16/07/2026
Mörk hjúkrunarheimili leitar að iðjuþjálfa til starfa.
Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf fyrir einstakling sem býr yfir sjálfstæði, frumkvæði og góðum samskiptahæfileikum. Í starfinu felst m.a. mat á færni eintaklinga og persónumiðuð þjálfun sem miðar að því að efla athafnir daglegs lífs. Jafnframt felur starfið í sér þátttöku í þverfaglegu samstarfi, skráningu og skipulagningu þjónustu, auk þróunar á starfi iðjuþjálfa í Mörk.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Sérhæfð ráðgjöf
Einstaklingmiðuð íhlutun og þjálfun
Þátttaka í hópastarfi
Þátttaka í RAI mati og skráningu
Þáttaka í þverfaglegu samstarfi
Notkun hjálpartækja, umsjón og kennsla
Fræðsla til annara starfsmanna sem og heimilismanna
Hæfniskröfur:
Viðurkennt háskólanám í iðjuþjálfun
Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
Greitt er eftir kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Á Grundarheimilunum er unnið samkvæmt Eden hugmyndafræðinni. Þar vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð.
Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Theodóra Theodórsdóttir mannauðsstjóri, [email protected]
Við hlökkum til að heyra frá þér!
https://jobs.50skills.com/grund-as-mork/