Kvíðameðferðarstöðin

Kvíðameðferðarstöðin Kvíðameðferðarstöðin er sú fyrsta sinnar tegundar hérlendis. Um er að ræða meðferðarstöð þar sem boðið er upp á hugræna atferlismeðferð við kvíðaröskunum s.s.

Við Kvíðameðferðarstöðina (KMS) starfar fjöldi sálfræðinga sem veita sérhæfða meðferð við kvíðaröskunum eins og félagsfælni, ofsakvíða, víðáttufælni, þráhyggju-árátturröskun, afmarkaðri fælni og áfallastreitu. félagsfælni, áfallastreitu, þráhyggju og áráttu, ofsakvíðaköstum, áhyggjuvanda, fælni af ýmsum toga og kvíðatengdum vandkvæðum fyrir fullorðna. Leitast er við að bjóða upp á einstaklingssnið

na og árangursmiðaða meðferð sem fer ýmist fram á formi einstaklings- eða hópmeðferðar eftir því sem við á. Starfsfólk Kvíðameðferðarstöðvarinnar starfar saman í teymi sem samanstendur af sálfræðingum sem hafa sérhæft sig í meðhöndlun á þessu sviði. Árangur þeirrar meðferðar sem fer fram við Kvíðameðferðarstöðina er mældur reglulega til þess að tryggja gæði starfseminnar.

Eftir verslunarmannahelgina fara margir að gera plön varðandi haustið. Hér eru áætlaðar dagsetningar næstu námskeiða og ...
30/07/2026

Eftir verslunarmannahelgina fara margir að gera plön varðandi haustið. Hér eru áætlaðar dagsetningar næstu námskeiða og hópmeðferða á Kvíðameðferðarstöðinni í haust. Skráning og nánari upplýsingar má finna á vefsíðu okkar, sjá hlekk í fyrstu athugasemd.

Við kynnum með stolti að Kristjana Þórarinsdóttir, sálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina og teymistjóri áfallateymis, m...
09/06/2026

Við kynnum með stolti að Kristjana Þórarinsdóttir, sálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina og teymistjóri áfallateymis, mun verja doktorsritgerð sína í sálfræði við Sálfræðideild Háskóla Íslands fimmtudaginn 11. júní.

Ritgerðin ber heitið: Getur sjónrýmdarverkefni dregið úr áfallatengdum minningum? Rannsókn meðal íslenskra kvenna. Can a novel imagery-competing task intervention reduce intrusive memories of trauma? A study among Icelandic women.
Andmælendur eru dr. Debra L. Kaysen, prófessor við Stanford University, og dr. Árni Gunnar Ásgeirsson, dósent við Háskólann á Akureyri.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Andri Steinþór Björnsson, prófessor. Auk hans sátu í doktorsnefnd Berglind Guðmundsdóttir, prófessor, Arna Hauksdóttir, prófessor, Þórhildur Halldórsdóttir, dósent, og Emily Holmes, prófessor.
Heiða María Sigurðardóttir, prófessor og deildarforseti Sálfræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.

Ágrip
Áleitnar endurminningar eru kjarnaeinkenni áfallastreituröskunar (ÁSR). Þótt til sé árangursrík meðferð við ÁSR, þá hafa ekki allir aðgengi að slíkri meðferð sem þurfa á að halda og hún getur reynst fólki erfið. Helsta markmið þessarar doktorsritgerðar var að meta árangur af inngripi sem er ætlað að draga úr tíðni áleitinna endurminninga. Inngripið felur í sér að virkja áfallaminningu og gera svo sjónrýmdarverkefni (Tetris með hugrænum snúningi) sem miðar að því að trufla skynúrvinnslu áleitinna endurminninga. Markmið rannsóknanna voru að kanna hvort inngripið væri raunhæf leið til þess að draga úr tíðni áleitinna endurminninga og hvort lægri tíðni hefði áhrif á einkenni ÁSR, einkenni þunglyndis og kvíða, og hvort inngripið hefði jákvæð áhrif á daglega virkni. Þrjár rannsóknir voru framkvæmdar með endurteknu AB-rannsóknarsniði. Þátttakendur (alls 12) skráðu tíðni áleitinna endurminninga í dagbók á grunnlínu, á inngripstímabili og í eina viku við eftirfylgd eftir einn og þrjá mánuði. Í öllum rannsóknum var tíðni áleitinna endurminninga helsta útkoma. Niðurstöður allra þriggja rannsóknanna sýndu verulegra lækkun í tíðni áleitinna endurminninga fyrir utan tvo þátttakendur. Lækkun í tíðni var á bilinu 6,3%–93% á inngripstímabili miðað við grunnlínu. Tíðni hélt áfram að lækka hjá flestum þátttakendum á eftirfylgdartímabilum. Hjá flestum þátttakendum hjöðnuðu einkenni áfallastreituröskunar, þunglyndis og kvíða og virkni jókst hjá einnig hjá flestum þeirra. Niðurstöðurnar benda til þess að sjónrýmdarverkefni geti dregið úr tíðni áleitinna endurminninga, öðrum hamlandi sálrænum einkennum og aukið daglega virkni.

Kvíði er lífeðlislegt viðbragð sem virkjast þegar manneskja stendur frammi fyrir mögulegri ógn við velferð hennar eða af...
04/06/2026

Kvíði er lífeðlislegt viðbragð sem virkjast þegar manneskja stendur frammi fyrir mögulegri ógn við velferð hennar eða afkomu. Á vefsíðu KMS má finna enn meiri upplýsingar um kvíða, sjá hlekk í athugasemd.

Hvernig upplifir þú kvíða? Á vefsíðu KMS má finna enn meiri upplýsingar um kvíða, sjá hlekk í athugasemd.
02/06/2026

Hvernig upplifir þú kvíða? Á vefsíðu KMS má finna enn meiri upplýsingar um kvíða, sjá hlekk í athugasemd.

Framundan hjá mörgum er mikið um veisluhöld til dæmis útskriftir og brúðkaup. Þetta eru algengar aðstæður sem geta kveik...
21/05/2026

Framundan hjá mörgum er mikið um veisluhöld til dæmis útskriftir og brúðkaup. Þetta eru algengar aðstæður sem geta kveikt á félagskvíða. Sálfræðingar Kvíðameðferðarstöðvarinnar geta aðstoðað fólk sem vilja ná tökum á þessum vanda.

19/05/2026

Nú er en notalegra ađ koma til okkar

08/05/2026

Þoka byrjaði mjög ung að kynnast meðferðarstarfi og nýtur þess að hitta skjólstæðinga sína.

07/05/2026
Ert þú með fóbíu? Afmörkuð fælni (fóbía) er ofsalegur ótti við tiltekin fyrirbæri eða aðstæður. Eitt af fjölmörgum vanda...
28/04/2026

Ert þú með fóbíu? Afmörkuð fælni (fóbía) er ofsalegur ótti við tiltekin fyrirbæri eða aðstæður. Eitt af fjölmörgum vanda sem starfsfólk Kvíðameðferðarstöðvarinnar sinnir.

Við vorum að fá birta grein um tólf mánaða eftirfylgd af 4-daga meðferðinni sem við veitum við þráhyggju og áráttu. Að á...
16/04/2026

Við vorum að fá birta grein um tólf mánaða eftirfylgd af 4-daga meðferðinni sem við veitum við þráhyggju og áráttu. Að ári liðnu hafa 84% svarað meðferð og rúm 67% í bata. Einnig hefur dregið úr kvíða, þunglyndi og færniskerðingu vegna vandans. Athygli vekur að rúmlega helmingur þeirra sem ekki nær fullnægjandi árangri fyrst eftir meðferð er á betri stað ári síðar.

The Bergen 4-day treatment for OCD in Iceland: 12-month follow-up - Volume 19

Address

Suðurlandsbraut 4, 5. Hæð
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:30
Tuesday 09:00 - 16:30
Wednesday 08:45 - 16:30
Thursday 08:45 - 16:30
Friday 08:45 - 16:30

Telephone

5340110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kvíðameðferðarstöðin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Kvíðameðferðarstöðin:

Shortcuts

Share