07/07/2026
Klifurhópur FBSR var settur af stað í janúar eftir námskeið í fjallamennsku 2 hjá þáverandi nýliðum. Hópurinn rauk strax af stað og á einni viku voru komnir 14 meðlimir FBSR í hópinn og hefur haldið áfram uppvexti sínum síðan þá.
🧗Það hefur verið mikil virkni innan klifurhópsins frá upphafi en hópurinn hefur meðal annars farið í grjótglímu (e. boulder) innandyra í Klifurhúsinu, fengið sérstakt FBSR-línuklifurnámskeið frá Klifurfélagi Reykjavíkur, farið í línuklifur í Miðgarði ásamt því að fara í línuklifur úti í hinum ýmsu klifurklettum.
Hópstjórar þessa afþreyingarhóps gera ráð fyrir áframhaldandi góðri virkni innan hópsins þar sem ýmsar hugmyndir hafa sprottið upp varðandi hvað hægt væri að klifra saman. Áhugasvið meðlima hópsins spannar allt frá innandyra klifri yfir í ísklifur, dótaklifur, fjölspannaklifur og fleira.
🚨Svona öflugt innra starf styrkir liðsheild, traust og hæfni sem eru gildi FBSR.