23/01/2023
Sjónþjálfun
Optometrist er sá sem sér um samræmda þjálfun augna og heila í þeim tilgangi að auðvelda eðlilega beitingu augna (auðvelda samsjón) og úrvinnslu sjónupplýsinga í heila. Auk þess getur sjónþjálfi í sumum tilfellum bætt sjónskerpu þegar þess gerist þörf.
Fólk á öllum aldrei getur átt í erfiðleikum með að beita augum rétt, svo sem við akstur, sjónvarpsáhorf, skjávinnu og lestur. Hyggja þarf sérstaklega að börnum sem eiga erfitt með að læra að lesa, eiga erfitt með einbeita sér, sjá tvöfalt eða kvarta um höfuðverk. Þau geta komið mjög vel út úr hefðbundinni sjónskoðun en ráða samt ekki við að beita augum rétt og það getur dulist leikjum sem lærðum. Því þurfa þessi börn mjög góða skoðun af einstaklingum sem hafa menntun til þess og vita hvers skal leita. Við fáum margar ábendingar frá læknum, sérfræðinum og glöggum kennurum sem vilja láta athuga augu nemenda með námserfiðleika áður en aðrar ástæður eru skoðaðar. Einkenni eins og úthaldsleysi við lestur, einbeitingaerfiðleikar og almennir námserfiðleikar skapast stundum af augnvandamálum sem geta verið aðalorsök einkenna en fer stundum saman með öðrum ástæðum. Eitt útilokar ekki annað. Því er mikilvægt að leitað sé orsakana og truflun í starfsemi augna útilokuð áður en aðrar greiningar eru settar á einstaklinga með námserfiðleika.
Hér deili ég kynningu sem var gerð af kanadíska Optometrist.
Sjón - tengsl sjónar og náms