Hulda Tölgyes sálfræðingur

Hulda Tölgyes sálfræðingur Sálfræðingur, MSc - Instagram .tolgyes - Námskeið - Fyrirlestrar - Biðlisti fullur

Að sjálfsögðu „beygði hún af”. Þorgerður sýnir hér algjörlega eðlileg viðbrögð við því að vera hótað. Fréttin og fyrirsö...
28/08/2026

Að sjálfsögðu „beygði hún af”. Þorgerður sýnir hér algjörlega eðlileg viðbrögð við því að vera hótað.

Fréttin og fyrirsögnin ætti að snúast um það alvarlega ofbeldi sem hótunin er. Sama hversu sterk eða sjóuð kona er þá er ekkert eðlilegt við það að geta bara hunsað eða hrist af sér líflátshótanir. Við erum spendýr með kerfi sem berst fyrir því að við lifum af og við höfum líffræðilega þörf fyrir öryggi. Það er sammannlegt og þarna er hennar öryggi ógnað.

Ég sé þig, Þorgerður og mun alltaf standa með þér og öðrum konum í þessari stöðu❤️‍🔥

Find your people✨💞
05/08/2026

Find your people✨💞

Hugsið þið einhverntíma út í það að þið GETIÐ talað við yngri parta af ykkur og verið forvitin um þá? Veitt þeim öryggi,...
16/07/2026

Hugsið þið einhverntíma út í það að þið GETIÐ talað við yngri parta af ykkur og verið forvitin um þá? Veitt þeim öryggi, séð þá, sýnt þeim samkennd og hlustað á þá. Þið getið líka sagt þeim hvernig lífið lítur út núna, sumir þeirra vita það ekki.

Allir partar af okkur eiga það sameiginlegt að hafa gert það sem þeir gátu til að lifa af hverju sinni. Engin partur er vondur, asnalegur eða óverðugur þess að finna fyrir öryggi og ást.

Ég hef sjálf þurft að leiðbeina mínum yngri pörtum og uppfæra það hvaða þær vita, hjálpa þeim að skilja til dæmis að ég er fullorðin núna, að gömul hætta er liðin hjá og svo minni ég þær á að ég ætla að hugsa fallega um þær 🥹

💞💖✨

25/06/2026

🩵

22/06/2026

Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa haft vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum hin síðari ár, bæði sem hluta af öðru ofbeldi en líka sem hluta af kynlífi þar sem klámáhrifa gætir. Slík valdbeiting er iðulega kynbundin, þ.e. karlar eða drengir að kyrkja konur eða stúlkur. Ranghugmynda gætir um að eitthvað sé til sem heitir öruggar kyrkingar en nýlegar rannsóknir leiða í ljós meiri hættu við að þrengja að blóðflæði til heilans en áður hefur verið talið.

Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum (töluvert minna átak en þrýstingurinn við venjulegt handaband). Það geta orðið alvarlegar skemmdir á heila þótt engin ummerki sjáist og alvarleikinn kemur jafnvel ekki ljós fyrr en mörgum dögum síðar. Í hálsinum eru viðkvæm bein og beingerð brjósk sem geta brotnað við þrýsting án þess að það sé sýnilegt eða uppgötvist strax. Að kyrkja aðra manneskju er alltaf hættuspil og getur haft mjög alvarlegar afleiðingar hvort sem það er meðvitað eða ómeðvitað ofbeldi, kynferðislegt eða ekki.

Stígamót, Samtök um kvennaathvarf, Bjarkarhlíð- miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, Vitund – samtök gegn kynbundnu ofbeldi, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Félag kynjafræðikennara hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli á þessum hættum, miðla nýjustu þekkingu og hvetja til fræðslu og umræðu. Átakið ber heitið „Með lífið í lúkunum” og miðlar staðreyndum um hættu kyrkingartaka.

Með lífið í lúkunum fer af stað 22. júní og verður kynnt fyrir öllum aldurshópum en þess ber að geta að ungt fólk á Íslandi hefur sérstaklega kallað eftir meiri fræðslu um kynhegðun og kynbundið ofbeldi.

19/06/2026

.arna .earth 🐋

Reykjavík á að vera borg þar sem hinsegin fólk getur upplifað sig bæði öruggt og samþykkt 🏳️‍🌈🏳️‍⚧️Ég skora á  að nýta s...
18/05/2026

Reykjavík á að vera borg þar sem hinsegin fólk getur upplifað sig bæði öruggt og samþykkt 🏳️‍🌈🏳️‍⚧️
Ég skora á að nýta sín völd fyrir þau ❤️💛🧡💚💙💜🤎🤍🩷

Ef þér er raunverulega annt um velferð barna, þá er þér líka annt um velferð hinsegin barna, trans barna og barna með an...
14/05/2026

Ef þér er raunverulega annt um velferð barna, þá er þér líka annt um velferð hinsegin barna, trans barna og barna með annan húðlit en þinn.

Prove me wrong.

Sem betur fer erum við að læra meira og meira um það hvað börn þurfa. Allar kynslóðir fá einhverja fræðslu að gjöf sem e...
06/05/2026

Sem betur fer erum við að læra meira og meira um það hvað börn þurfa. Allar kynslóðir fá einhverja fræðslu að gjöf sem er háð menningu og þekkingu hvers tíma. Okkar fræðsla er öðruvísi en sú sem var fyrir 20 árum, 40 árum…
Leyfum okkur að stíga inn í öðruvísi uppeldisaðferðir þar sem börn eru virtir, séðir og heyrðir samfélagsþegnar 💕✨🤞🏻

Í fyrsta sinn eftir 6 ár á Instagram ætla ég að gera leik 😅Þú og manneskjan sem þú merkir undir færsluna fáið bæði tvær ...
01/05/2026

Í fyrsta sinn eftir 6 ár á Instagram ætla ég að gera leik 😅
Þú og manneskjan sem þú merkir undir færsluna fáið bæði tvær bækur og eitt spil ef þið vinnið🩵

Bæði þurfa að vera fylgjendur .tolgyes en þið þurfið ekki að deila í story frekar en þið viljið 🤭

Dreg út á mæðradaginn 10.maí 🥰

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hulda Tölgyes sálfræðingur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Hulda Tölgyes sálfræðingur:

Shortcuts

Share

Category