Félag sjúkraþjálfara

Félag sjúkraþjálfara Félag sjúkraþjálfara (FS) er fag- og stéttarfélag sjúkraþjálfara á Íslandi Að efla samvinnu og samheldni sjúkraþjálfara innan FS og gæta hagsmuna þeirra.
2.

Félag sjúkraþjálfara (FS) á rætur sínar að rekja til ársins 1940, þegar fyrsta félag sjúkraþjálfara (þá nuddkvenna) var stofnað. Í janúar 2013 sameinuðust Félag íslenskra sjúkraþjálfara, Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara og Stéttarfélag sjúkraþjálfara í eitt sterkt Félag sjúkraþjálfara, sem heldur utan um fagmál og kjaramál sjúkraþjálfara á Íslandi.
1. Að stuðla að aukinni faglegri vitund

sjúkraþjálfara.
3. Að auka gæði sjúkraþjálfunar.
4. Að efla samvinnu við sjúkraþjálfara erlendis og aðrar heilbrigðisstéttir innanlands sem
utan.
5. Að stuðla að bættri menntun sjúkraþjálfara.
6. Að kynna starf sjúkraþjálfara.
7. Að vinna að bættri heilsu landsmanna.

Við hlökkum til að fagna Alþjóðlegum degi sjúkraþjálfara 8. september
14/08/2026

Við hlökkum til að fagna Alþjóðlegum degi sjúkraþjálfara 8. september

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er 8. september og kynningarefnið er tilbúið á íslensku. Í ár er dagurinn tileinkaður ...
11/08/2026

Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar er 8. september og kynningarefnið er tilbúið á íslensku.

Í ár er dagurinn tileinkaður hjarta- og æðasjúkdómum og heilablóðföllum og hlutverki sjúkraþjálfara í forvörnum, fræðslu, endurhæfingu í kjölfar þeirra. Þetta er fyrsti hluti í fjögurra ára herferð þar sem langvinnir sjúkdómar verða í forgrunni og á næstu árum verður fjallað um krabbamein, sykursýki og öndunarfærasjúkdóma.

Við hvetjum alla sjúkraþjálfara til að taka þátt í herferðinni, hengja upp veggspjöld og vekja athygli á deginum.

Markaðsefni á íslensku má sækja hér:
https://world.physio/wptday/toolkit?lang=1024&year=25743&toolkit_type=All

Gleðilega Hinsegin daga! 🏳️‍🌈Félag sjúkraþjálfara óskar félagsfólki og fjölskyldum þeirra til hamingju með hátíðina. Fjö...
07/08/2026

Gleðilega Hinsegin daga! 🏳️‍🌈

Félag sjúkraþjálfara óskar félagsfólki og fjölskyldum þeirra til hamingju með hátíðina. Fjölbreytileiki styrkir fagið okkar og vellíðan byrjar á því að fá að vera maður sjálfur.

Við vonum að þið séuð að njóta daganna! 💙

📸

Heimsþingið 2027 verður haldið í Guadalajara í Mexíkó. Ef þú vilt standa þar á sviði og deila þinni þekkingu og reynslu ...
05/08/2026

Heimsþingið 2027 verður haldið í Guadalajara í Mexíkó.
Ef þú vilt standa þar á sviði og deila þinni þekkingu og reynslu með kollegum hvaðanæva að úr heiminum, þá er tækifærið núna. Opið er fyrir skráningar fyrirlestra á þinginu til 29. september.

📣 Two months left to submit your abstract for World Physiotherapy Congress 2027.

Join the global exchange of research, innovation and ideas that will help shape the future of physiotherapy and rehabilitation.

Submit your abstract by 29 September 2026: https://ow.ly/ZJO250ZolMm

Félag sjúkraþjálfara óttast að nýtt komugjald hins opinbera á sjúkraþjálfun muni draga úr líkum á því að fólk leiti sér ...
09/07/2026

Félag sjúkraþjálfara óttast að nýtt komugjald hins opinbera á sjúkraþjálfun muni draga úr líkum á því að fólk leiti sér aðstoðar og seinki endurhæfingu.

Út frá tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins um gjaldtökuna í vikunni er ljóst að um verulega aukningu á kostnaði verður að ræða fyrir þá einstaklinga sem þurfa að nýta sér sjúkraþjálfun og má áætla að verið sé að auka kostnaðarþátttöku almennings um ríflega milljarð króna. Þar af má ætla að ellilífeyrisþegar þurfi að greiða að minnsta kosti 340 milljónir króna aukalega fyrir þjónustuna og almennir notendur um 580 milljónir króna, miðað við notkunartölur ársins 2025. Með komugjaldinu getur kostnaður einstaklings við að sækja sér sjúkraþjálfun aukist um 80-105% á ársgrundvelli.

Það er mat Félags sjúkraþjálfara að lausnin við vanfjármögnun heilbrigðisþjónustu eigi ekki að vera sú að færa verulegan kostnað yfir á sjúklinga. Slík nálgun getur aukið ójöfnuð, dregið úr forvörnum og endurhæfingu og leitt til meiri kostnaðar annars staðar í heilbrigðiskerfinu til lengri tíma.

Félag sjúkraþjálfara gagnrýnir stjórnvöld fyrir skort á samráði í aðdraganda þess að kynnt voru komugjöld til sjúkraþjálfara sem taka munu gildi fyrsta september. Félagið bendir á hættu þess af því að gjaldtaka sem þessi geti dregið úr aðgengi, seinkað endurhæfingu og...

09/07/2026

Sjúkraþjálfun styður við aukna atvinnuþátttöku og lífsgæði fólks.
Íslenskir sjúkraþjálfarar taka vel á móti þér og halda vel utan um þig og þína endurhæfingu.

Ágætu sjúkraþjálfaragolfarar! ⛳Golfmót sjúkraþjálfara fer fram fimmtudaginn 20. ágúst næstkomandi hjá Golfklúbbi Brautar...
06/07/2026

Ágætu sjúkraþjálfaragolfarar! ⛳

Golfmót sjúkraþjálfara fer fram fimmtudaginn 20. ágúst næstkomandi hjá Golfklúbbi Brautarholts. Leiknar verða 18 holur í fjögurra manna hollum frá fyrsta teig frá kl. 12:00-13:30, alls tíu holl.
Þátttökugjald er 6.900 kr.

Skráning verður í gegnum GolfBox og opnar 13. ágúst klukkan 12:00 og lokar á miðnætti fyrir mótið. Hlekkur fyrir skráningu verður sendur þegar nær dregur. Þið veljið ykkur sjálf rástíma en við biðlum til ykkar að reyna að fylla holl frekar en fámenna í þau. Jafnframt viljum við fylla fyrstu hollin fyrst og áskiljum okkur rétt til þess að færa skipuð holl sem ræsa seint í tóm holl fyrr.

Hvað hámarksforgjöf varðar eru allir gjaldgengir í mótið en hærri forgjöf en 36 verður lækkuð í 36.

Glæsilegir vinningar eru í boði fyrir höggleik og punktakeppni að vanda, lengsta upphafshögg á vel valinni holu og nándarverðlaun á par 3 holum.

Bikarhafar síðasta árs eru beðnir um að setja sig í samband við mótsnefndnina við fyrsta góða tækifæri.

Ef spurningar vakna er hægt að hafa samband við mótstjórana Vilhjálm ([email protected]) eða
Rúnar Karl ([email protected]), sjúkraþjálfara.

Athygli er vakin á því að þetta verður síðasta mótið sem ofanritaðir mótstjórar skipuleggja. Takk fyrir okkur ❤

02/07/2026

Fagleg sjúkraþjálfun er lykilþáttur í endurhæfingu og styður við aukin lífsgæði.

25/06/2026

Það eru á bilinu 700-800 sjúkraþjálfarar starfandi á Íslandi hverju sinni.

18/06/2026

Sjúkraþjálfar eru lykilaðilar í heilbrigðisþjónustu.

Address

Borgartún 6
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 13:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 12:00
Wednesday 09:00 - 12:00
Thursday 09:00 - 12:00
Friday 09:00 - 12:00

Telephone

+3545955186

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félag sjúkraþjálfara posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Félag sjúkraþjálfara:

Shortcuts

Share