Hjördís Inga Sálfræðingur

Hjördís Inga Sálfræðingur Ég útskrifaðist með Cand. Psych. frá Háskólanum í Árósum árið 2012. Fékk sérfræðingstitil 2021. Sýna tilvitnun

Frá árinu 2019 hef ég lokiđ sérnámi í Hugrænni atferlismeđferđ (HAM), sérnámi í Sáttar og ábyrgđarmeđferđ (ACT) og Hugrænni úrvinnslumeđferđ (HÚM). Hér er smá um mig:

Ég hef sérhæft mig í einstaklingsmeðferð fullorðinna. Ég hef unnið umtalsvert með kvíða, þunglyndi, áráttu og þráhyggju og áfallastreitu. Einnig hef ég unnið talsvert með innflytjendum og sjálfboðaliðum og var um nokkurra ára skeið

verkefnastjóri áfallahjálpar hjá Rauða krossinum á Íslandi (2014-2017). Frá því að ég hóf störf hef ég haldið námskeið og fyrirlestra um fjölda viðfangsefna (t.d. almennt HAM námskeið, sálrænn stuðningur, Klókir krakkar, Streitueinkenni og kulnun).

Ég hef lokið sérmenntun í Hugrænni atferlismeðferð (Cogntive behavioural Therapy), setið námskeið í Hugrænni úrvinnslumeðferð (Cognitive processing therapy) og er byrjuð að leggja fyrir mig ACT (Acceptance and Commitment Training) bæði með námskeiðum og í sérnámi . Auk þess hef ég setið nokkur námskeið og fyrirlestra um hin ýmsu málefni (geðlyf, meðferð flókinna vandamála, sálfélagslegan stuðning, aðbúnað flóttafólks o.s.frv.)

Ég lauk B.Sc. gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2009, diploma í Alþjóða samskiptum frá Háskóla Íslands árið 2009 og MSc í sálfræði frá Háskólanum í Árósum árið 2012. Árið 2019 lauk ég svo tveggja ára sérnámi í Hugrænni atferlismeðferð og hóf að sækja mér þekkingu í Acceptance and commitment therapy árið 2020. Árið 2021 fékk ég titilinn; Sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna frá Landlækni. Hóf síðan tveggja ára sérmenntun í Acceptance and commitment Therapy vorið 2023.

Ég var í starfsnámi á Reykjalundi árið 2011. Ég vann í örstuttan tíma hjá Fangelsismálastofnun ríkisins áður en ég hóf störf sem sálfræðingur og verkefnisstjóri áfallahjálpar hjá Rauða Krossinum á Íslandi. Ég starfaði svo við greiningar hjá fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðar í tæp tvö ár áður en ég hóf störf sem klínískur sálfræðingur hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Sólvangi en þar starfaði ég í 3 og hálft ár. Samhliða þessum störfum hef ég rekið mína eigin stofu en árið 2022 færði ég mig alfarið í einkarekstur.

10/08/2026
Have learned a lot about ACT but still feel I am just scratching the surface of what ACT is about / Hef lært fullt en fi...
21/07/2026

Have learned a lot about ACT but still feel I am just scratching the surface of what ACT is about / Hef lært fullt en finnst ég enn vera rétt að klóra yfirborðið á því hvað ACT felur í sér❤️.

P.s. notice how "well" I photograph next to one of the founders of ACT / takið eftir hve "vel" ég myndast við hliðina á einum frumkvöðlunum á bak við ACT😆

16/07/2026

Companion Report to the ACBS Poster: Do the Gains Stick? 1-Year Outcomes and Missing-Data Sensitivity from an Interdisciplinary ACT-Based Chronic Pain Rehabilitation Service in Belfast Grace Lemons, Preston Botter, Claire Briggs, Danielle Rainey, Jason Brooks, Francis Agnew, and Kevin Vowles Pr...

16/07/2026

Mæli með❤️
15/07/2026

Mæli með❤️

A restorative midlife women’s retreat in France for women in their 40s, 50s and 60s navigating identity shifts, empty nest and life transitions.

20/05/2026

Address

Sálfræðiráðgjöfin, Lækjartorg 5, 2. Hæð
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hjördís Inga Sálfræðingur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share