Urðarbrunnur - Fjölskylda & Ráðgjöf

Urðarbrunnur - Fjölskylda & Ráðgjöf Ég starfa sem fjölskyldu og pararáðgjafi og hef sérhæfingar í meðferðarvinnu með pörum og fjölskyldum.

Hef lokið námi í tilfinningamiðaðri parameðferð (EFT) og einnig EFCT námskeiði með áherslu á kynlíf og nánd í
parasamböndum.

Í nánum samböndum geta þarfir fyrir nálægð, skilning, staðfestingu eða öryggi verið erfiðar að setja í orð. Þá getur myn...
17/08/2026

Í nánum samböndum geta þarfir fyrir nálægð, skilning, staðfestingu eða öryggi verið erfiðar að setja í orð. Þá getur myndast hringrás þar sem annað dregur sig til baka á meðan hitt reynir meira að ná sambandi — og með tímanum geta bæði farið að upplifa sig misskilin, ein eða fjarlæg hvort öðru.

Í tilfinningamiðaðri parameðferð (EFT) er lögð áhersla á að skilja þessi mynstur og þær tilfinningar og þarfir sem liggja undir þeim.

Oft felst breytingin ekki í því að forðast erfið samtöl, heldur í að skapa meira öryggi til að geta sagt það sem skiptir raunverulega máli.

Ef þessi færsla vakti hjá þér einhverjar hugsanir eða þú telur að hún gæti gagnast einhverjum öðrum, endilega deildu henni áfram 💬

Þér er líka velkomið að bóka tíma ef þig langar að skoða þetta betur — ein/einn eða með maka.

❤️ Það sem verndar sambandið er oft samtalið sem okkur finnst erfiðast að hefja.



https://ufr.is/

Rannsóknir sýna að það sem einkennir sterk sambönd er ekki skortur á ágreiningi, heldur hæfnin til að hlusta, sýna gagnk...
03/08/2026

Rannsóknir sýna að það sem einkennir sterk sambönd er ekki skortur á ágreiningi, heldur hæfnin til að hlusta, sýna gagnkvæman skilning og finna leið áfram saman. Örugg tilfinningatengsl styrkjast þegar báðir upplifa að þeir séu séðir, heyrðir og teknir alvarlega – jafnvel þegar þeir eru ósammála.

❤️ Heilbrigð sambönd snúast ekki um að vera alltaf sammála. Þau snúast um gagnkvæma virðingu, hlustun og skilning.



Í mínu starfi vinn ég út frá Emotionally Focused Therapy (EFT), gagnreyndri meðferðarnálgun sem byggir á tengslakenningu og rannsóknum á nánum samböndum. Ég hef lokið ICEEFT Externship í EFT og PREP-vottun í vinnu með pörum.

📩 Fyrir frekari upplýsingar um para- eða einstaklingsráðgjöf er þér velkomið að hafa samband.



https://ufr.is/

„Við ætlum okkur sjaldnast að særa þann sem okkur þykir vænst um.“ ❤️Flest förum við inn í samtöl með góðan ásetning. Sa...
29/07/2026

„Við ætlum okkur sjaldnast að særa þann sem okkur þykir vænst um.“ ❤️

Flest förum við inn í samtöl með góðan ásetning. Samt getur samtalið farið í allt aðra átt en við ætluðum.

Það er oft ekki hvað við viljum segja sem veldur erfiðleikum – heldur hvernig samtalið byrjar.

Þegar gagnrýni eða ásakanir taka yfir fara margir ósjálfrátt í vörn. Þá hættum við að hlusta og byrjum frekar að verja okkur.

En undir gagnrýni leynist oft eitthvað allt annað:
🤍 Löngunin til að vera skilin.
🤍 Að einhver hlusti.
🤍 Að finna lausn saman.

Góð samskipti snúast ekki um að segja alltaf réttu orðin. Þau snúast um að skapa öryggi, forvitni og tengingu – jafnvel þegar við erum ósammála.

Hvaða litla breyting gætir þú prófað næst þegar erfitt samtal kemur upp?

💬 Deildu endilega reynslu þinni eða sendu færsluna til einhvers sem gæti haft gagn af henni.



https://ufr.is/

Persónuleg mörk styrkjast sjaldnast í einu stóru skrefi. Þau byggjast upp smám saman – með litlum ákvörðunum sem þú teku...
19/07/2026

Persónuleg mörk styrkjast sjaldnast í einu stóru skrefi. Þau byggjast upp smám saman – með litlum ákvörðunum sem þú tekur á hverjum degi. 💚

Það getur verið að gefa sér tíma áður en þú svarar, taka eftir af hverju þú segir „já“ eða minna sig á að þarfir þínar skipta líka máli.

Að setja mörk snýst ekki um að vera harður eða ýta fólki frá sér. Það snýst um að sýna sjálfum sér sömu virðingu og umhyggju og þú sýnir öðrum.

Veldu eitt atriði úr myndaseríunni sem þú getur prófað í vikunni. Mundu að breytingar taka tíma og það er eðlilegt að þetta finnist óþægilegt í byrjun.

💚 Lítil skref í dag geta skapað stórar breytingar með tímanum.

Hvaða atriði fannst þér mest gagnlegt?

🤍 Ef þessi færsla vakti hjá þér einhverjar hugsanir eða þú telur að hún gæti hjálpað einhverjum öðrum, endilega deildu henni áfram.



https://ufr.is/

Persónuleg mörk snúast ekki um að halda fólki í fjarlægð. Þau snúast um að geta átt heilbrigð tengsl við aðra – án þess ...
19/07/2026

Persónuleg mörk snúast ekki um að halda fólki í fjarlægð. Þau snúast um að geta átt heilbrigð tengsl við aðra – án þess að missa tengslin við sjálfan sig. 💛

Margir sem eiga erfitt með að setja persónuleg mörk gera sér ekki alltaf grein fyrir því. Kannski setja þeir þarfir annarra reglulega framar sínum eigin, finna fyrir samviskubiti þegar þeir segja nei, upplifa að þeir þurfi sífellt að útskýra eigin mörk eða taka ábyrgð á líðan annarra.

Oft eru þessi mynstur ekki hluti af persónuleikanum heldur leið sem við lærðum til að aðlagast aðstæðum, forðast árekstra eða skapa öryggi í samskiptum.

✨ Það jákvæða er að persónuleg mörk eru ekki meðfæddur eiginleiki. Þau eru færni sem hægt er að læra, æfa og styrkja.

Þegar við lærum að virða eigin mörk verður auðveldara að eiga heilbrigð samskipti sem byggjast á gagnkvæmri virðingu – bæði gagnvart öðrum og okkur sjálfum.

💛 Þekktir þú þig í einhverju af þessu? Mundu að þú ert ekki einn eða ein. Mörg okkar hafa lært þessi mynstur og það er alltaf hægt að læra nýjar leiðir.

Persónuleg mörk snúast ekki um að elska aðra minna – heldur um að gleyma sjálfum sér minna.

🤍 Ef þessi færsla vakti hjá þér einhverjar hugsanir eða þú telur að hún gæti hjálpað einhverjum öðrum, endilega deildu henni áfram.



https://ufr.is/

Einmanaleiki í sambandi er raunverulegur – en oft ósýnilegur. 💙Þú getur verið í sambandi, deilt heimili, daglegu lífi og...
05/07/2026

Einmanaleiki í sambandi er raunverulegur – en oft ósýnilegur. 💙

Þú getur verið í sambandi, deilt heimili, daglegu lífi og framtíðarsýnum með einhverjum og samt fundið fyrir djúpri einmanakennd.

Stundum snýst það ekki um skort á ást heldur um skort á tengingu. Að finnast ekki vera hlustað á þig. Að tilfinningar þínar fái ekki raunverulegt rými. Að þörfum þínum sé ekki mætt.

Þessi upplifun þýðir ekki sjálfkrafa að sambandið sé dæmt til að mistakast eða að makinn vilji þér illt. En hún er merki sem á skilið athygli – því enginn ætti að þurfa að líða einmana í nánu sambandi.

Stundum byrjar breytingin á einni einlægri setningu:

„Mér líður eins og ég sé einmana, þótt við séum saman.“

💙 Ef þessi færsla snerti þig, mundu að þessi upplifun er algengari en margir gera sér grein fyrir. Ef þú telur að hún geti hjálpað einhverjum öðrum, deildu henni áfram.



https://ufr.is/

Parasambönd breytast með tímanum – rétt eins og heimili. 🏡Flest okkar hugsum lítið um heimilið þegar allt virkar vel. Þa...
30/06/2026

Parasambönd breytast með tímanum – rétt eins og heimili. 🏡

Flest okkar hugsum lítið um heimilið þegar allt virkar vel. Það er fyrst þegar eitthvað bilar að við tökum eftir því.

Sama á oft við um sambönd.

Við vitum öll að hús þarfnast umhyggju og reglulegs viðhalds. Það þarf stundum að mála, laga, taka til eða sinna litlum viðgerðum áður en þær verða að stærri verkefnum.

Sambönd eru ekki svo ólík.

Í starfi mínu sem pararáðgjafi sé ég aftur og aftur að farsæl sambönd snúast sjaldnast um fullkomnun – enda er hún óraunhæft markmið. Þau byggjast frekar á því að taka reglulega eftir því hvernig sambandinu líður og gefa því tíma, athygli og umhyggju.

Þess vegna finnst mér gagnlegt að hugsa um parasambandið sem hús.

🏡 Hvert herbergi táknar mikilvægan þátt í sambandinu.
🏡 Sum herbergi eru sterk og veita skjól.
🏡 Önnur kalla á meiri athygli.
🏡 En öll hafa þau áhrif hvert á annað.

Parasamband er lifandi samband þar sem allt tengist. Þegar eitt „herbergi“ fær ekki þá athygli sem það þarfnast hefur það oft áhrif á önnur. Á sama hátt getur það styrkt allt sambandið þegar við hlúum að einum þætti í einu.

Markmiðið er ekki að finna það sem er „að“. Öll sambönd eiga sína styrkleika og sínar áskoranir. Það sem skiptir máli er að taka eftir því hvað gengur vel, hvað þarfnast athygli og hvernig hægt er að efla tengslin – saman, skref fyrir skref.

Í næstu færslum göngum við saman um húsið, herbergi fyrir herbergi. Við skoðum hvað hvert þeirra stendur fyrir, hvers vegna það skiptir máli og hvaða litlu, meðvituðu skref geta styrkt hvert herbergi – og þar með sambandið í heild.

Von mín er að þessi sería gefi ykkur tækifæri til að líta á sambandið með nýjum augum – ekki til að dæma það, heldur til að skilja það betur og hlúa að því. 🤍

💚 Ef sambandið ykkar væri hús – hvaða herbergi myndi fá mesta athygli í dag?

https://ufr.is/

Traust er ekki eitthvað sem annað hvort er til – eða ekki til.👉 Traust byggist upp hægt.Í litlum augnablikum aftur og af...
20/06/2026

Traust er ekki eitthvað sem annað hvort er til – eða ekki til.

👉 Traust byggist upp hægt.

Í litlum augnablikum aftur og aftur.

Þegar við:
✨ stöndum við orð okkar
✨ sýnum stuðning
✨ segjum sannleikann
✨ og tökum ábyrgð þegar við gerum mistök

Traust hjálpar okkur að vera opin.

Að deila því sem okkur finnst.
Að sýna viðkvæmar hliðar okkar.
Að treysta því að hinn muni ekki nota það gegn okkur.

En stundum veikist traustið.

Ekki alltaf í einum stórum atburði.

Heldur oft í litlum vonbrigðum sem safnast upp með tímanum.

✨ loforð eru ekki haldin
✨ samkomulög gleymast
✨ stuðning vantar
✨ eða við upplifum að hinn sé ekki til staðar þegar á reynir

Og þá getur myndast mynstur sem mörg pör þekkja:

👉 annar leitar svara og fullvissu
👉 hinn dregur sig í hlé eða fer í vörn

Því meira sem annar eltist við svör,
því meira getur hinn fjarlægst.

En það er mikilvægt að muna þetta:

❤️ Traust þýðir ekki að við bregðumst aldrei hvort öðru.

Heldur að við tökum ábyrgð þegar það gerist.

Að við tölum um það sem særði.
Að við hlustum.
Og reynum að bæta fyrir það sem fór úrskeiðis.

Þannig getur traust endurbyggst.

Smátt og smátt.

Til í að velta þessu fyrir þér / ykkur?

• Finn ég að ég geti treyst makanum mínum?
• Finnur maki minn að hann geti treyst mér?
• Hvernig sýnum við hvort öðru að við séum til staðar?
• Hvað gæti styrkt traustið okkar enn frekar?

❤️ Traust byggist upp í litlum augnablikum aftur og aftur.



https://ufr.is/

Skuldbinding snýst ekki um að vera fastur.👉 Hún snýst um að vera staðráðinn í að hlúa að sambandinu.Mörg pör upplifa tím...
01/06/2026

Skuldbinding snýst ekki um að vera fastur.

👉 Hún snýst um að vera staðráðinn í að hlúa að sambandinu.

Mörg pör upplifa tímabil þar sem tilfinningarnar eru ekki jafn sterkar og áður.

Þreyta, álag, börn, veikindi eða áhyggjur geta tekið mikið pláss.

Þá er auðvelt að velta fyrir sér hvort eitthvað sé að sambandinu.

👉 En einmitt þá verður skuldbindingin mikilvæg.

Ekki sem krafa um að þrauka hvað sem tautar og raular.

Heldur sem meðvituð ákvörðun um að halda áfram að velja hvort annað, sýna að sambandið skipti máli og fjárfesta í tengingunni.

Því sterk sambönd byggjast ekki bara á því sem við finnum í augnablikinu.

Þau byggjast líka á því sem við veljum að byggja saman.

Og stundum birtist skuldbinding í litlum hlutum:

✨ að gefast ekki upp eftir erfiðan dag
✨ að sýna áhuga þegar hinn dregur sig í hlé
✨ að ræða það sem skiptir máli
✨ að halda áfram að velja „við“ frekar en „ég gegn þér“

Til í að velta þessu fyrir þér / ykkur?

• Finn ég að við séum í sama liði?
• Hvernig sýnum við skuldbindingu í daglegu lífi?
• Hvað hjálpar okkur að velja hvort annað þegar á móti blæs?
• Hvað minnir okkur á hvers vegna við völdum hvort annað til að byrja með?

❤️ Skuldbinding er ekki bara tilfinning – hún er val sem við tökum aftur og aftur.

👉 Í næsta pósti skoðum við síðasta herbergið í parasambandshúsinu: traustið ❤️



https://ufr.is/

Það er ekki rifrildið sem skemmir foreldrasamstarf.👉 Heldur það sem gerist eftir á.Þegar við eigum börn verður álagið of...
26/05/2026

Það er ekki rifrildið sem skemmir foreldrasamstarf.

👉 Heldur það sem gerist eftir á.

Þegar við eigum börn verður álagið oft meira:
þreyta, tímaskortur, ábyrgð og endalaus verkefni.

Og smám saman geta myndast mynstur sem við tökum varla eftir.

✨ annar tekur meira utan um skipulagið
✨ hinn bíður eftir fyrirmælum
✨ annar upplifir að hann beri allt
✨ hinn upplifir gagnrýni eða að hann geri aldrei nóg

Og þá verður auðvelt að festast í fjarlægð.

👉 Það er oft ekki viljinn sem vantar.
Heldur tengingin.

Foreldrasamstarf snýst nefnilega ekki um að gera allt fullkomlega jafnt.
Heldur að upplifa sig sem lið.

Að:
• tala saman
• sýna hvort öðru skilning
• viðurkenna framlag hvors annars
• og muna að þið eruð ekki bara foreldrar — heldur líka makar

Því börn finna þegar foreldrar standa saman ❤️

Og stundum byrjar breytingin á mjög litlu:

✨ „Takk fyrir þetta.“
✨ hlýju augnaráði
✨ smá stuðningi í dagsins önn
✨ eða því að spyrja:
„Hvernig get ég létt undir með þér í dag?“

Til í að velta þessu fyrir þér / ykkur?

• Finnst okkur við vera lið?
• Hvernig skiptist ábyrgðin hjá okkur?
• Finn ég að framlag mitt sé metið?
• Hvað hjálpar okkur að tengjast aftur þegar við fjarlægjumst?

Foreldrasamstarf byggist ekki á fullkomnun — heldur samvinnu ❤️

👉 Í næsta pósti skoðum við næsta herbergi sambandsins:
✨ skuldbindinguna ✨



https://ufr.is/

Address

Höfðabakki 9
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Urðarbrunnur - Fjölskylda & Ráðgjöf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Urðarbrunnur - Fjölskylda & Ráðgjöf:

Shortcuts

Share