Björkin, ljósmæður

Björkin, ljósmæður Ljósmæðraþjónusta á meðgöngu, í fæðingu og í heimaþjónustu
Fæðingaheimili Síðumúla 10
Heimafæðingar

Afmælisdagurinn 6. maí var yndislegur og endaði á því að lítill drengur fæddist í Björkinni ❤️ Við héldum svo smá afmæli...
07/05/2026

Afmælisdagurinn 6. maí var yndislegur og endaði á því að lítill drengur fæddist í Björkinni ❤️ Við héldum svo smá afmælisveislu í foreldraspjalli í morgun með góðum gestum stórum og smáum. Við hlustuðum á brot úr Fæðingasögum feðra og Ísak sem gaf út bókina sagði okkur fæðingasögu bókarinnar. Takk fyrir okkur öll ❤️

04/05/2026

Apríl var sannkallaður heimafæðingamánuður í Björkinni. Frá og með 31. mars til og með 1. maí tókum við þátt í 10 heimafæðingum. Okkur þykir það sérstaklega skemmtilegt því apríl er merkilegur mánuður í sögu Bjarkarinnar. Í apríl fyrir 16 árum tókum við fyrst á móti barni í heimafæðingu. Í apríl fyrir 9 árum fengum við staðfestingu landlæknis að við uppfylltum kröfur til þess að reka fæðingarheimili og fæðingarheimilið okkar g*t hafið starfsemi eftir 2 ára undirbúning. Við kveðjum þennan apríl með þakklæti í hjarta og förum glaðar og kátar inní maí 💕

Okkur þykir mjög áhugaverð umræðan um algengustu fæðingastellingarnar hjá fæðandi konum hér á landi þar sem 80 % kvenna ...
10/04/2026

Okkur þykir mjög áhugaverð umræðan um algengustu fæðingastellingarnar hjá fæðandi konum hér á landi þar sem 80 % kvenna fæða börn sín hálf sitjandi eða liggjandi á bakinu. Það sem af er ári hafa 80 % kvenna sem fætt hafa í Björkinni eða í heimafæðingu með aðstoð Bjarkarljósmæðra, fætt börn sín í öðrum stellingum, langflestar á hnjám í uppréttri stöðu eða á fjórum fótum og þannig hefur það verið í gegnum árin. Til gamans má einnig geta að 71 % hafa fætt barnið sitt í vatni.

Address

Síðumúli 10
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Björkin, ljósmæður posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share