Styrkleikar og stefna

Styrkleikar og stefna - ACC vottaður markþjálfi

22/03/2026

Mundu mig ❤️

22/03/2026

Hvernig vinn ég með Mundu mig ?

Lykilatriði er að eiga notalegt samtal, sýna virka hlustun og einlægan áhuga. Það er stærsta gjöfin í þessu öllu saman 🥰

Hægt að taka samtalið upp með hljóðupptöku eða á video, allt eftir því hvað þið og viðmælandi treystið ykkur til

Spurningarnar eru fyrst og fremst kveikjur að samtalinu en ekki eitthvað sem þarf að svara lið fyrir lið. Það væri kannski gaman að senda viðmælendum spurningarnar fyrirfram svo þau geti sjálf valið umræðuefni eða undirbúið sig. Með þvi getir einnig dregið úr stressi og samtalið flætt betur

Mér þætti vænt um ef þið fylgduð mér og væruð dugleg að deila áfram svo sem flestir geti notið góðs af ❤️

14/03/2026

Hvern langar þig að tala við í dag? Hversu vel þekkir þú fólkið þitt og hverju vilt þú deila með þeim?

Mundu mig er samtalsverkefni sem ég hvet þig til að taka þátt í. Eigum samtalið, styrkjum tengslin og njótum samveru. Það er ein dyrmætasta gjöf sem við getum gefið hvoru öðru, ekki síst þar sem einmanaleiki virðist fara vaxandi ❤️

Við getum lært svo mikið af þeim sem eldri eru og í leiðinni fengið mögulega innsýn í hvað gerir okkur sjálf að því sem við erum.

Fyrsta spurningin okkar í Mundu mig verkefninu er þessi. Hún kom til mín frá Hildi í  og mér finnst þetta kröftug spurni...
02/03/2026

Fyrsta spurningin okkar í Mundu mig verkefninu er þessi. Hún kom til mín frá Hildi í og mér finnst þetta kröftug spurning. Bæði til að spyrja aðra og eins til að líta þér nær ❤️

Fylgdu mér a insta og FB og vertu með í að skapa tengsl í samfélaginu okkar ❤️

Hvern myndir þú spyrja?

Mundu mig, ég man þig er samtalsverkefni Styrkleika og Stefnu. Tilgangur þess er að stuðla að nánum samskiptum, sterkari...
27/02/2026

Mundu mig, ég man þig er samtalsverkefni Styrkleika og Stefnu. Tilgangur þess er að stuðla að nánum samskiptum, sterkari tengslum og hafa jákvæð áhrif á vellíðan.

Hugmyndin vaknaði fyrir löngu síðan en fer í loftið í dag, 27. febrúar á afmælisdegi bróður míns sem kvaddi okkur alltof snemma fyrir rétt rúmu ári. Hann var endalaus uppspretta hugmynda og kom mörgum þeirra af stað með góðum árangri. Mér finnst þvi við hæfi að þetta verkefni mitt verði að veruleika a deginum hans ❤️

💥 Eg mun birta nokkrar spurningar á næstu dögum hér á Insta og FB svo fylgdu mér ef þu vilt vera með.

Gefum okkur tíma til að hlusta og njóta þess að rifja upp minningar með fjölskyldu og vinum. Settu þig og þína í forgang á meðan þú getur, morgundagurinn er ekki öllum gefinn.

22/02/2026
22/02/2026

Address

Tunguhálsi 19
Reykjavík
110

Opening Hours

Tuesday 17:00 - 20:00
Thursday 17:00 - 20:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Styrkleikar og stefna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Styrkleikar og stefna:

Shortcuts

Share