Sjúkratryggingar

Sjúkratryggingar Markmið laganna um sjúkratryggingar er að tryggja sjúkratryggðum aðstoð til verndar heilbrig? október 2008.

Sjúkratryggingar Íslands starfa samkvæmt lögum um sjúkratryggingar sem tóku gildi þann 1. Stofnunin heyrir undir velferðarráðherra og annast framkvæmd sjúkratrygginga. Jafnframt semur hún um og greiðir fyrir heilbrigðisþjónustu. Markmið laganna um sjúkratryggingar er að tryggja sjúkratryggðum aðstoð til verndar heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Jafnframt er markmiðið

að stuðla að rekstrar- og þjóðhagslegri hagkvæmni í heilbrigðisþjónustu og hámarksgæðum þjónustunnar eftir því sem frekast er unnt. Þá er það einnig markmið laganna að styrkja hlutverk ríkisins sem kaupanda heilbrigðisþjónustu og kostnaðargreina þjónustuna.

Í tilefni 90 ára afmælis Almannatrygginga á Íslandi verður afmælisráðstefna í Hörpu 30. september.
27/08/2026

Í tilefni 90 ára afmælis Almannatrygginga á Íslandi verður afmælisráðstefna í Hörpu 30. september.

Afmælisráðstefna í Hörpu 30. september

Afgreiðsla og símsvörun verður lokuð föstudaginn 28. ágúst
27/08/2026

Afgreiðsla og símsvörun verður lokuð föstudaginn 28. ágúst

Við vekjum athygli á því að föstudaginn 28. ágúst verður lokað í afgreiðslu og símsvörun Sjúkratrygginga. Frekari upplýsingar um þjónustu eru aðgengilegar á heimasíðu okkar sjukra.is

,,Sjúkratryggingar Íslands eru í dag einn af hornsteinum þessarar hugsjónar um að tryggja skuli öllum aðgengi að bestu f...
26/08/2026

,,Sjúkratryggingar Íslands eru í dag einn af hornsteinum þessarar hugsjónar um að tryggja skuli öllum aðgengi að bestu fáanlegu heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og öðrum aðstæðum og gegna þannig lykilhlutverki við mótun nútímalegrar heilbrigðisþjónustu.”

Grein eftir Sigurð H. Helgason, forstjóra Sjúkratrygginga, í tilefni að 90 ára afmæli almannatrygginga á Íslandi.

Níutíu ár eru liðin frá því að Alþingi samþykkti fyrstu heildstæðu lög um almannatryggingar á Íslandi. Þar var lagður grunnur að einni mikilvægustu stoð íslensks samfélags og þeirri sannfæringu að heilsa og öryggi fólks eigi ekki að ráðast af efnahag eða aðstæðum.

Sjúkratryggingar og danska fyrirtækið Frameshift hafa hafið samstarf sem  að styrkja greiningagetu Sjúkratrygginga, styð...
12/08/2026

Sjúkratryggingar og danska fyrirtækið Frameshift hafa hafið samstarf sem að styrkja greiningagetu Sjúkratrygginga, styðja betur við ákvarðanatöku og bæta yfirsýn yfir kostnað og árangur í íslensku heilbrigðiskerfi.

Forstjóri Sjúkratrygginga vonast til að í auknum mæli megi hagnýta megi gögn til að bæta ákvarðanatöku í heilbrigðisþjónustu. Stofnunin hefur hafið samstarf við danska fyrirtækið Frameshift.

Sjúkratryggingar vekja athygli á því að þann 1. september næstkomandi tekur gildi reglugerð um breytingar á komugjöldum.
22/07/2026

Sjúkratryggingar vekja athygli á því að þann 1. september næstkomandi tekur gildi reglugerð um breytingar á komugjöldum.

Sjúkratryggingar taka reglulega til meðferðar mál sem varða greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis. Samkvæmt lö...
10/07/2026

Sjúkratryggingar taka reglulega til meðferðar mál sem varða greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis. Samkvæmt lögum um sjúkratryggingar getur greiðsluþátttaka komið til álita þegar sjúkratryggðum er brýn nauðsyn á viðurkenndri meðferð sem ekki er unnt að veita hér á landi.

Sjúkratryggingar taka reglulega til meðferðar mál sem varða greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis

„Samningurinn er mikilvægur bæði fyrir einstaklinga og heilbrigðiskerfið. Endurhæfing skiptir miklu máli fyrir lífsgæði ...
02/07/2026

„Samningurinn er mikilvægur bæði fyrir einstaklinga og heilbrigðiskerfið. Endurhæfing skiptir miklu máli fyrir lífsgæði fólks og getur dregið úr þörf fyrir frekari heilbrigðisþjónustu síðar. Með langtímasamningi skapast betri fyrirsjáanleiki fyrir rekstur þjónustunnar og jafnframt svigrúm til að þróa greiðslufyrirkomulag og efla gæði og árangur meðferðar.“ segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.

Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ undirrita nýjan fjögurra ára þjónustusamning um sérhæfða endurhæfingu.

Vakin er athygli á því að nýr samningur um bað- og salernishjálpartæki tekur gildi 1.7.2026. Samið var við tvö fyrirtæki...
02/07/2026

Vakin er athygli á því að nýr samningur um bað- og salernishjálpartæki tekur gildi 1.7.2026.
Samið var við tvö fyrirtæki að þessu sinni, Stuðlaberg og Fastus Heilsu.
Nálgast má nýtt upplýsingahefti hér:

Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.

Nýr langtímasamningur við Ljósið undirritaðurHeilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga og forsvarsfólk Ljóssins skr...
02/06/2026

Nýr langtímasamningur við Ljósið undirritaður

Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga og forsvarsfólk Ljóssins skrifuðu í dag undir nýjan langtímasamning til fjögurra ára um endurhæfingarþjónustu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein.

,,Það er mikið fagnaðarefni að langtímasamningur hafi náðst við Ljósið. Með samningnum er tryggð mikilvægt öryggi og fyrirsjáanleiki fyrir starfsemi sem hefur skipt þúsundir einstaklinga og fjölskyldur þeirra miklu máli á erfiðum tímum. Samningurinn styður jafnframt við áframhaldandi þróun þjónustunnar og aukið aðgengi um land allt.“ segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.

Alma Möller heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga og forsvarsfólk Ljóssins hafa nú skrifað undir nýjan langtímasamning til fjögurra ára um endurhæfingarþjónustu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein.

Greiðslukerfi framtíðar og fjármögnun heilbrigðisþjónustu Sjúkratryggingar standa þessa dagana fyrir ráðstefnu og vinnus...
02/06/2026

Greiðslukerfi framtíðar og fjármögnun heilbrigðisþjónustu

Sjúkratryggingar standa þessa dagana fyrir ráðstefnu og vinnustofu um þróun greiðslukerfa og fjármögnun heilbrigðisþjónustu. Sérstök áhersla er lögð á DRG-greiðslukerfið og hvernig þróa megi fjármögnun heilbrigðiskerfisins til framtíðar.

Fjórir alþjóðlegir sérfræðingar flytja erindi og þátttakendur koma víða að, meðal annars frá heilbrigðisráðuneytinu, Landspítala, heilbrigðisstofnunum um land allt, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og Sjúkratryggingum.

Ráðstefnan er liður í því að efla þekkingu á fjármögnun heilbrigðisþjónustu og stuðla að greiðslukerfum sem styðja við gæði, árangur og skilvirka nýtingu fjármuna í íslenska heilbrigðiskerfinu.

Address

Vínlandsleið 16
Reykjavík
113

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sjúkratryggingar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Sjúkratryggingar:

Shortcuts

Share