30/09/2026
Frí fræðsla um nikótín fyrir alla 8. bekki í Reykjavík
Verkefnið okkar er farið af stað og fyrstu fræðslurnar hafa gengið virkilega vel!
Markmiðið er að ná til allra nemenda í 8. bekk í Reykjavík með fræðslu um nikótín og áhrif þess. Við ræðum meðal annars um áhrif nikótíns á líkamann og heilann, hvernig fíkn myndast, nikótínpúða, sígarettur og rafrettur ásamt því hvernig markaðssetning og samfélagsmiðlar geta haft áhrif á viðhorf ungs fólks.
Það sem hefur staðið mest upp úr eru krakkarnir sjálfir. Þau eru áhugasöm, klár og óhrædd við að spyrja góðra spurninga. Umræðurnar hafa verið virkilega skemmtilegar og sýna vel hversu mikilvægt það er að skapa vettvang þar sem ungt fólk fær gagnreyndar upplýsingar og getur rætt þessi mál opinskátt.
Verkefnið er samstarfsverkefni Heilsulausna, Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Reykjavíkurborgar og er fræðslan skólunum að kostnaðarlausu.
Við hjá Heilsulausnum erum mjög ánægð með að fá að leggja okkar af mörkum í forvörnum og fá tækifæri til að hitta unga fólkið á þessum mikilvæga tímapunkti. 💚
Við vonum svo sannarlega að þetta sé aðeins byrjunin og að verkefnið geti í framhaldinu náð til ungmenna um allt land.