Birta Heilsa

Birta Heilsa Heilsunudd, ráðgjöf og hópatímar

Ég heiti Kristín Berta Sigurðardóttir og er eigandi Birtu - Heilsu. Ég býð upp á hópatíma, heilsunudd, heilsuráðgjöf og heilsutengda fyrirlestra fyrir fyrirtæki.

Ég er útskrifaður heilsunuddari frá heilbrigðisskóla FÁ.

Ég legg mikla áherslu á fagleg vinnubrögð og vinn heildrænt með nuddþegum mínum að lausn þeirra mála.

12/08/2026

Öfug axlaskrúfa💪

Þessa teygju nota ég gríðalega mikið á bekknum.

Frábær ef fólk er með vöðvabólgu og stíft aftan á hálsi sem dæmi. Þegar brjóstið er stíft (fremri keðja lokuð - algengt að gerist hjá skrifstofufólki t.d.) kemur oft tog aftur í brjóstbak/axlir/háls.

Þessa nota ég líka mikið á brjóstakonurnar mínar, eftir aðgerðir og geislameðferðir til að losa um stífan bandvef. Sumar hafa losnað við leiðniverki niður í handleggi í kjölfarið.🩷

Ein af mínum uppáhalds☺️

Mæli svo mikið með! Elsku vinir mínir að hugsa um viðkvæmasta hópinn og þau sem þurfa extra mýkt og þau sem vilja meiri ...
07/08/2026

Mæli svo mikið með!

Elsku vinir mínir að hugsa um viðkvæmasta hópinn og þau sem þurfa extra mýkt og þau sem vilja meiri ró og slökun í líf sitt.

Get ekki mælt nógu mikið með❤️

Næsta námskeið - 10. ágúst

Mýkt og meðvitund er rólegt og nærandi námskeið sem sameinar mjúkar flæðandi teygjur, liðkandi hreyfingar, milda vefjalosun og leidda slökun.
Áhersla er lögð á öndun í teygjum og slökun, og eru kennslustundirnar hannaðar til að skapa innri ró, léttleika og jafnvægi í daglegu lífi.*

Tímar námskeiðsins henta iðkendum sem vilja koma sér af stað í hreyfingu eftir langan tíma, þeim sem eru að koma til baka eftir veikindi, fólki á besta aldri sem vill viðhalda liðleika og mýkt, eða þeim sem vilja njóta hreyfingar þar sem líkamsvitund, öndun og slökun eru í fyrirrúmi.

Kennarinn leiðbeinir mildar og aðgengilegar æfingar sem auðvelt er að aðlaga að eigin líkama og þörfum. Námskeiðið sameinar hreyfingu og leidda slökun á þann hátt að þátttakendur finna léttleika, aukna mýkt og innri ró – allt á öruggan og nærandi hátt.

https://www.abler.io/shop/primal/movement/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NTg2NTE=

Viðburðir í ágúst og haustdagskráin🤩🫶Kæru vinir!Nú fer allt að fara af stað í Borgartúninu eftir dásamlega gott sumarfrí...
04/08/2026

Viðburðir í ágúst og haustdagskráin🤩🫶

Kæru vinir!

Nú fer allt að fara af stað í Borgartúninu eftir dásamlega gott sumarfrí. Ég er búin að opna fyrir bókanir á eftirfarandi viðburði í Sinna.

Í ágúst:

💙PopUp laugardaginn 15. ágúst frá kl. 11:00-13:00 (áhersla á mjaðmir og fótleggi)

💙Yoga nidra föstudaginn 21. ágúst, kl. 17:30


Í september:

💙Teygjur, triggerpunktar og yoga nidra. Námskeið hefjast 7. og 9. september – tvær dagsetningar í boði

💙Yoga nidra, föstudaginn 4. september


💙Í október ætla ég að bjóða upp á hádegisnámskeið á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 12:00-12:45. Er ekki búin að opna fyrir skráningar á þau ennþá en læt ykkur vita.

💙Einnig eru að koma til mín dásamlegar konur, þær Birta og Lísa sem ætla að bjóða upp á KAP tíma (kundalini activation progress) á þriðjudagskvöldum. Auglýsi nánar síðar og hvar hægt er á bóka hjá þeim. Þær heita KAP & Kraftur á instagram fyrir áhugasama.

Ég hlakka til að sjá ykkur í paradísinni!

Ást og ylur, Kristín Berta

Skráning og nánari upplýsingar: sinna.is/birtaheilsa og í Sinna appinu🙏🏻

15/07/2026

Hversu cosy í rigningunni😌💙

30/06/2026

Sumarfrí og fullt nýtt í haust!

Stay tuned💙🙏🏻🫶

Address

Borgartún 28, 2. Hæð
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Birta Heilsa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Birta Heilsa:

Shortcuts

Share