Hrafnista

Hrafnista Opinber síða Hrafnistuheimilanna sem eru sjö talsins í fimm sveitarfélögum. Starfsmenn Hrafnistu eru um 2.000 talsins.
(1)

Hrafnista er dótturfélag Sjómannadagsráðs og rekur sjö hjúkrunarheimili í fimm sveitarfélögum. S*x Hrafnistuheimili eru á höfuðborgarsvæðinu, í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og Garðabæ og eitt í Reykjanesbæ.

Íbúar Hrafnistu eru um 900 talsins og um 500 aðrir nýta sér þjónustu Hrafnistu daglega. Hrafnista starfrækir:
- 4 dagdvalir
- Dagendurhæfingardeild
- Dagdeild fyrir einstaklinga með heilab

ilun

DAS íbúðir, dótturfélag Sjómannadagsráðs, á og rekur 350 leiguíbúðir fyrir 60 ára og eldri í þremur sveitarfélögum. Íbúðirnar eru tengdar við lífsgæðakjarna Hrafnistuheimilanna.

María Fjóla Harðardóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Hrafnistu undanfarin s*x ár, hefur látið af störfum. Gunnur H...
29/07/2026

María Fjóla Harðardóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Hrafnistu undanfarin s*x ár, hefur látið af störfum.
Gunnur Helgadóttir, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistu mun gegna stöðu forstjóra þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

María Fjóla Harðardóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Hrafnistu undanfarin s*x ár, hefur látið af störfum.

27/07/2026
Sumargrill á Hrafnistu í Laugarási ☀️
24/07/2026

Sumargrill á Hrafnistu í Laugarási ☀️

Sléttan er lífsgæðakjarni og þjónustumiðstöð á Sléttuvegi í Reykjavík. Þar er m.a. heilsurækt sem er sérstaklega sniðin ...
29/06/2026

Sléttan er lífsgæðakjarni og þjónustumiðstöð á Sléttuvegi í Reykjavík. Þar er m.a. heilsurækt sem er sérstaklega sniðin að þörfum eldri borgara, ásamt fjölbreyttu félags- og tómstundastarfi.

Tækjasalurinn er bjartur og búinn nútímalegum æfingatækjum. Tækin eru finnsk HUR tæki sem bjóða upp á marga möguleika til að bæta einstaklingsmiðaða þjónustu.

Þjónustuþegar á Sléttunni stunda hreyfingu af ýmsum toga og Guðmundur Einarsson, 101 árs Reykvíkingur, er einn af þeim sem nýtir sér aðstöðuna í tækjasalnum nokkrum sinnum í viku. Magnús Hlynur leit við á Sléttunni og ræddi við Guðmund.

https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/bfblog/langlifi-101

16/06/2026
Endurbætt endurhæfingardeild Hrafnistu í Laugarási formlega opnuð. Endurbættur, glæsilegur og bjartur tækjasalur á Hrafn...
10/06/2026

Endurbætt endurhæfingardeild Hrafnistu í Laugarási formlega opnuð.

Endurbættur, glæsilegur og bjartur tækjasalur á Hrafnistu í Laugarási var formlega vígður í gær. Gígja Þórðardóttir, deildarstjóri endurhæfingardeildar, flutti erindi þar sem hún fór yfir starfsemi deildarinnar og þær breytingar og endurbætur sem ráðist hefur verið í. Hún lagði áherslu á mikilvægi hvetjandi starfsfólks og góðs aðbúnaðar í endurhæfingu og þá jákvæðu þróun sem ný aðstaða mun hafa á starfsemina. Nýju tækin eru finnsk HUR tæki frá Fastus. Þau bjóða upp á marga möguleika til að bæta einstaklingsmiðaða þjónustu, fylgjast með framförum og geta tekið út tölulegar staðreyndir um notkun og árangur. Þau eru hljóðlát, notendavæn og hafa reynst mjög vel víða á Íslandi.

Við athöfnina var jafnframt opinberað nýtt nafn á tækjasalnum. Efnt hafði verið til nafnasamkeppni og bárust um 100 tillögur frá bæði íbúum og starfsfólki en salurinn hlaut nafnið Slippurinn.

Séra Daníel Ágúst Gautason, sem jafnframt er starfsmaður á endurhæfingardeildinni, vígði salinn og blessaði starfsemina með hlýjum orðum og góðum óskum um farsæla starfsemi til framtíðar.

Að lokinni vígslu var klippt á borða. Aðstoðardeildarstjórar endurhæfingardeildar, þær Jóhanna Björk Viktorsdóttir og Ásdís Ármannsdóttir héldu í borðann á meðan Gígja Þórðardóttir deildarstjóri, Emilía Brynja Sveinsdóttir, sem starfað hefur á endurhæfingardeildinni til fjölda ára, og Sigrún Stefánsdóttir forstöðumaður Hrafnistu í Laugarási klipptu á borðann.

Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, flutti einnig erindi við athöfnina. Hann ræddi meðal annars mikilvægi þeirrar þjónustu sem veitt er á Hrafnistu og þann mikla ávinning sem felst í öflugri endurhæfingu eldri borgara.

Opnunin markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og eflingu þjónustu á Hrafnistu í Laugarási. Með endurbættum aðbúnaði og tækjum skapast enn betri aðstæður fyrir endurhæfingu þeirra sem nýta sér þjónustu deildarinnar.

09/06/2026
Vélmennið Stefnir léttir undir með starfsfólki í þjónustumiðstöðinni SléttunniNýr tæknivæddur starfsfélagi hefur hafið s...
08/06/2026

Vélmennið Stefnir léttir undir með starfsfólki í þjónustumiðstöðinni Sléttunni

Nýr tæknivæddur starfsfélagi hefur hafið störf í þjónustumiðstöðinni Sléttunni á Hrafnistu Sléttuvegi, en um er að ræða vélmenni sem hlotið hefur nafnið Stefnir. Vélmennið léttir undir með starfsfólki þegar leirtau er tekið af borðum í matsalnum og flytur það í uppvaskið. Markmiðið með tilkomu vélmennisins er að styðja við daglegan rekstur, auka skilvirkni og létta á starfsfólki. Með því gefst starfsfólki meira svigrúm til að sinna þeim verkefnum sem skipta mestu máli í þjónustu við íbúa og gesti.

Stefnir ferðast sjálfstætt um eftir fyrir fram skilgreindum leiðum og notar skynjara til að greina umhverfi sitt og forðast hindranir. Vélmennið vinnur þannig örugglega samhliða starfsfólki, íbúum og gestum þjónustumiðstöðvarinnar.
Reynslan af Stefni hefur verið jákvæð og vekur hann jafnan athygli og forvitni þeirra sem á vegi hans verða.

Hjá Hrafnistu er lögð áhersla á að nýta nýsköpun og tæknilausnir þar sem þær geta bætt þjónustu og vinnuumhverfi. Stefnir er gott dæmi um hvernig tæknin getur orðið verðmætur liðsauki í daglegu starfi.
Við bjóðum vélmennið Stefni velkomin til starfa á Sléttunni og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Fjallað var um vélmennið í kvöldfréttum RÚV

https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/frettir/30762/bfbvee/velmenni-adstoda-i-matsal

Til hamingju með daginn sjómenn! 🇮🇸⚓️Á þessum hátíðisdegi sendum við hjá Hrafnistuheimilunum öllum sjómönnum og fjölskyl...
07/06/2026

Til hamingju með daginn sjómenn! 🇮🇸⚓️

Á þessum hátíðisdegi sendum við hjá Hrafnistuheimilunum öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra okkar bestu hamingjuóskir með daginn.

Saga Hrafnistu er órjúfanlega tengd íslenskum sjómönnum. Við minnumst þess með þakklæti og virðingu að íslenskir sjómenn reistu fyrstu heimili Hrafnistu og lögðu þar með grunninn að öflugu samfélagslegu verkefni sem hefur um áratugaskeið stuðlað að velferð og öryggi eldri borgara. Framlag sjómanna, þáttur þeirra í sögu Hrafnistu og því mikilvæga starfi sem Hrafnista sinnir enn í dag, verður ávallt í heiðri hafður.

Á sjómannadaginn heiðrum við framlag sjómanna til íslensks samfélags fyrr og síðar. Við þökkum þeim fyrir störf þeirra, þrautseigju og þann styrk sem hefur byggt upp þjóðina og skapað komandi kynslóðum tækifæri.

Megi sjómannadagurinn verða öllum gleðiríkur og ánægjulegur.

Með virðingu og þakklæti,
Hrafnistuheimilin

http://sjomannadagurinn.is/

04/06/2026

Dagur íslenskra sjómanna

Address

Brúnavegur 13
Reykjavík
104

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hrafnista posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Hrafnista:

Shortcuts

Share

Category