURINN SEM ALLIR ÞURFA AÐ LESA FYRIR LAUGARDAGINN!

Við ykkur sem skráð eruð í Tindahlaupið í boði Sportís á laugardaginn þá segjum við takk fyrir skráninguna. Við ykkur sem eruð ekki skráð en langar til að vera með þá segjum við, skráðu þig núna því þetta verður geggjað.

Nú þegar eru komnar um 300 skráningar og miðað við síðustu ár þá reiknum við með um 500 hlaupurum enda verðurspáin algjört hlaupakonfekt 🌞.

Forskráningu lýkur á miðnætti:
https://netskraning.is/tindahlaupid/

Hægt verður að skrá sig samhliða afhendingu gagna í verslun Sportís Skeifunni 11 á morgun, fimmtudag og föstudag milli klukkan 16:30 og 19:00.

Hér eru nokkrir MJÖG mikilvægir punktar fyrir laugardaginn.

➡️ Afhending gagna fer fram í verslun Sportís á fimmtudaginn og föstudaginn milli klukkan 16:30 og 19:00. Þar verður glaðningur frá BodyFuel á Íslandi og eins veitir Sportís 20% afslátt í verslun og netverslun út sunnudaginn 30. ágúst með kóðanum TINDAHLAUP.

➡️ Ræsing er klukkan 9:00 í 5 og 7 tinda og klukkan 11:00 í 1 og 3 tinda. Við hvetjum ALLA til að mæta tímanlega. Ræsing fer fram aftan við Fellið að Íþróttamiðstöðinni að Varmá og er það nýkjörinn bæjarstjóri Mosfellsbæjar Hilmar Gunnarsson sem sér um ræsinguna.

➡️ Skipulögð upphitun fyrir hlaupið er klukkan 8:40 og aftur klukkan 10:40. Halla Karen Kristjánsdóttir sér um upphitun.

➡️Frítt er í sund að hlaupi loknu að Íþróttamiðstöðinni að Varmá og þar er einnig gott aðgengi að salernum og búningsklefum.

➡️ Vegleg verðlaun eru veitt í karla og kvennaflokki í öllum vegalengdum, auk þess sem allir hlauparar fá þátttökuverðlaunapening. Einnig er mikið af flottum útdráttarverðlaunum sem allir hlauparar eiga jafnar líkur á að vinna út á sitt hlaupanúmer.

➡️ Drykkjarstöðvar eru nokkrar á leiðinni og má finna á þeim eftirfarandi:

Ávexti(banana, epli og appelsínur)
Vatn
Gatorade
Snickers og önnur orkustykki
Batterí orkudrykk í 5 og 7 tindum
Pepsi(goslaust) í 5 og 7 tindum
Kakó í 5 og 7 tindum

Þegar í mark er komið mun þar bíða hlaðborð af næringu frá Hleðsla íþróttadrykkur, Dufland Heildsala, Hreysti, Omax heildsölu, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Bananar ehf og auk þess sem heitt kaffi verður á könnunni allan daginn.

➡️ Blakdeild Aftureldingar og Björgunarsveitin Kyndill Mosfellsbæ sjá um að tryggja öryggi ykkar á flatlendi sem og á tindunum.

➡️ Brautarmet má sjá inn á:
https://mos.is/mannlif/vidburdir/tindahlaupid/ -5

➡️ Hlín Guðmundsdóttir ljósmyndari mun sjá um að taka myndir í hlaupinu og því rík ástæða til að vera brosandi alla leið.

➡️ Öll úrslit koma strax inn á netskraning.is.

➡️ Veðurspáin er mjög góð en munum að klæða okkur eftir veðri á laugardagsmorgun.

Hægt verður að geyma fatnað í Fellinu þar sem ræsing og endamark er á sama stað.

Kær kveðja
Nefndin

Átt þú eftir að skrá þig? ☀️
27/08/2026

Átt þú eftir að skrá þig? ☀️

Takk takk og aftur takk.

Nú er forksráningu lokið og urðu skráningarnar 352. Margir eru að hafa samband og vilja vera með sem er skiljanlegt enda veðurspáin frábær🌞 Það stefnir allt í 500 + hlaupara á laugardaginn og við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur.

Skráning og afhending gagna fer fram í dag(fimmtudag) og á morgun(föstudag) í verslun Sportís Skeifunni 11 milli klukkan 16:30 og 19:00.

Það verða hollar veigar á boðstólnum frá Dufland Heildsala og Sportís verður með 20% afslátt í versluninni auk þess sem þú getur nýtt þér kóðann TINDAHLAUP á vefsíðu Sportis.is út sunnudaginn 30.ágúst.

Kær kveðja
Nefndin

Förum varlega kæra fólk 🙏🏼🥰
24/08/2026

Förum varlega kæra fólk 🙏🏼🥰

Erum við ekki öll sammála um þetta?

Stöndum saman kæru foreldrar 🥰
31/07/2026

Stöndum saman kæru foreldrar 🥰

Forsjáraðilar gegna lykilhlutverki í forvörnum.

Fylgjumst með áætlunum hjá börnum okkar og unglingum og tryggjum að þau séu í öruggum aðstæðum. Með því að setja skýr mörk sýnum við umhyggju❤️

Umhyggja í ágúst 🩷
31/07/2026

Umhyggja í ágúst 🩷

  🥰
24/07/2026

🥰

Gleðilegan föstudag 🌿

Börn þurfa ekki fullkomið leiksvæði – þau þurfa fjölbreyttar áskoranir. 🌿 Náttúran er einn besti staðurinn til að efla vöðva- og liðamótaskyn.

Góða útiveru helgi flotta fyrirmynd 🤎

Jákvæði júlí ☀️
07/07/2026

Jákvæði júlí ☀️

    🩷☀️
25/06/2026

🩷☀️

Forsjáraðilar gegna lykilhlutverki í forvörnum.

Fylgjumst með áætlunum hjá börnum okkar og unglingum og tryggjum að þau séu í öruggum aðstæðum. Með því að setja skýr mörk sýnum við umhyggju❤️

Address

Þverholti 2
Mosfellsbær
270

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heilsuvin í Mosfellsbæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Heilsuvin í Mosfellsbæ:

Shortcuts

Share