Asana Jóga

Asana Jóga 🔗https://asanajoga.is🌷Hér deili ég með ykkur viðburðum, námi og fræðslu um jógatengd málefni.

24/08/2026

16 vikna námskeiðin byrja á miðvikudaginn 26.ágúst.Gerðu jógaiðkunina þína að alvöru.
asanajoga.is

22/08/2026

Uttanasana – frambeygja standandi

Uttanasana er ein af grunnstöðum jógaiðkunar en um leið staða sem heldur áfram að dýpka með aukinni reynslu. Í frambeygjunni vinnum við að því að skapa lengd í aftanverðum líkamanum, frá iljum og kálfum, upp aftanverð læri og áfram eftir hryggnum.

Markmiðið er ekki að „komast niður“ eða ná með höndunum í gólf. Mikilvægara er að læra að hreyfa sig frá mjöðmunum, halda lengd í bolnum og leyfa líkamanum smám saman að opnast.

Í Uttanasana má meðal annars vinna með:

* jafna dreifingu þunga í fótunum
* virkni og stöðugleika í fótleggjum
* hreyfanleika í mjöðmum og aftanverðum lærum
* lengingu og rými í hrygg
* mýkt í hálsi, herðum og andliti
* rólegri öndun og athygli inn á við

Frambeygjur hafa líka annan eiginleika en margar standandi stöður. Þegar líkaminn fær nægan stuðning og við hættum að toga okkur inn í stöðuna getur hún orðið róandi og kyrrandi. Höfuðið færist niður, sjónsviðið minnkar og athyglin leitar frekar inn á við.

Uttanasana kennir okkur því bæði virkni og að sleppa takinu: fæturnir vinna og skapa grunninn, en bolurinn, höfuðið og hugurinn fá smám saman að mýkjast.

Við förum ekki dýpra með því að toga meira, heldur með því að skapa rými.

Síðasti séns að skrá sig!!
20/08/2026

Síðasti séns að skrá sig!!

20/08/2026

Það er eitthvað alveg sérstakt við að hefja nýja önn 💛

Í næstu viku hefjum við 16 vikna jógferðalag hjá Asana Jóga – og okkur hlakkar ótrúlega mikið til.

✨ Kl. 16:30 er fullt – biðlisti
✨ Kl. 18:15 eru enn nokkur pláss laus

Auk þess bjóðum við upp á 8 vikna styttra námskeið kl. 10:00, sem er frábær leið til að kynnast iðkuninni eða komast í rútínu á aðeins styttri tíma.

Og fyrir þau sem eru í vaktavinnu eða með sveigjanlega dagskrá er líka hægt að fara á milli 10:00 og 18:15 tímanna, þannig að iðkunin passi betur inn í lífið þitt.

Fram undan eru 16 vikur þar sem við fáum tíma til að læra, æfa, dýpka iðkunina og byggja upp samfellu – saman.

Og Asana Jóga er meira en bara tímarnir á stundaskránni. Við viljum skapa geggjað samfélag í kringum jógað – með fræðslu, viðburðum, vinnustofum, opnum tímum og, ekki síst, jógaferðum ✈️🧘‍♀️

Við erum rétt að byrja 💛

Kynnum Evu Hallbeck 💛Eva er kennari hjá Asana Jóga og kennir hjá okkur Iyengar jóga.Eva hefur áralanga reynslu af jógaið...
19/08/2026

Kynnum Evu Hallbeck 💛

Eva er kennari hjá Asana Jóga og kennir hjá okkur Iyengar jóga.

Eva hefur áralanga reynslu af jógaiðkun og kennslu og er Iyengar-jógakennari. Í kennslunni leggur hún áherslu á nákvæmni, góða líkamsstöðu og að hver og einn fái að vinna út frá eigin líkama og getu.

Kennslan hennar er skýr, hlý og vönduð – og hún hefur einstakt lag á að hjálpa nemendum að finna bæði styrk, stöðugleika og meira frelsi í líkamanum.

Í Iyengar jóga eru stoðtæki á borð við kubba, belti, stóla og reipi notuð markvisst til að styðja við æfingarnar og gera þær aðgengilegar fyrir ólíka líkama og getustig.

Við erum einstaklega ánægð að hafa Evu í kennarateyminu hjá Asana Jóga 💛

📍 Asana Jóga – Faxafeni 10
🌿 Nánar um tíma Evu og skráningu á asanajoga.is

17/08/2026

Sterkari. Liðugri. Öruggari í eigin líkama. 🌿

8 vikna Iyengar jóganámskeið með Evu Hallbeck – markviss og einstaklingsmiðuð kennsla í litlum hópi.

✨ Styrkur og stöðugleiki
✨ Liðleiki og hreyfigeta
✨ Jafnvægi og líkamsvitund

📅 26. ágúst – 14. október
⏰ Mán. & mið. kl. 10:00–11:15
💜 24.900 kr. á mánuði

📍 Asana Jóga, Faxafeni 10
Skráning á asanajoga.is

17/08/2026
17/08/2026

Námskeiðin eru alveg að fyllast 💕
Hlökkum til að fara af stað aftur í reglubundna iðkun

Address

Faxafen 10
Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Asana Jóga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Practice

Send a message to Asana Jóga:

Shortcuts

Share

Category