Sentia Sálfræðistofa

Sentia Sálfræðistofa Sálfræðiþjónusta fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur. Sentia starfrækir einnig Sentia Námskeið (LARP, Nexus Noobs D&D o.fl)

www.sentia.is

Kennitala 490315-2090
Sentia 0318-26-7778
Nexus Noobs 0322-22-004309

Olga Björt Þórðardóttir, fjölmiðlakona, spyr hvers vegna samfélagið samþykkti að kynferðisbrot séu óumflýjanlegur fylgif...
01/08/2026

Olga Björt Þórðardóttir, fjölmiðlakona, spyr hvers vegna samfélagið samþykkti að kynferðisbrot séu óumflýjanlegur fylgifiskur útihátíða. Nú fyrir verslunarmannahelgina undirbýr lögregla, björgunarsveitarfólk, heilbrigðisstarfsfólk og skipuleggjendur sig fyrir að bregðast við kynferðisbrotum.

Varpar Olga einnig fram þeirri spurningu að fyrst langflestir karlar séu góðir menn hvers vegna fleiri þeirra rísi ekki upp og fordæmi þessa hegðun.

„Af hverju eru ekki fleiri góðir menn jafn háværir gegn ofbeldi og þeir eru stundum fljótir að verja sig gegn alhæfingum?“ spyr hún. „Af hverju eru ekki fleiri sem kalla vini sína til ábyrgðar þegar þeir niðurlægja konur? Af hverju eru ekki fleiri sem stöðva kynferðislega brandara, fyrirlíta klám sem sýnir ofbeldi og spyrja vini sína um samþykki kvenna? Ef góðu mennirnir vilja ekki bera afleiðingar af hegðun annarra karla, hvers vegna eru þeir ekki að vinna í að stöðva þá?“

Olga Björt Þórðardóttir, fjölmiðlakona, spyr hvers vegna samfélagið samþykkti að kynferðisbrot séu óumflýjanlegur fylgifiskur útihátíða. Nú fyrir verslunarmannahelgina undirbýr lögregla, björgunarsveitarfólk, heilbrigðisstarfsfólk og skipuleggjendur sig fyrir að bregðast ...

Við höldum á vit ævintýra! 🧝🏽‍♂️🧙🏻‍♀️✨Dungeons & Dragons námskeið í hlutverkaspilum.4.-7. ágúst og 10.-14. ágústSkráning...
30/07/2026

Við höldum á vit ævintýra! 🧝🏽‍♂️🧙🏻‍♀️✨

Dungeons & Dragons námskeið í hlutverkaspilum.
4.-7. ágúst og 10.-14. ágúst
Skráning: https://www.abler.io/shop/nexusnoobs

💚💚💚
25/06/2026

💚💚💚

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2026

Frábær ræða hjá frábærum ungum manni! 💚,,Ég var ekki alltaf auðveldur nemandi og oft bara hundleiðinlegur. Sumum fannst ...
24/06/2026

Frábær ræða hjá frábærum ungum manni! 💚

,,Ég var ekki alltaf auðveldur nemandi og oft bara hundleiðinlegur. Sumum fannst ég bara vera óþekkur. En hvað þýðir það eiginlega að vera óþekkur? Getur verið að þau séu einfaldlega að biðja um hjálp, en kunni bara ekki að segja frá því?

Ég fékk ADHD-greiningu snemma á skólagöngunni. Mamma sagði alltaf í gríni að ég hefði fengið greininguna „úti á túni að skíta“ því athyglisbresturinn var svo augljós. Seinna fékk ég svo greiningu á málþroskaröskun sem gerir mér erfitt fyrir að koma hugsunum mínum í orð. Þess vegna er eiginlega frekar fyndið að ég standi hér og haldi ræðu! Ég á fullt af skrítnum vinum, - og var viss um að þetta væri einhver þeirra að gera grín í mér þegar það var hringt í mig - en svo var ekki."

Málefli samtök fólks með málþroskaraskanir, developmental language disorder (DLD)
ADHD samtökin fyrir fólk með athyglisbrest með/án ofvirkni/hvatvísi (AMO/ADHD)

Ef einhver hefði sagt mér fyrir nokkrum árum að ég myndi standa hér í dag, tvíútskrifaður úr FSU og nýbúinn með sveinspróf, þá held ég að ekki margir hefðu trúað því. Sennilega ekki ég heldur.

Góðum áformum þarf að fylgja fjármagn og úrræði.
10/06/2026

Góðum áformum þarf að fylgja fjármagn og úrræði.

Ríkisendurskoðun telur innleiðingu farsældarlaga um samþættingu þjónustu við börn ekki hafa verið nægilega vel undirbúna og að hópar barna með fjölþættan og vímuefnavanda skorti enn þjónustu því meiri áhersla hafi verið lögð á samvinnu en að bæta úrræði.

Frábærir þættir sem vekja athygli á stöðu málefnum barna á Íslandi og hversu mikið vantar upp á að við séum að gera vel....
02/06/2026

Frábærir þættir sem vekja athygli á stöðu málefnum barna á Íslandi og hversu mikið vantar upp á að við séum að gera vel.

Embætti umboðsmanns barna hefur í fimm ár safnað upplýsingum um börn og biðlista. Á þeim tíma hafa biðlistarnir bara lengst og ekkert sem bendir til þess að staðan sé að batna. Það skorti umburðarlyndi fyrir fjölbreytileika mannlífsins og það þekkja svo sannarlega foreldrar ...

28/05/2026

Sem sjálfstætt starfandi sálfræðingur í tæp tuttugu ár hef ég séð hvernig við erum ómissandi hluti af íslensku heilbrigðis- og velferðarkerfi.

,,Til þess að breyta stöðunni þurfum við sameiginlegan skilning á undirliggjandi áskorunum. Þær hafa ekki enn fengið hei...
13/04/2026

,,Til þess að breyta stöðunni þurfum við sameiginlegan skilning á undirliggjandi áskorunum. Þær hafa ekki enn fengið heildstæða yfirferð, þrátt fyrir ýmsar greiningar á undanförnum árum, og þar liggur mikil ábyrgð hjá stjórnvöldum.

Við getum hafist handa strax með því að ákveða að ekki verði lengur liðið að börn og ungmenni njóti ekki lögbundinna réttinda. Það er fyrsta skrefið.

Vinnan í kjölfarið getur ekki farið fram í sílóum. Hún krefst heiðarlegra samtala, dýpri greiningar og víðtækrar samvinnu með bættan heildarárangur að markmiði. Breytt vinnubrögð krefjast þess að við lærum að hugsa og vinna á nýjan hátt. Það er krefjandi á köflum en það er vel gerlegt í styðjandi umhverfi og skilar fljótt bættum árangri.

Með hugrekki og samvinnu að leiðarljósi, og með hagsmuni barna og ungmenna í forgrunni, getum við náð árangri. Komum upp úr sílóunum, vinnum skipulega saman og gerum betur!"

https://www.visir.is/g/20262866240d/thegar-logbundin-rettindi-skila-ser-ekki-til-barna-og-ungmenna?fbclid=IwY2xjawRJvsVleHRuA2FlbQIxMQBicmlkETF0UHRSVFk3MEo1YzJsb04xc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHo26sR7XNjvIPnotriP0Th6hBGxy2GrLIERB-VziOtmPlTHf4YLeJ9Qe8zBy_aem_07XsgS5YsipfqcjwCJdyKQ

Við þurfum að ná betur utan um framkvæmd opinberrar þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur á Íslandi. Ýmis dæmi á undanförnum árum gefa skýrar vísbendingar um kerfislægan vanda sem rekja má til skorts á heildstæðri stefnu og þar af leiðandi heildstæðu skipulagi við f...

Við gerum ríkar kröfur til kennara okkar sem starfa á námskeiðunum. Kennt er á íslensku í litlum hópum. 🧙‍♂️🧝https://www...
11/04/2026

Við gerum ríkar kröfur til kennara okkar sem starfa á námskeiðunum. Kennt er á íslensku í litlum hópum. 🧙‍♂️🧝
https://www.abler.io/shop/nexusnoobs

Námskeið fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur sem hafa áhuga á að spila hlutverkaspil. Dungeons & Dragons og LARP námskeið. Nexus Noobs. Námskeið í hlutverkaspilum. Roleplaying. RPG.

Virkilega gott viðtal við Önnu Maríu geðlækni og Margréti Ólafíu heimilislækni í Kastljósi í gær. Versnandi staða í mála...
18/03/2026

Virkilega gott viðtal við Önnu Maríu geðlækni og Margréti Ólafíu heimilislækni í Kastljósi í gær. Versnandi staða í málaflokki barna og fjölskylda (vandkvæði, ofbeldismál o.fl.) má skýra að stórum hluta út frá þeirri langvarandi nálgun stjórnvalda að slökkva eingöngu elda. Þekkingin um gagnsemi snemmtækrar íhlutunar hefur verið til staðar áratugum saman. Snemmtæk íhlutun skilar sér margfalt til samfélagsins, t.a.m. með auknum lífsgæðum og heilbrigði, minni glæpatíðni og virkari samfélagsþegnum = minni kostnaður fyrir samfélagið.

Þekkingin er til staðar, stjórnvöld þurfa að nýta þá miklu fagþekkingu og sérhæfingu sem þegar er verið að vinna eftir í einkageiranum, t.a.m. tengslamiðuð áfallanálgun hjá Grænahlíð fjölskyldumiðstöð þar sem unnið er með alla fjölskylduna allt frá meðgöngu.

Hvað ef áföll í móðurkviði hafa áhrif á heilsu okkar mörgum áratugum síðar? Rætt við Graham Music, breskan sérfræðing í áhrifum áfalla á þroska barna. Einnig rætt við Önnu Maríu Jónsdóttur, geðlækni og Margréti Ólafíu Tómasdóttur, heimilislækni.Almyrkvi á sólu ...

Address

Sundagarðar 2
Reykjavík
104

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sentia Sálfræðistofa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share