03/08/2026
Markmið og draumar Þegar við leggjum af stað í átt að draumnum okkar þurfum við að muna eitt: við undirbúum okkur fyrir það sem við viljum ná.
Ef markmiðið væri að ganga Everest myndum við ekki mæta óundirbúin. Við myndum byrja að æfa, byggja upp styrk, úthald og sjálfstraust – skref fyrir skref.
Af hverju ætti draumurinn þinn að vera öðruvísi?
Sama hvort draumurinn er betri heilsa, meiri orka, léttari líðan eða eitthvað allt annað, þá byrjar ferðalagið á því að hlúa að sjálfum sér. Að byggja upp sjálfsvirði, venjur sem styðja okkur og líkama sem getur borið okkur áfram.
Að taka mataræðið í gegn er ekki refsing og það er ekki skömm. Það er ekki viðurkenning á því að þú hafir brugðist.
Hugsaðu um íþróttamann sem meiðist. Hann þarf að byrja upp á nýtt, byggja sig upp aftur og finna styrkinn sinn. Enginn talar um skömm. Við tölum um þrautseigju, aga og hugrekki til að halda áfram.
Ég þekki þennan stað sjálf.
Og þess vegna veit ég, frá mínum hjartarótum, hversu miklu máli mataræðið skiptir. Ekki bara fyrir líkamsþyngd heldur fyrir orkuna, sjálfstraustið og líðanina.
❤️ Nú býð ég þér að koma með mér í mánaðarprógramm þar sem ég geng með þér alla leið. Ég held í hendina á þér, gef þér einstaklingsmiðaða leiðsögn, stuðning og ráðgjöf í heilan mánuð.
Aðeins 10 pláss eru í boði.
📅 Ræsing er 24. ágúst.
Ef þú finnur að þetta er þitt fyrsta skref í átt að stærri draumi, sendu mér skilaboð. Þessar grunnbúðir gætu orðið upphafið að einhverju miklu stærra en þú þorir að ímynda þér. [email protected] - merktu póstinn - Markmið