23/06/2026
Í byrjun júní tóku fjórir starfsmenn Gló þátt í árlegri alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var á Írlandi á vegum European Academy of Childhood-onset Disability, EACD Galway 2026
Yfirskrift ráðstefnunnar var sótt í írskt máltæki: „Encourage the young and they will flourish“ eða: Hvetjum börnin áfram og þau munu blómstra 🌼
Á ráðstefnunni var heildræn sýn á fötlun, heilsu og þroska barna í forgrunni en dagskráin var skipulögð út frá F-orðunum í þroska barna: Færni, Fjölskylda, Form, Fjör, Félagar og Framtíð.
Við hlýddum á fjölmörg áhugaverð erindi og tókum þátt í málstofum þar sem rauði þráðurinn var skýr: inngilding, sjálfsákvörðun, virk þátttaka fjölskyldna í rannsóknum og þróun þjónustu, mikilvægi félagslegra tengsla og tækifæri barna til þátttöku.
Sérstök áhersla var lögð á 'agency' — eða áhrifamátt barna og ungmenna til að hafa rödd, val og raunveruleg áhrif á eigið líf. Það minnti okkur á mikilvægi þess að þjónusta sé ekki aðeins mótuð fyrir börn og fjölskyldur, heldur með þeim.
Þessi áhersla styður vel við það sem Gló stendur fyrir: að horfa á tækifæri í stað takmarkana til að efla þátttöku í daglegu lífi.
Ferðin var afar lærdómsrík og við erum þakklát fyrir þau ómetanlegu tengsl sem sköpuðust við fjölskyldur, fagfólk, rannsakendur og samstarfsaðila víðs vegar að úr heiminum. Samtölin, hugmyndirnar og samstarfið sem kviknaði í Galway munu án efa nýtast okkur áfram í þróun þjónustu sem styður þátttöku og inngildingu svo að öll börn og ungmenni fái að láta ljós sitt skína ✨
Við hlökkum til að fylgjast áfram með starfi EACD — og taka þátt í EACD 2027 í Aþenu á Grikklandi.