10/08/2026
Hefur þú einhvern tíma hugsað:
„Af hverju bregst ég svona sterkt við?“
Kannski gerist eitthvað sem virðist lítið — en innra með þér kviknar mikill kvíði, óöryggi, reiði eða vanlíðan.
Og jafnvel þó þú vitir með skynseminni að þú þurfir ekki að bregðast svona við, þá virðist líkaminn og tilfinningarnar segja eitthvað allt annað.
Stundum erum við nefnilega ekki bara að bregðast við því sem er að gerast núna.
Eldri reynsla getur haft áhrif á hvernig við upplifum aðstæður, samskipti og okkur sjálf löngu síðar.
Það er meðal þess sem ég vinn með í dáleiðslumeðferð.
Við skoðum hvað gæti legið undir þeim tilfinningum og viðbrögðum sem eru að trufla þig í dag og vinnum þaðan áfram að meiri ró, skilningi og öryggi innra með þér. 💛
Ef þú ert forvitin/n um hvort dáleiðsla gæti hentað þér, sendu mér orðið RÓ í einkaskilaboðum.
Ég sendi þér upplýsingar um hvernig meðferðin fer fram.
Og ef þú vilt frekar ræða við mig áður en þú ákveður þig geturðu bókað frítt símtal við mig á noona.is/betrithu.
Stella Bára
Betri Þú