10/04/2026
Hæ! Ég horfði nýlega á heimildamyndina "Inside the Manosphere" frá Louis Theroux. Eftir að hafa horft á myndina þá fór ég að pæla aðeins í þessu fyrirbæri "Manosphere" og ákvað að lesa mér aðeins betur til um þetta. Í kjölfarið á því vöknuðu nokkrar pælingar hjá mér sem ég ákvað að deila með ykkur hérna á síðunni minni.
Það fyrsta sem sló mig í lok myndarinnar var það að flestir þessara áhrifavalda komu frá heimilum einstæðra mæðra. Mér fannst þetta sérstaklega áhugavert þar sem ég sjálfur var alinn upp af einstæðri móður að 8-9 ára aldri. Þetta vakti upp pælingar hjá mér með karlkyns fyrirmyndir og hvort hluti af vandamálinu þegar kemur að þeim sem aðhyllast hugmyndafræði "Manosphere" væri skortur af góðum og heilbrigðum karlkyns fyrirmyndum í líf ungra stráka, og þá sérstaklega á internetinu þar sem við eyðum stórum hluta af tímanum okkar.
Ég sá einmitt stuttu eftir myndina myndband þar sem uppistandarinn Jimmy Carr var spurður út í "Manosphere" og hann sagði eitthvað á þessa leið, "Það sem þeir segja er ömurlegt, en þeir eru þó að reyna að tala við unga menn, sem vantar að gera, við þurfum bara betri raddir".
Þetta undirstrikaði svolítið fyrir mér að það er skortur á karlkyns fyrirmyndum í samfélaginu.
Það vekur þó upp fleiri spurningar um hugsanlegar lausnir.
Er lausnin að aðstoða feður við að vera meira til staðar heima?
Er það að fjölga karlkyns kennurum?
Önnur pæling hjá mér var hvaðan kemur þetta? Hvar byrjar þetta og hvernig nær þetta svona mikilli fótfestu?
Ég las eina grein um þetta sem vísaði til þess að þetta hefði byrjað á forsendum karlréttinda. Það er að segja að þetta hefði byrjað á spjallsíðum eins og Reddit þar sem karlar voru að ræða réttindi karla, sem þeim fannst hafa gleymst í jafnréttinda-baráttunni sem hefur verið og er enn í gangi. Þar sem þeir ræddu um sjálfsvígstíðni, heimilisleysi, afbrotatíðni og námsárangur, þar sem vissulega karlar/strákar koma verr út.
Það er spurning hvort að sá vettvangur hafi svo bara verið auðveldlega misleiddur til þess að halda að það væri feminístum að "kenna" og þaðan komi þessi mikla andúð á konum sem hugsanlega veltur bara upp á sig í andúð á allt sem er ekki eins og þeir sjálfir, eins og við sáum í myndinni um skoðanir þeirra á hinsegin fólki og fólki af öðrum trúarbrögðum.
Seinasta sem mig langar svo að segja um þetta snýr bara að samfélagsmiðlunum sjálfum, og þá ekki endilega þegar bara kemur að þessu málefni. Þá sérstaklega um algóriþmana þar á bakvið.
Ég held að við þurfum öll að passa okkur þegar kemur að því að taka upplýsingar og fréttir á samfélagsmiðlum sem sannleika. Það er svo svakalega auðvelt að lenda í bergmálshelli, þar sem við erum mötuð af upplýsingum sem gera ekkert annað en að staðfesta skoðanir okkar, hverjar sem þær eru.
Það er heilbrigt að sjá margvísleg sjónarhorn og skoðanir, það eykur skilning okkar á þeim sem eru ósammála okkur og gerir okkur öllum betur kleift að enda í jafnvægi, sátt og samlyndi, frekar en þessu endalausa skoðanastríði.
Ef þið hafið eitthverjar spurningar eða pælingar sem ykkur langar að deila með mér um þetta mál ekki hika við að henda á mig línu á [email protected]!
Svo er alltaf opið fyrir tímabókanir hjá mér inn á https://noona.is/gedveikasalfraedistofan