Samhjálp Félagasamtök

Samhjálp Félagasamtök Samhjálp félagasamtök hafa starfað að góðgerðarmálum og hjálparstarfi í rúmlega hálfa öld. Við bjóðum morgunkaffi, meðlæti og heita máltíð í hádeginu.

Starfsemi Samhjálpar

Markmið Samhjálpar er að veita bjargir til þeirra einstaklinga sem finna sig á jaðri samfélagsins vegna sjúkdóma, fátæktar eða annarra samfélagslegra áskorana. Samhjálp á sér yfir 50 ára sögu og hefur kjarni starfseminnar falist í því að standa vörð um þá sem minna mega sín eða glíma við áfengis- og vímaefnavanda. Höfuðstöðvar Samhjálpar eru í Skútuvogi 1g, 104 Rvk. Þar eru s

krifstofur, útgáfa Samhjálparblaðsins og miðstöð fjáröflunar. Kaffistofa Samhjálpar skiptist í tvo þjónustuhluta, eldhúsið þar er maturinn eldaður fyrir kaffistofuna og er staðsett í Lynghalsi 3 og matsalurinn er tímabundið í Hátún 2, en flytur í lok árs á Grensásveg 46. Þar er opið alla daga ársins frá kl. 10-14. Kaffistofan er ætluð þeim sem eru í neyð og hafa ekki tök á að sjá sér fyrir mat sjálfir. Kaffistofan er eingöngu fyrir fullorðna yfir 18 ára aldri og ekki viðeigandi að börn komi þangað inn. Við gefum allt að 250 máltíðir á dag og hundrað þúsund máltíðir àrlega. Samhjálp rekur elsta meðferðarheimili landsins, Hlaðgerðakot í Mosfellsdal. Þar eru um 30 einstaklingar í meðferð á hverjum tíma og að jafnaði um 100 manns á biðlista eftir meðferð. Einnig höfum við umsjón með áfanga- og stuðningsheimilinunum að M18 í Reykjavík og D27 í Kópavogi. Samhjálparsamkomur eru alla fimmtudaga kl. 20 - en byrjum á mat og samfélagi kl. 19 þar sem matur er seldur á kostnaðaverði. Samkomur er haldnar í húsi Fíladelfíu, Hátúni 2- samkoan er í aðalsal og maturinn í kaffisal kirkjunnar. Allir eru hjartanlega velkomnir á þessar stundir. Nánari upplýsingar um starfsemi Samhjálpar á www.samhjalp.is

Takk hlauparar sem hlupu fyrir Samhjálp og styrktaraðilar þeirra 💛Við erum í skýjunum með þau áheit sem hafa borist til ...
26/08/2026

Takk hlauparar sem hlupu fyrir Samhjálp og styrktaraðilar þeirra 💛
Við erum í skýjunum með þau áheit sem hafa borist til styrktar samtakanna. Reykjavíkurmaraþonið er mikilvæg fjáröflun fyrir okkur og hver einasta króna nýtist til að styðja við fólk sem þarf á því að halda. 🙏

Hlauparar Samhjálpar náðu frábærum árangri í Reykjavíkurmaraþoninu í ár og söfnuðu metupphæð. Við erum þakklát og ósegja...
24/08/2026

Hlauparar Samhjálpar náðu frábærum árangri í Reykjavíkurmaraþoninu í ár og söfnuðu metupphæð. Við erum þakklát og ósegjanlega glöð að eiga að svona magnaðan stuðningshóp.

Í Reykjavíkurmaraþoninu í ár söfnuðu 19 manns áheitum til styrktar Samhjálp og settu söfnunarmet. Alls söfnuðust 2,5 milljónir sem munu koma sér vel til að efla starfssemi Samhjálpar og hlú […]

Kæru hlauparar, gangi ykkur sem allra best á morgun! 💛Það er enn tími til að heita á hlauparana okkar hér: https://www.r...
21/08/2026

Kæru hlauparar, gangi ykkur sem allra best á morgun! 💛

Það er enn tími til að heita á hlauparana okkar hér: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/416-samhjalp 🏃‍♀️ Hjálpaðu þeim að láta hvert skref telja og leggðu þitt af mörkum við að styrkja fólk í viðkvæmri stöðu. Hvert áheiti skiptir sköpum!

Til hamingju með daginn Aron 🥳
20/08/2026

Til hamingju með daginn Aron 🥳

Aron Smári sem er nýjasti starfsmaðurinn í Hlaðgerðarkoti fagnar afmæli í dag. Aron er Áfengis- og Vímuefnaráðgjafi og tók til starfa núna í ágúst. Til hamingju með afmælið Aron og vertu velkominn í starfsmannahópinn ❤️🥳

Saman getum við gert meira 💛
19/08/2026

Saman getum við gert meira 💛

Á hverjum degi gefum við allt að 250 máltíðir til skjólstæðinga Kaffistofunnar. Margir af okkar skjólstæðingum búa við m...
14/08/2026

Á hverjum degi gefum við allt að 250 máltíðir til skjólstæðinga Kaffistofunnar. Margir af okkar skjólstæðingum búa við mjög erfiðar og óvægar aðstæður og þess vegna leggjum við áherslu á að mæta öllum sem til okkar leita af virðingu og kærleik 💛

Loftur Jóhannsson hleypur í minningu dóttursonar síns, Sölva. Hann glímdi við einhverfu og alvarlega kvíðaröskun. Sá van...
13/08/2026

Loftur Jóhannsson hleypur í minningu dóttursonar síns, Sölva. Hann glímdi við einhverfu og alvarlega kvíðaröskun. Sá vandi leiddi til þess að drengurinn þróaði með sér fíkn. Loftur og Sölvi hittust eitt sinn á Kaffistofunni og eftir það leitaði Sölvi þangað oft.

Loftur Jóhannsson hefur í gegnum tíðina skokkað fremur en hlaupið að eigin sögn en ætlar engu að síður að hlaupa 10 km fyrir Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Loftur hleypur […]

Guðbjartur Elí Guðbjartsson er einn þeirra sem hleypur fyrir Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu. Hann segist hafa valið Sa...
12/08/2026

Guðbjartur Elí Guðbjartsson er einn þeirra sem hleypur fyrir Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu. Hann segist hafa valið Samhjálp vegna þess að samtökin gefi fólki von um að hægt sé að byggja upp nýtt líf.

Guðbjartur Elí Guðbjartsson er einn þeirra sem hafa ákveðið að hlaupa til styrktar Samhjálp í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Það val segir hann fyrst og fremst hafa ráðist af því að […]

Address

Skútuvogur 1g
Reykjavík
201

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 15:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 15:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

5611000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samhjálp Félagasamtök posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Samhjálp Félagasamtök:

Shortcuts

Share