Rótin

Rótin Rótin
The Root Rótin er félag áhugakvenna og því eru allar konur með áhuga á málefninu velkomnar í félagið. Sendu okkur póst á [email protected]. Kristín I.

Pálsdóttir sér að mestu um síðu félagsins á Facebook og svarar fyrirspurnum. Við fögnum athugasemdum og umræðum á síðunni en við ætlumst til þess að hún sé málefnaleg. Við áskiljum okkur rétt til að eyða ómálefnalegum og dónalegum athugasemdum.

Rótin hefur skilað inn umsögn um áform dómsmálaráðuneytis um breytingar á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga ...
30/07/2026

Rótin hefur skilað inn umsögn um áform dómsmálaráðuneytis um breytingar á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, um að afnema sektir sem viðurlagategund við vændiskaupum.
"Að mati Rótarinnar er lykilspurningin því ekki eingöngu hvort þyngja eigi viðurlög við kaupum á kynlífi heldur hvort fyrirhugaðar lagabreytingar séu líklegar til að auka öryggi og vernd þeirra sem búa við mesta félagslega og kynbundna berskjöldun. Umsögnin beinist því einkum að þeim skilyrðum sem þurfa að vera fyrir hendi svo lagabreytingar geti í reynd dregið úr kynferðislegri hagnýtingu."

Umsagnaraðili: Rótin, félagasamtökMál: Áform um breytingu á vændiskaupaákvæði almennrahegningarlaga. Breytingar á 1. og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940Dags. 30. júlí 2026 1. Inngangur Rótin fagnar því að dómsmálaráðuneytið hyggist taka til endurskoðunar 20...

"Á Kaffistofuna leitar fólk sem býr við erfiðar félagslegar aðstæður, heimilisleysi, fíknisjúkdóma og fátækt.Eftir meðfe...
18/07/2026

"Á Kaffistofuna leitar fólk sem býr við erfiðar félagslegar aðstæður, heimilisleysi, fíknisjúkdóma og fátækt.
Eftir meðferð starfaði María sem sjálfboðaliði á Kaffistofunni og er nú vaktstjóri. Hún segir engan dag vera eins en að allir dagar fari í að mæta fólki sem glími við erfiðar aðstæður."
"María segir mikilvægt að ekki sé litið á Kaffistofuna sem endastöð þeirra sem þangað leita. Starfsfólk og sjálfboðaliðar hafi hjálpað mörgum að komast inn í langtímaúrræði til að fá lausn sinna mála. „Þetta er ekki endastöð, fólk getur risið upp. Ég er vitnisburður um það til dæmis.“"

Málefni Kaffistofu Samhjálpar voru rædd á fundi borgarráðs í gær. Kona sem hefur þurft að sækja þangað, og vinnur nú þar sem vaktstjóri, segir það sorglegt ef ekki tekst að finna kaffistofunni nýtt húsnæði.

Rótin hefur sent úrskurðarnefnd um upplýsingamál viðbótargreinargerð vegna synjunar Sjúkratrygginga Íslands á fullum aðg...
13/07/2026

Rótin hefur sent úrskurðarnefnd um upplýsingamál viðbótargreinargerð vegna synjunar Sjúkratrygginga Íslands á fullum aðgangi að þjónustusamningi stofnunarinnar við SÁÁ.
Málið snýst um rétt almennings til að vita hvaða heilbrigðisþjónustu ríkið kaupir fyrir almannafé, í hvaða magni, með hvaða skilyrðum og gegn hvaða endurgjaldi.
Sjúkratryggingar hafa ekki aðeins afmáð upplýsingar um magn og verð. Einnig hafa verið afmáðar upplýsingar um þjónustueiningar, greiðslufyrirkomulag, forsendur endurgjalds, umfang og skiptingu þjónustu, framkvæmd samningsins og önnur atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvað ríkið er í raun að kaupa.
SÁÁ sem gegnir miðlægu hlutverki í meðferðarkerfinu fær rúma tvo milljarða króna á fjárlögum árið 2026, sem er hækkun um 374 milljónir frá síðasta ári.
Rótin telur að leynd um slíkan samning standist ekki upplýsingarétt almennings. Sjúkratryggingar hafa ekki sýnt fram á að birting upplýsinganna valdi raunverulegu og líklegu tjóni. Almennar vísanir til samkeppni, samningsstöðu eða framtíðarsamninga geta ekki réttlætt að almenningi sé meinaður aðgangur að grundvallarupplýsingum um opinber kaup á heilbrigðisþjónustu.
Gagnsæi er forsenda trausts, aðhalds og réttinda sjúklinga.
Greinargerð Rótarinnar má lesa hér. https://rotin.is/vidbotargreinargerd-vid-umsogn-sjukratrygginga-islands/

05/07/2026

"Hún segir að þegar geðsjúkdómur og fíknivandi fari saman verði fólk oft strandaglópar í kerfinu. Bráðamóttaka geðsviðs vísi á Fossvog, Fossvogur aftur á geðsvið, bráðamóttökur á heilsugæslu og heilsugæslan geti ekki tekið við vegna þess að vandinn sé annaðhvort of þungur, ekki nógu þungur eða ekki með rétta greiningu."
https://www.visir.is/g/20262880792d/upplifdi-letti-thegar-mamma-do

03/07/2026

Spegillinn hélt í dag áfram að fjalla um stöðu fólks í heimilisleysi í heilbrigðiskerfinu, mannréttindi og leiðir til lausna.

"Spurður um álag almennt á bráðamóttökuna og hvort að það að þjónusta þennan hóp annars staðar myndi aðstoða segir Mikae...
03/07/2026

"Spurður um álag almennt á bráðamóttökuna og hvort að það að þjónusta þennan hóp annars staðar myndi aðstoða segir Mikael Smári alveg skýrt að þjónustan þurfi að vera án allra flækja.
„Það þyrfti að vera framsækið, það þyrfti að bjóða það og fara til þeirra. Það er ekki nóg að setja þjónustuna upp bara einhvers staðar þar sem þau geta ekki sótt hana eða komast ekki í hana eða þurfa að fara í gegnum einhverjar flækjur. Við þekkjum fólk í bráðum vanda, það vill fá aðstoð fljótt og þau fara þangað sem er auðveldast að fá hana. Við erum öll mennsk og við fylgjum og gerum það sem við kunnum ef það er skiljanlegt fyrir okkur.“"

Mikael Smári Mikaelsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að ef það eigi að vera markmið að fækka komum heimilislausra á bráðamóttöku spítalans þurfi að vera til aðrar leiðir fyrir hópinn til að sækja þjónustu sem sé þeim greið. Hann segir alla eiga að...

Rannsókn á komum fólks í heimilisleysi hefur vakið athygli í fjölmiðlum og víðar.
03/07/2026

Rannsókn á komum fólks í heimilisleysi hefur vakið athygli í fjölmiðlum og víðar.

"Ný rannsókn Rótarinnar sýnir að 60 prósent af þeim um það bil þúsund manns sem búa eða hafa búið við heimilisleysi í Re...
02/07/2026

"Ný rannsókn Rótarinnar sýnir að 60 prósent af þeim um það bil þúsund manns sem búa eða hafa búið við heimilisleysi í Reykjavík leituðu á bráðamóttökur Landspítalans á fimm ára tímabili. Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Rótarinnar, segir þetta sýna glöggt, að brýnt sé að bæta aðgengi þessa fólks að lágþröskulds-úrræðum - sem myndi allt í senn bæta hag þess, létta á bráðamóttökunum og spara hinu opinbera stórfé. Ævar Örn Jósepsson talaði við Kristínu."

Bensín og dísilolía hækkaði áður en opinber gjöld lækkuðu um síðustu áramót og hið sama gerðist rétt áður en virðisaukaskattur var lækkaður tímabundið fyrsta maí. Samkeppniseftirlitið segir það standa upp á olíufélögin að útskýra þessar hækkanir betur og að svei...

Ágæt grein um rannsókn á komum á bráðamóttökur.Fyrirsögnin hefði hins vegar mátt vera með minni smellubeitubrag. "Í skýr...
02/07/2026

Ágæt grein um rannsókn á komum á bráðamóttökur.Fyrirsögnin hefði hins vegar mátt vera með minni smellubeitubrag.
"Í skýrslunni segir að niðurstöður bendi til þess að markviss fjárfesting í samþættri þjónustu, lágþröskuldaúrræðum í heilbrigðisþjónustu og húsnæðismiðuðum lausnum geti bæði bætt lífsgæði fólks og stuðlað að hagkvæmari nýtingu heilbrigðiskerfisins.
Jafnframt undirstrika þær mikilvægi þess að greina reglulega þjónustunotkun og kostnað í heilbrigðiskerfinu.
„Án slíkra upplýsinga er hætta á að dýrustu úrræðin verði notuð þegar einfaldari, mannúðlegri og árangursríkari þjónusta getur komið í veg fyrir að fólk þurfi að leita á bráðamóttöku eða leggjast inn á sjúkrahús,“ segir í skýrslunni."

Á fimm ára tímabili kom 621 heimilislaus einstaklingur, tæplega 60 prósent hópsins, á bráðamóttökur Landspítalans, samtals 9.491 sinnum. Flestar komur voru í Fossvogi. Meðalfjöldi koma á hvern einstakling var fimmtán en sá sem kom oftast gerði það 292 sinnum á fimm ára tímabi...

Interact Project -teymið hittist á Íslandi í síðustu viku og hélt góðan fund. Hér er frétt af Facebook-síðu verkefnisins...
30/06/2026

Interact Project -teymið hittist á Íslandi í síðustu viku og hélt góðan fund. Hér er frétt af Facebook-síðu verkefnisins.

Address

Túngata 14
Reykjavík
101

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rótin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share